• Jakob Svavar Sigurðsson var í kvöld kjörinn Íþróttamaður Akraness 2019. Þetta er í annað sinn sem hestaíþróttamaðurinn er efstur í þessu kjöri en hann fékk titilinn í fyrsta sinn árið 2013. Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, varð í öðru sæti. Kraftlyftingamaðurinn Alexander Örn Kárason varð þriðji. Kjörinu var lýst í Íþróttahúsinu við Jaðarsbakka í...

  • Kraftur verður með viðburð á Akranesi miðvikudaginn 8. janúar í Grundaskóla á milli 16:30-20.00. Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur en félagið var stofnað þann 1. október árið 1999. Félagið hefur það að leiðarljósi að beita sameinuðum kröftum sínum til að aðstoða þá sem þurfa á stuðningi að...

  • Helena Rúnarsdóttir er nýr þjálfari hjá Badmintonfélagi Akraness. Helena mun þjálfa alla flokka hjá félaginu en hún starfar einnig sem iþróttakennari í Grundaskóla. Frá verðlaunaafhendingu á Atlamótinu fyrr í vetur. Helena og Írena Rut eru til hægri á verðlaunapallinum. Helena tekur við af Yasen Boristov. Búlgarski þjálfarinn Boristov hóf störf s.l. haust en hann þótti...

  • Það var mikið um að vera í Íþróttahúsinu við Jaðarsbakka á dögunum þegar efnilegustu leikmenn landsins í körfubolta karla voru þar við æfingar. Um var að ræða leikmenn sem eru 15 og 16 ára. Hóparnir voru fjölmennir en um var að ræða úrtaksæfingar fyrir valið á unglingalandsliðum Íslands. Þrír leikmenn úr röðum ÍA voru á...

  • Í kvöld verður greint frá úrslitum í kjörinu á Íþróttamanni Akraness. Kjörinu verður lýst í Íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum að lokinni flugeldasýningu og þrettándabrennu. Hér eru nánari upplýsingar um þá sem koma til greina í kjörinu. Fyrst var kosið um Íþróttamann Akraness árið 1965 en frá árinu 1977 hefur kjörið farið fram á hverju ári. Kjörið...

  • Laun atvinnuknattspyrnumanna í stærstu deildum Evrópu í karlaflokki eru há eins og flestir vita. Í samantekt Viðskiptablaðsins á Íslandi er listi yfir 31 launahæstu atvinnumenn í boltaíþróttum. Sjá meira hér á VB.IS.Kemur það fáum á óvart að Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton á Englandi, er þar efstur á lista með 750 milljónir kr. á ári....

  • „Við erum lánsöm að það rigndi hér á þessu svæði fyrir viku síðan. Sú úrkoma slökkti eldana þar sem við búum. En það er óhugnalegt að sjá hvernig staðan er fyrir sunnan okkur,“ segir Skagamaðurinn Hallgrímur Kvaran Gíslason sem búsettur er í Ástralíu þar sem að miklir skógareldar hafa sett samfélagið á hliðina á undanförnum...

  • Guðfinna Rúnarsdóttir leikkona frá Akranesi hefur margoft leikið hlutverk í Áramótaskaupunum á undanförnum árum og áratugum. Guðfinna var í skemmtilegu atriði í Skaupinu 2019 þar sem hún var í hlutverki Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, þingkonu úr Miðflokknum. Guðfinna er fædd árið 1963 en foreldrar hennar Guðmundur Rúnar Pétursson og Guðný Jónsdóttir ráku prjónaverksmiðjuna Akraprjón á sínum...

  • Ung og efnileg listakona frá Akranesi, Hekla Kristleifsdóttir, kom við sögu í Áramótaskaupinu 2019. Hekla fór þar með hlutverk í atriði þar sem að gert var grín að íslensku þáttaröðinni „Pabbahelgar.“ Þáttaröðin „Pabbahelgar“ sló svo sannarlega í gegn á RÚV fyrr í vetur. Heiðrún Hámundadóttir tónlistakennari á Akranes og Kristleifur Brandsson eru foreldrar Heklu.

  • Skagamenn komu mikið við sögu í Áramótaskaupinu 2019. Hallgrímur Ólafsson leikari var með stórt hlutverk þar sem að fall flugfélagsins WOW var tekið fyrir með eftirminnilegum hætti. Þar söng Hallgrímur texta við lag sem bandaríska tónskáldið Prince frumflutti um mitt ár 1984. Það er óhætt að segja að flutningur Halla Melló hafi slegið í gegn....

Loading...