Aðsend grein frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Akraness Mikilvægasta hlutverk minnihluta sveitarstjórnar hverju sinni er að veita meirihluta aðhald og reyna af fremsta megni að leiða hann á réttar brautir, sé þess þörf. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Akraness taka hlutverk sitt í minnihluta mjög alvarlega og hafa staðið vörð um þá skýru framtíðarsýn sem sköpuð...
Töluverð aukning hefur verið á fíkniefnamálum hjá lögregluembættinu á Vesturlandi. Það sem vekur athygli og óhug er hversu langt söluaðilar ganga í því að blanda saman allskonar lyfjum og „skít“ til þess að drýgja efnin. Þetta kemur fram í færslu á fésbókarsíðu lögreglunnar. Um er að ræða mál þar sem aðilar eru uppvísir að því...
Þriðjudagurinn 10. desember 2019 var næst stærsti dagur í rúmlega þriggja ára sögu fréttavefsins skagafrettir.is. Alls komu 3.895 notendur inn á vefinn og flettingarnar voru 8.006. Alls voru 13 fréttir birtar í gær en lesendur grúskuðu mikið á vefnum í óveðrinu og tæplega 100 fréttir, gamlar og nýjar, voru lesnar á síðasta sólarhring. Samkvæmt google...
Áhugaljósmyndarinn Tomasz Wisła heldur áfram að gleðja Skagamenn nær og fjær með myndum sínum sem hann birtir með reglulegu millibili. Wisla var á dögunum á göngu um Langasand á Akranesi þegar hann tók þessar myndir þegar sólin var að koma upp í austri í veðurblíðunni sem var á þeim tíma. Tomasz, er 49 ára gamall...
Skagamaðurinn Kristófer Jónsson náði athygli stærstu fréttamiðla landsins með óvenjulegri nálgun sinni á óveðrið sem nú gengur yfir landið. Á fréttavefnum dv.is var greint frá því í kvöld að sjómaðurinn tók veðrinu fagnandi. Og grillaði á sundfötunum á pallinum. Af myndinni að dæma var boðið upp á hamborgara og einn „kaldur“ var á kantinum hjá...
Frístundamiðstöðin við golfvöllinn á Akranesi fékk í kvöld formlegt nafn. Greint var frá valinu á aðalfundi Golfklúbbsins Leynis sem fram fór í kvöld. Mannvirkið var tekið í notkun í maí á þessu ári, aðeins rúmlega ári eftir að framkvæmdir hófust við bygginguna. Frá því að verkefnið fór af stað hefur nafnið „Frístundamiðstöð“ verið notað um...
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi var settur á laggirnar sem framhaldsskóli þann 12. september árið 1977. Stofnun Fjölbrautaskólans á Akranesi markaði tímamót í skólamálum á Vesturlandi. Hinn nýi skóli tók við húsnæði og hlutverki Gagnfræðaskólans og Iðnskólans á Akranesi. Fyrsta vetur Fjölbrautaskólans á Akranesi voru þar um 180 nemendur í framhaldsnámi og jafnframt því annaðist skólinn...
Eins og flestir vita gengur mikið óveður yfir landið þessa stundina. Hægt er að fylgjast með veðrinu við Akraneshöfn með upplýsingum frá veðurstöð sem Faxaflóahafnir eru með á þeim slóðum. Myndin lýsir alls ekki ástandinu í Akraneshöfn þessa stundina. Samkvæmt veðurstöð Faxaflóahafna hefur meðalvindur við Akraneshöfn verið um 15-17 metrar á sekúndu. Í hviðum hefur...
„Það er með öllu óásættanlegt að ekkert opinbert eftirlit er með þeim fjölmörgu lögvernduðu iðngreinum sem iðnaðarlögin ná til og engin úrræði til að stöðva ófaglærða aðila sem ganga inn á svið lögverndaðra iðngreina þrátt fyrir kærur til lögreglu og kvartanir til Neytendastofu,“ segir m.a í ályktun sem formenn 12 meistarafélaga á sviði bygginga- og...
Rekstrarniðurstaða Golfklúbbsins Leynis á árinu 2019 var eins og best var á kosið. Þetta kemur fram í ársreikningi Leynis sem lagður verður fram á aðalfundi golfklúbbsins í kvöld. Hér má lesa skýrslu stjórnar Leynis 2019. Eitt besta sumar allra tíma á Íslandi, gott ástand Garðavallar og ný aðstaða í Frístundamiðstöðinni sköpuðu kjöraðstæður fyrir góða rekstrarniðurstöðu....