Lögreglan á Vesturlandi var rétt í þessu að birta nýjustu upplýsingar varðandi Covid-19 smit á Vesturlandi. Engar breytingar eru varðandi smit og hefur ekkert nýtt smit verið greint á Vesturlandi frá því á þriðjudaginn í síðustu viku. Alls hafa 41 Covid-19 smit verið greind á Vesturlandi Aðeins 7 eru í sóttkví á Vesturlandi og 2...
Ekkert verður af hátíðardagskrá verkalýðshreyfingarinnar í dag 1. maí vegna Covid-19 faraldursins og samkomubanns sem er í gildi. Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness sendir því félagsmönnum sínum rafrænar baráttukveðjur í pistli sem birtur var á vefsvæði VLFA og er hér fyrir neðan. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1923 þar sem launafólk safnast ekki...
Áhöfnin á Bjarna Ólafssyni AK 70 eru á kolmunnaveiðum suður af Færeyjum. Aflabrögð eru góð hjá þeim eins og sjá má á þessu myndbandi sem tekið var einni hífingu. Þar má sjá áhöfnina „reima“ pokann af trollinu en pokinn er síðan tekinn inn að síðu togarans. Pokinn er síðan tekinn í gegnum „triplex“ eins og...
Eva Laufey Kjaran hefur á undanförnum misserum dregið Akranes inn í sviðsljósið með skemmtilegum hætti í sjónvarpsþáttum sínum sem bera nafnið „Matarboð með Evu Laufeyju.“ Í ljósi aðstæðna vegna Covid-19 hefur ekki verið mikið um matarboð í þessum þáttum en Eva deyr ekki ráðalaus eins og sést í þessu skemmtilega innslagi. Hún eldar einfaldlega fyrir...
Samvinnuverkefni Brekkubæjarskóla, Þorpsins og Menntavísindasvið Háskóla Íslands fékk á dögunum styrk úr Sprotasjóði. Styrkurinn er 1,3 milljónir kr. og verkefnið er „Þátttaka er samvinna- valdefling barna.“ Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi. Hér má sjá yfirlit yfir þau verkefni sem hlutu...
Karlalið ÍA í knattspyrnu mun líklega leika sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í PepsiMax deildinni 2020 sunnudaginn 14. júní. Þetta kom fram í útvarpsþættinum fotbolti.net sem má nálgast hér. Knattspyrnusambandið hefur lagt til að 1. umferð PepsiMax-deildar karla hefjist laugardaginn 13. júní með leik Vals og Íslandsmeistaraliðs KR. Fyrsta umferðin mun fara fram á þremur...
Starfsfólkið á leikskólanum Teigaseli á Akranesi kann svo sannarlega að finna barnið í sér eins og sjá má á þessu skemmtilega myndbandi. Teigasel fékk áskorun um að vera með í skemmtilegu verkefni sem kallast „Finnum barnið í okkur sjálfum“ og var áskorunin frá leikskóla á Seltjarnarnesi. Starfsfólkið á Teigaseli var ekki lengi að henda í...
Heilsu- og hvatningarverkefnið „Hjólað í vinnuna“ hefst þann 6. maí n.k. út um allt land. Þessi viðburður stendur að venju yfir í þrjár vikur eða til 26. maí. „Hjólað í vinnuna“ fer nú fram í átjánda sinn og er það á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Markmiðið er að hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig og...
Akraneskaupstaður mun á næstu vikum og mánuðum gera ýmsar ráðstafanir í aðgerðum sínum vegna Covid-19. Á síðasta fundi bæjarráðs var samþykkt að veita 38 milljónum kr. í ýmis verkefni þessu tengt. Og verður formlega gengið frá þessu á næsta fundi bæjarstjórnar. Á meðal verkefna sem fá styrk má nefna heilsuefling íbúa sem felst í fjárhagslegum...
Fyrirtækið Vignir G. Jónsson ehf. á Akranesi sendi í dag frá sér fréttatilkynningu þess efnis að 15 manns hafi verið sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Í ljósi samdráttar á sölu afurða vegna Covid faraldursins og loðnubrests síðustu tveggja ára, neyðist félagið að segja hluta starfsfólks síns upp störfum og fara í aðrar hagræðingaðgerðir á næstu...