• Í dag á milli 16-17 var búið að loka flestum fyrirtækjum og stofnunum á Akranesi og nánast á landinu öllu. Kór eldri borgar á Akranesi, FEBAN, lætur slíkt veður sem vind um eyru þjóta – en kórinn var á æfingu á milli 16-17 í dag í Verkalýðssalnum við Kirkjubraut 40 samkvæmt öruggum heimildum Skagafrétta. Töluverður...

  • Í dag verður brjálað veður í flestum landshlutum á Íslandi. Óveðrið mun skella á eftir hádegi í dag, þriðjudaginn 10. desember. Gert er ráð fyrir að veðrið gangi niður eftir hádegi miðvikudaginn 11. desember. Vegagerðin mun loka vegum víðsvegar um landið og þar á meðal Kjalarnesvegi og veginum undir Hafnarfjall. Á Akranesi verða ýmsum opinberum...

  • Vegagerðin hefur lokað veginum um Kjalarnes vegna óveðursins sem nú gengur yfir landið. Vindhviður hafa farið upp í 40 metra á sekúndu á Kjalarnesinu og á vindstyrkurinn eftir að aukast. Hér fyrir neðan má sjá allar tilkynningar frá Vegagerðinni á Twittersíðu stofnunarinnar. Hér eru ítarlegar upplýsingar frá Vegagerðinni. Tweets by Vegagerdin https://twitter.com/Vegagerdin?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1204418791972753408&ref_url=https%3A%2F%2Fpublish.twitter.com%2F%3Fquery%3Dhttps%253A%252F%252Ftwitter.com%252FVegagerdin%252Fstatus%252F1204418791972753408%26widget%3DTweet

  • Akraneskaupstaður sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna óvissustigsins sem búið er að lýsa yfir á landinu vegna óveðursins sem gengur yfir landið í dag og á morgun. Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að búið er að lýsa yfir óvissustigi á landinu vegna óveðurs. Óvissustig er sett á þegar grunur vaknar um að eitthvað...

  • Skagamaðurinn Guðjón Þórðarson hefur fundað með færeyska knattspyrnusambandinu vegna ráðningar í landsliðþjálfarastöðu karlaliðs Færeyja í knattspyrnu. Þetta kemur fram á vefnum fotbolti.net. Forseti færeyska knattspyrnusambandsins, Christian F. Andreasen, segir í viðtali við FM1 í heimalandi sínu að stefnt sé að því að ganga frá ráðningu á nýjum landsliðsþjálfara snemma í janúar á næsta ári. Andreasen...

  • Hjónin Arnheiður Hjörleifsdóttir og Guðmundur Sigurjónsson hafa á undanförnum árum byggt upp öfluga ferðaþjónustu á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði. Samhliða ferðaþjónustunni er rekið sauðfjárbú á Bjarteyjarsandi og nýverið fékk Bjarteyjarsandur gullverðlaun Asksins, sem er Íslandsmót í matarhandverki. Verðlaunin hlutu þau fyrir pikklaðar radísur. Arnheiður er frá Akranesi en Guðmundur er frá Bjarteyjarsandi en hann stundaði nám...

  • Á næstu mánuðum og misserum mun ný reiðskemma rísa á svæði Hestamannafélagsins Dreyra við Æðarodda. Það þarf að hnýta marga hnúta í formlegheitunum þegar ráðist er í slíka framkvæmd. Eitt af því er að gefa götunni við væntanlega reiðskemmu nafn. Það þarf að gera m.a. til þess að hægt sé að stofna lóð í deiliskipulagi....

  • Sigríður Indriðadóttir frá Akranesi er framkvæmdastjóri mannauðs hjá Íslandspósti. Skagakonan er í skemmtilegu viðtali í Fréttablaðinu þar sem hún dregur fram áhugaverða punkta varðandi meðvirkni á vinnustöðum. Framkvæmdastjóri mannauðs hjá Íslandspósti segir meðvirkni grassera á mörgum vinnustöðum. Meðvirkni hefur verulega neikvæð áhrif á rekstur og líðan starfsfólks. Fæstir gera sér grein fyrir meðvirkni. Sérstök áhersla...

  • Það var góð stemning um s.l. helgi þegar Ljúflingamót Tennis – og badmtonfélags Reykjavíkur fór fram í Laugardalnum. Alls tóku 7 keppendur frá ÍA þátt. Mótið er ætlað þeim sem eru stíga sín fyrstu skref á keppnisferlinum. Margir voru að taka þátt á sínu fyrsta móti og aðrir voru komnir aðeins lengra á ferlinu. Allir...

  • Sigurjón Ernir Sturluson heldur áfram að bæta árangur sinn í allskonar þrekraunum sem íþróttamaður. Skagamaðurinn tók í gær þátt í 44 km. maraþonhlaupi á Kanaríeyjum. Þar endaði hann í 19. sæti á tímanum 4:48.51 klst. Sigurjón Ernir segir frá hlaupinu á fésbókarsíðu sinni. Verkefnið var ærið þar sem að hækkunin var 2.400 metra, sem er...

Loading...