Fjórir Skagamenn eru í U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu karla sem fagnaði 3-2 sigri gegn Rússlandi í úrslitum Evrópumótsins. Oliver Stefánsson, Jón Gísli Eyland Gíslason og Ísak Bergmann Jóhannesson voru í byrjunarliði Íslands. Hákon Arnar Haraldsson var á varamannabekknum. Jón Gísli gerði sér lítið fyrir og skoraði annað mark Íslands á 28. mínútur og...
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, átti frábæran lokahring á móti Omega Dubaí Moonligth Classic á LET Evrópumótaröðinni í dag. Þetta kemur fram á golf.is Mótið fór fram á hinum þekkta Faldo velli á Emirates Golf Club. Valdís lék lokhringinn á 68 höggum eða -4 en hún lék hringina þrjá á +3 samtals...
Tónlistarmaðurinn Hlynur Ben, sem búsettur er á Akranesi er að sjálfsögðu Skagamaður, hefur sett af stað hópfjármögnun fyrir útgáfu á nýrri sólóplötu.Hún mun kallast II ÚLFAR og verður þetta sú þriðja sem Hlynur sendir frá sér í eigin nafni. Hlynur hefur marga fjöruna sopið í tónlistinni og meðal annars spilað með hljómsveitum eins og Gleðisveit...
Nemendum í FVA er margt til lista lagt. Í miðhóp í málmiðngreinum hafa nemendur unnið að áhugaverðu tilraunaverkefni. Frá þessu er greint á vef FVA. Verkefnið fólst í því að smíða frumgerð vörubíls. Styrkleiki nemenda á hverju sviði fyrir sig var nýttur í verkefnið. Sumir nemendur völdu til dæmis að fá að vinna við rennibekk...
„Mér líst ótrúlega vel á þetta verkefni og allur hópurinn er á sama máli. Þetta verður skemmtileg sumar,“ segir Bryndís Rún Þórólfsdóttir fyrirliði kvennaliðs ÍA. Bryndís Rún verður í stóru hlutverki í hinu unga liði ÍA. Bryndís kom til Íslands eftir að hafa stundað nám og leikið knattspyrnu með University of the Pacific í Stockton....
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir er nýr leikmaður hjá ÍA sem leikur í Inkasso-deild kvenna í sumar á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Hún er fædd árið 2003 og hefur leikið upp alla yngri flokka Vals. Ólöf Sigríður verður 16 ára á þessu ári. Ólöf Sigríður hefur leikið alls 14 landsleiki með U-16 og U-17 ára landsliðum Íslands og...
Skagamaðurinn Einar Viðarsson mun hefja störf hjá Körfuknattleikssambandi Íslands þann 1. ágúst næst komandi. Einar hefur starfað sem kennari í Grundaskóla í áraraðir samhliða því að vera ökukennari. Tveir af lykilstarfssmönnum KKÍ hætta störfum á næstunni. Einar og Snorri Örn Arnaldsson voru ráðnir í þeirra stað. Mikill áhugi var á störfunum hjá KKÍ en um...
Skagamenn verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu. ÍA sigraði lið Augnabliks í dag í 32-liða úrslitum keppninnar. Leikurinn fór fram í knattspyrnuhúsinu Fífunni í Kópavogi. Lokatölur 3-0. Steinar Þorsteinsson, Óttar Bjarni Guðmundsson og Viktor Jónsson skoruðu mörk ÍA.
Helena Ólafsdóttir þjálfari mfl. kvenna er að hefja sitt þriðja keppnistímabil sem þjálfari liðsins. Helena er einn reynslumesti þjálfari landsins en hún stýrði m.a. A-landsliði kvenna um tíma og hefur einnig þjálfað lið Noregi. Á ferli sínum sem leikmaður var Helena í fremstu röð og lék fjölmarga leiki með A-landsliðinu. Helena segir að undirbúningur ÍA...
„Það eru allir mjög spenntir fyrir sumrinu, leikmannahópurinn er mjög samstilltur og við erum allir „peppaðir“ fyrir tímabilið í Pepsi-Maxdeildinni,“ segir Árni Snær Ólafsson markvörður og fyrirliði ÍA. Árni segir að leikmenn liðsins finni vel fyrir þeim góða meðbyr sem sé til staðar í samfélaginu á Akranesi. „Það er geggjuð stemning í bæjarfélaginu fyrir liðinu...