Karlalið ÍA vann góðan 3-0 sigur í gær gegn Fram í 32-liða úrslitum Mjólkubikarkeppni KSÍ. Fram trónir á toppi Lengjudeildarinnar – næst efstu deildar en ÍA er í neðsta sæti PepsiMax-deildarinnar – sem er efsta deild. Steinar Þorsteinsson skoraði tvívegis fyrir ÍA og danski framherjinn Morten Beck, sem er í láni frá FH, skoraði fyrsta...
Um 1800 keppendur skemmtu sér konunglega á hinu árlega Norðurálsmóti á Akranesi sem fram fór um liðna helgi í 36. skipti. Mótið var sett með hátíðlegum hætti á sjálfan 17. júní, Þjóðhátíðardag Íslendinga. Norðurlandsmótið er eitt fjölmennasta mótið á landsvísu fyrir yngri keppendur í knattspyrnu. Á fyrsta keppnisdeginum hófu yngstu keppendur mótsins þátt, eða leikmenn...
Nýverið auglýsti Biskup Íslands eftir presti til þjónustu í Garða- og Saurbæjarprestkalli, Vesturlandsprófastsdæmi. Alls sóttu ellefu um og tveir umsækjenda óskuðu nafnleyndar. Þetta kemur fram vefnum kirkjan.is. Í auglýsingunni kom fram að miðað væri við að viðkomandi gæti hafið störf þann 1. ágúst næstkomandi. Starfið var auglýst þar sem að Sr. Jónína Ólafsdóttir var nýlega...
Um 700 einstaklingar sem eru búsettir á Akranesi hafa fengið SMS boð frá Heilbrigðisstofnun Vesturlands vegna síðari bólusetningar með AstraZeneca miðvikudaginn 23. júní. Í tilkynningu frá HVE frá því í dag kemur fram að fresta þurfi AstraZeneca bólusetningunni miðvikudaginn 23. júní vegna tafa á afhendingu bóluefnisins frá framleiðanda. Athygli er vakin á því að þessi...
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fékk um 60% atkvæða í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Þórdís Kolbrún er varaformaður flokksins sem fékk tvo þingmenn kjörna í síðustu Alþingiskosningum. Haraldur Benediktsson sóttist einnig eftir efsta sæti listans en hann fékk 35% atkvæða. Alls greiddu 2.289 atkvæði í prófkjörinu en gild atkvæði voru 2.233. Þórdís Kolbrún...
Tónlistarkonan Valgerður Jónsdóttir fékk í gær titilinn Bæjarlistamaður Akraness 2021. Hún fékk viðurkenningu þess efnis á Akratorgi í gær á 17. júní hátíðarhöldum Akraneskaupstaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Valgerður er fædd árið 1976 og uppalin á Akranesi. Valgerður lauk námi tónmenntakennara árið 2000 og söngpróf frá Tónlistarskóla FÍH árið 2003. Valgerður hefur...
Karlalið ÍA mætir KA frá Akureyri í 8. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu og fer leikurinn fram á Norðurálsvellinum á Akranesi kl. 18.00. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið en ÍA er harðri baráttu í neðri hluta deildarinnar með 5 stig eftir 7 umferðir. KA er í fjórða sæti með 13 stig en ÍA er...
Kvennalið ÍA landaði góðum 3-2 sigri á útivelli gegn Grindavík í gær í Lengjudeildinni í knattspyrnu. Um var að ræða leik í 7. umferð Íslandsmótsins í næst efstu deild. Grindavík komst yfir á 40. mínútu með marki sem Viktoría Sól Sævarsdóttir skoraði. Sigrún Eva Sigurðardóttir var fljót að jafna fyrir ÍA með góðu skoti á...
Skagamaðurinn Björn Viktor Viktorsson er í fremstu röð í sínum aldursflokki á landsvísu í golfíþróttinni og hann. er í efsta sæti stigalista GSÍ í flokki 17-18 ára þegar tveimur mótum er lokið. Stigalistinn er í heild sinni hér: Björn Viktor endaði í öðru sæti um liðna helgi á 2. móti tímabilsins á Unglingamótaröð GSÍ þar...
Kári, sem leikur í 2. deild á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla, fær í kvöld ÍR í heimsókn i Akraneshöllina. Um er að ræða fyrsta leikinn í 7. umferð Íslandsmótsins. Leikurinn hefst kl. 20.00 að venju verður kaffi og bakkelsi til staðar fyrir áhorfendur. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir Kára sem er enn án sigurs í...