• Orðið Akurnesingur hefur oft valdið fólki heilabrotum. Það brýtur regluna um að grunnorðið sé ekki meira en tvö atkvæði, og þar að auki lítur það út fyrir að vera myndað af Akurnes, ekki Akranes. Á þessu er málsöguleg skýring eins og fram kemur í þessum pistli sem Eiríkur Rögnvaldsson skrifar í fésbókarhópnum Málspjallið. Hér var nýlega verið að tala...

  • Í þessari viku verður mikið um að vera í bólusetningu fyrir Covid-19 á landsvísu. Á svæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands verða um 1500 einstaklingar bólusettir. Á Akranesi er stefnt að því að bólusetja 900 manns í þessari viku – samkvæmt upplýsingum frá HVE. Einstaklingar sem eru 60 ára eða eldri fá boð um að fá bólusetningu í...

  • Nýverið valdi Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari U15 landsliðs kvenna í knattspyrnu 32 leikmenn frá 14 félögum til æfinga í Kaplakrika í Hafnarfirði. Einn leikmaður úr röðum ÍA er í æfingahópnum sem mætir á sína fyrstu æfingu í dag en æfingarnar fara fram 26.-28. apríl. Flestir leikmenn koma úr röðum Hauka, HK og Víkings úr Reykjavík,...

  • Alls greindust 6 einstaklingar í gær með Covid-19 smit á landinu. Allir voru utan sóttkvíar þegar smitin greindust. Alls eru 169 einstaklingar í einangrun á landinu með Covid-19 smit og um 350 eru í sóttkví. Einstaklingum sem eru á sjúkrahúsi vegna Covid-19 veikinda hefur fjölgað en alls eru 5 á sjúkrahúsi vegna veikinda sem tengjast...

  • Fjölmargir félagsmenn úr Golfklúbbnum Leyni mættu s.l. laugardag á vinnudag klúbbsins sem er árlegur viðburður. Sjálfboðaliðarnir fengu ýmis verkefni til þess að gera Garðavöll tilbúinn fyrir golftímabilið sem er rétt handan við hornið. Stefnt er að opnun Garðavallar þann 1. maí fyrir félagsmenn og almenn opnun verður þann 3. maí – og verður þá leikið...

  • Akraneskaupstaður hvetur alla bæjarbúa, unga sem aldna sem og fyrirtæki, stofnanir og hópa til að taka þátt í hreinsun og fegrun umhverfisins á Akranesi, bæði í nærumhverfi og á förnum vegi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Hvatning er að hreinsa og fegra lóðirog umhverfi en einnig má sameina áhuga á útiveru og umhverfismeðvitund...

  • Áhöfnin á Víkingi AK landaði um 2700 tonnnum á kolmunna í Vopnarfirði í síðustu viku eftir að hafa verið að veiðum í fjóra sólarhringa. Hjalti Einarsson var skipstjóri í þessari ferð og segir hann í viðtali á vef Brims að veiðisvæðið hafi verið syðst í færeysku lögsögunni. Skagamaðurinn Albert Sveinsson er einnig skipstjóri á Víkingi...

  • Áhöfnin á uppsjávarveiðiskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 kom með 1.800 tonn af kolmunna til Neskaupstaðar rétt fyrir síðustu helgi. Runólfur Runólfsson skipstjóri segir í frétt á vef Síldarvinnslunnar að veiðarnar hafi gengið vel. Aflinn sem Bjarni Ólafsson kom með að landi kom í fjórum holum og það stærsta var 640 tonn en veiðarnar fara að...

  • Eins og fram hefur komið á skagafrettir.is sást til minks við Ketilsflöt s.l. fimmtudag – og náði Skagamaðurinn Ingimar Elfar Ágústsson myndbandi af dýrinu á hlaupum. Margir hafa velt því fyrir sér hvort rándýrið gangi enn um götur Akraness. Lögreglan á Akranesi brást skjótt við þegar fregnir bárust af minkinum. Þeir króuðu dýrið af og...

  • Árgangur 1971 mun standa fyrir áhugaverðum viðburði þann 1. maí 2021 þar sem að markmiðið er að safna fé til að kaupa sérsmíðað reiðhjól fyrir Sveinbjörn Reyr Hjaltason sem er fæddur árið 1971. Sveinbjörn slasaðist alvarlega fyrir einu ári eða 23. apríl 2020. Í tilkynningu frá árganginum eru Skagamenn nær og fjær hvattir til þess...

Loading...