Ísak Bergmann Jóhannesson varð í gær yngsti markaskorari í sögu íslenska A-landsliðsins í knattspyrnu karla. Skagamaðurin skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark í gær þegar hann jafnaði metin gegn Armeníu á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2022. Ísak Bergmann kom inná í hálfleik og jafnaði eins og áður segir leikinn sem endaði 1-1. Ísak Bergmann bætti met sem...
Í dag voru tilboð opnuð í framkvæmdir við innanhússfrágang í nýjum leikskóla við Asparskóga 25, Akranesi. Verkið nær til innanhússfrágangs, smíði og uppsetningar innréttinga, ásamt lögnum og raflögnum sem tengjast innanhússfrágangi. Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar við verkefnið var rétt rúmlega 376 milljónir kr. Heildarstærð byggingar er 1565,3 m² og 5607 m³ Alls buðu fimm fyrirtæki í verkefnið...
Mikill áhugi er hjá stuðningsmönnum ÍA á úrslitaleik karlaliðs félagsins í Mjólkurbikarkeppni KSÍ 2021. ÍA og Víkingur Reykjavíkur mætast í úrslitaleiknum þann 16. október á Laugardalsvelli. Miðasala hefur gengið vel samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Knattspyrnufélags ÍA. Snemma í morgun höfðu stuðningsmenn ÍA keypt um 1700 miða og stuðingsmenn Víkings höfðu tryggt sér um 2000 miða....
Í dag óskaði Akraneskaupstaður eftir tilboðum í byggingarétt á 6 lóðum á Sementsreit á Akranesi með formlegum hættil. Undirbúningur að þessu verkefni hefur staðið í nokkur misseri. Um er að ræða byggingarétt á fjöleignarhúsum á 3 hæðum auk bílakjallara á 4 lóðum á uppbyggingar-reit D og á 2 lóðum á uppbyggingarreit C. Öllum lóðunum verður...
Viðamiklar breytingar verða á ásýnd Langasandssvæðisins á Akranesi ef tillögur frá Landmótun sf. ásamt Sei Stúdíó ná fram að ganga á næstu misserum. Þessir aðilar stóðu uppi sem sigurvegari í hugmyndasamkeppni sem Akraneskaupstaður stóð fyrir. Þrjú fyrirtæki fengu tækifæri að senda inn hugmyndir eftir forval sem fór fram í febrúar á þessu ári og samkeppnin...
Miðasala á bikarúrslitaleik Mjólkurbikar karla hefst í dag fimmtudaginn 7. október 2021. Miðasalan hefst kl. 12:00 í dag á Tix.is. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli þann 16. október kl. 15:00 – þar sem að ÍA mætir Íslandsmeistaraliði Víkings úr Reykjavík. Víkingar eru ríkjandi Mjólkurbikarmeistarar en liðið fagnaði sigri í þessari keppni haustið 2019 – en...
Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson skoraði fyrsta mark U-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu karla í gær í 3-1 sigri liðsins gegn Slóveníu í undankeppni EM 2023. Leikurinn fór fram í Slóveníu og á Ísland tvo leiki eftir gegn Ítalíu á laugardagin og Litháen á þriðjudaginn í næstu viku. Hákon Arnar skoraði fyrsta markið eftir aðeins...
Snemma í morgun kom út nýtt lag eftir Skagamanninn Jónas Björgvinsson sem fagnar einnig hálfrar aldar afmæli sínu í dag. Lagið heitir Minning hljómar og er fyrsta lagið á nýrri plötu sem heitir Á Norðurhveli og kemur út þann 4. nóvember Þetta er í annað sinn sem Jónas gefur út sólóplötu en sú fyrsta kom...
Menningar – og safnanefnd Akraness sendi nýverið frá sér greinargerð þar sem að fram kemur að ráðið hefur áhyggjur af því hversu takmarkað fé fer til árlegs viðburðahalds á Akranesi. Þetta kemur fram í nýjustu fundargerð nefndarinnar. Á árinu 2021 er gert ráð fyrir um 19 milljóna kr. fjárveitingu til viðburðahalds en um 2,5 milljónir...
Íslensku menntaverðlaunin verða afhent á næstunni. Heiðrún Hámundadóttir, kennari við Brekkubæjarskóla og Tónlistarskólann á Akranesi, er ein af þeim sem fær tilnefningu að þessu sinni. Þeir sem fá tilnefningu hafa lagt sit af mörkuim við framúrskarandi skólastarf, menntaumbætur og þróunarverkefni. Heiðrún er tilnefnd fyrir metnaðarfulla og árangursríka tónmennta- og tónlistarkennslu Markmið verðlaunanna er að auka...