Hörður Ingi Gunnarsson mun ekki leika með ÍA í PepsiMax-deildinni á þessu keppnistímabili. Hörður Ingi gekk í raðir FH í kvöld en greint var frá félagaskiptum hans á Twittersíðu Hafnarfjarðarliðsins í kvöld. Hörður Ingi hefur verið fastamaður í liði ÍA undanfarin tvö keppnistímabil en hann samdi við ÍA í lok október 2018. Hörður Ingi er...
„Ég er búin að ganga með hugmyndina að þessu námskeiði í langan tíma, en ekki haft tækifæri til að hrinda henni í framkvæmd. Nú þegar það bætust við nýir prestar í vor þá gafst tækifærið en við sr. Þóra Björg munum leiða námskeiðið,“ segir Þráinn Haraldsson sóknarprestur við Garðaprestakall á Akranesi um áhugavert námskeið sem...
Draumahöggunum rignir á 3. holu á Garðavelli hér á Akranesi – en tveir félagar úr Golfklúbbnum Leyni skráðu sig í Einherjaklúbbinn með frábærum höggum með eins dags millibili. Það gerist ekki á hverjum degi að kylfingar fari holu í höggi. Meðalkylfingur þarf 12.500 tilraunir að meðaltali til þess að ná því að fara holu í...
Það fjölgar í hópi samstarfsaðila Knattspyrnufélags ÍA. Nýverið gerði félagið þriggja ára samstarfssamning við fyrirtækið Ritara ehf. Þá fylgir samningnum samkomulag um gistingu hjá StayWest sem er gistiþjónusta í eigu sömu aðila. Ritari býður upp á símsvörunarþjónustu fyrir fyrirtæki, netspjall á vefsvæði, vöktun á samfélagsmiðlum, almenna ritaraþjónustu, bókhaldsþjónustu og ráðgjöf í flestu sem tengist því...
Jói P og Króli voru á meðal þerra sem fóru í fjallgöngu með útivistarþættinum Úti og sprengdu sig næstum því á leiðinni upp á Háahnúk á Akrafjalli. Tónlistarmennirnir eru á meðal þeirra allra þekktustu á Íslandi og sérstaklega hjá yngri kynslóðinni. Akrafjallið og umhverfið við fjallið kom þeim skemmtilega á óvart eins og sjá má...
Ninja Sigmundsdóttir fékk frábæra viðurkenningu í kvöld þegar greint var frá úrslitum í Rödd fólksins í Söngkeppni Samfés. Hin 14 ára gamla Ninja sigraði í netkosningu sem fram fór á vef UngRÚV. Dómnefnd valdi sigurvegara Söngkeppni Samfés 2020 sem og annað og þriðja sæti. Þórdís Linda Þórðardóttir úr Garðabæ stóð uppi sem sigurvegari í Söngkeppni...
Sumarið 2020 verður án efa eitt það skemmtilegasta frá upphafi á Smiðjuloftinu á Akranesi. Framundan eru áhugaverðir viðburðir af ýmsu tagi þar sem að fólk á öllum aldri ætti að finna eitthvað við sitt hæfi. Hjónin Valgerður Jónsdóttir og Þórður Sævarsson settu Smiðjuloftið á laggirnar á vormánuðum árið 2018. Frá þeim tíma hefur afþreyingarsetrið vaxið...
Á Akranesi er öflugur hópur sem stundar sjóböð nánast í hvaða veðri sem er. Félagar í Sjóbaðsfélagi Akraness leyndu ekki gleði sinni um s.l. helgi þegar Langisandur og hin eina sanna Guðlaug vöknuðu til lífsins á ný eftir erfiðar vikur vegna „Covid-ástandsins.“ Langisandur er að margra mati eitt besta svæðið á Íslandi til þess að...
Í þessari viku verður boðið upp á fjölbreytta viðburði í tengslum við Hreyfivikuna sem UMFÍ stendur að. Íþróttabandalag Akraness tekur þátt í þessu verkefni með ýmsum viðburðum. Í tilkynningu frá ÍA eru Skagamenn hvattir til þess að taka þátt í þeim viðburðum sem verða í boði Hreyfivikunni 2020. Verkefnið er einnig í gangi í öðrum...
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Axel Bóasson úr Keili stóðu uppi sem sigurvegarar á B59 Hotel mótinu sem lauk í kvöld á Garðavelli á Akranesi. Skagakonan Valdís Þóra Jónsdóttir endaði í öðru sæti í kvennaflokk en hún var hársbreidd frá sigrinum. Golfklúbburinn Leynir sá um framkvæmd mótsins. Keppendur voru afar ánægðir með ástand Garðavallar...