„Það má segja að mér hafi hlotnast besta jólagjöf fyrr og síðar í lok vikunnar,“ segir Ingi Þór Jónsson í færslu á fésbókarsíðu sinni. Skagamaðurin á árum áður í fremstu röð á heimsvísu í sundíþróttinni. Ingi Þór er fæddur árið 1962 árið á Akranesi og var hann í hópi tíu efstu í kjörinu á íþróttamanni...
Björgunarfélag Akraness mun ekki selja jólatré fyrir þessi jól. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Björgunarfélagið hvetur Skagamenn nær og fjær til þess að kaupa leiðisgreinar hjá Slysavarnadeildin Líf Akranesi. Þar með lýkur margra áratuga sögu Björgunarfélagsins á þessum markaði. Félagið, sem hét áður Hjálpin, hóf sölu á jólatrjám seinni part síðustu aldar. Samkvæmt heimildum...
Sjö aðilar sóttu um tvö störf sem Biskup Íslands auglýsti til umsóknar í Garða- og Hvalfjarðarstrandaprestakall. Annars vegar var auglýst eftir almennum presti og hins vegar presti með áherslu á æskulýðs og barnastarf. Sr. Þráinn Haraldsson verður áfram sóknarprestur í Garða- og Hvalfjarðarstrandaprestakalli. Umsækjendur voru beðnir um að tilgreina um hvort starfið væri sótt, annað...
Í kvöld var dregið í leik þar sem að lesendur og dyggir stuðningsmenn Skagafrétta tóku þátt á samfélagsmiðlum fréttavefsins. Í boði voru miðar á glæsilega Jólatónleika sem Skagakonan Rakel Páls heldur á Akranesi sunnudaginn 15. desember. Þátttakan var mjög góð þrátt fyrir skamman fyrirvara. Ingibjörg Eygló Jónsdóttir var sú heppna í fésbókarleiknum og fær 2...
Karlalið ÍA í knattspyrnu lék í dag æfingaleik gegn Fjölni úr Grafarvogi. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni og endaði hann með sigri ÍA, 2-1. Gestirnir komust yfir áður en Hallur Flosason og Bjarki Steinn Bjarkason skoruðu fyrir ÍA. Mörkin er hægt að sjá hér fyrir neðan í samantekt frá ÍATV.
„Við ætlum að hafa umgjörðina ljúfa og lágstemmda og við höfum ekki verið með tónleika eins og þessa áður. Við Birgir Þórisson, píanóleikari, héldum einu sinni jólatónleika í Akranesvita, sem vöktu mikla lukku og troðið var út úr dyrum. Ég vona svo sannarlega að Skagamenn nær og fjær sjái sér fært að koma á tónleikana...
Það stendur mikið til hjá Fimleikafélagi ÍA sunnudaginn 15. desember. Tröllið sem stal jólunum verður aðalþemað í jólasýningu félagsins þar sem að iðkendur frá 5 ára aldri taka þátt. Jólasýningin er aðalfjáröflun félagsins. Iðkendur, þjálfarar og velunnarar félagsins hafa unnið hörðum höndum að undanförnu við undirbúning jólasýningarinnar. Mikil tilhlökkun ríkir hjá iðkendum félagsins að sýna...
Andri Páll Einarsson, Elís Aron Bjarkason, Jana Sif Sigurjónsdóttir, Helena Rut Káradóttir og Brynjar Örn Hilmarsson létu fara vel um sig í Kallabakarí í morgun þegar Skagafréttir voru þar á ferðinni. Þau voru kampakát og ekkert jólastress var í gangi hjá þessum hressu framhaldsskóla nemendunum sem stunda nám á starfsbraut Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Andri...
„Ég hef ekki verið að gera mikið í söngnum í rúman áratug. Ég tók þátt í Söngkeppni Framhaldsskólanna árið 2006. Frá þeim tíma hef ég bara sungið fyrir mína nánustu í fjölskyldunni,“ segir Skagakonan Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir. Skagakonan gaf nýverið út jólalag sem ber nafnið Glæddu jólagleði í þínu hjarta. Lagið er eftir Hugh Martin...
Aðsend grein frá bæjarfulltrúum Samfylkingar, Framsóknar og frjálsra á Akranesi sem mynda meirihluta í Bæjarstjórn Akraness. Bókun Samfylkingar og Framsóknar og frjálsra við síðari umræðu fjárhagsáætlunar Bæjarstjórnarfundur 10. desember 2019 Í fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2020 sem hér er lögð fram er gert ráð fyrir að rekstrarafkoma A-hluta bæjarsjóðs verði jákvæð um 309 milljónir króna...