Það var fjölmenni í Akraneshöllinni í blíðviðrinu í dag á 17. júní þegar lið Kára og Selfoss léku opnunarleikinn á Íslandsmótinu í 2. deild karla í knattspyrnu. Leikurinn var afar fjörugur og skemmtilegur en alls voru skoruð 7 mörk.
Skagamaðurinn Dean Martin, sem er þjálfari Selfoss, fagnaði 4-3 sigri gegn Kára en liði Selfoss er spáð sigri í deildinni. Skagamaðurinn Þór Llorens Þórðarson er í herbúðum Selfoss en hann samdi við liðið í vetur til tveggja ára.
Eins og áður segir var mikill fjöldi áhorfenda á leiknum eða um 400 manns.
Króatíski framherjinn Hrvoje Tokic gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum en hann hélt upp á 30 ára afmælisdaginn með eftirminnilegum hætti,
Tokic kom Selfossi yfir á 13. mínútu en Andri Júlíusson jafnaði metin fyrir Kára á 25. mínútu úr vítaspyrnu.
Kenan Turudija kom gestunum aftur yfir tíu mínútum síðar.
Eggert Kári Karlsson jafnaði metin fyrir Kára á 52. mínútu áður en Tokic skoraði þriðja mark Selfyssinga og annað mark sitt á 62. mínútu. Tokic fullkomnaði svo þrennuna með marki úr vítaspyrnu fjórum mínútum síðar og það var svo Eggert Kári sem átti lokaorðið í leiknum þegar hann minnkaði muninn í 4:3 með marki í uppbótartíma.
Þetta var fyrsti leikur tímabilsins í 2. deildinni í sumar en Selfyssingum er spáð góðu gengu í deildinni á meðan Káramönnum er spáð um miðja deild.