Badmintonfélag Akraness hefur ráðið Advait Vanarse sem þjálfara hjá félaginu.
Vanarse er frá Indlandi en hann hefur starfað í Bretlandi og í heimalandinu við þjálfun. Vanarse er með meistaragráðu í íþróttasálfræði og BA gráðu í sálfræði.
Vanarse hóf störf í gær og mun hann koma að þjálfun allra flokka hjá félaginu.
Badmintonfélag Akraness hefur einnig ráðið Anítu Sif Flosadóttur og Hilmar Veigar Ágústsson sem aðstoðarþjálfara í 3. og 2. flokki.
Badmintonfélag Akraness hefur góða reynslu af indverskum þjálfurum.
Vanarse fetar í fótspor landa síns, Dipu Ghosh, sem starfaði hjá félaginu á árunum 1983-1991. Dipu Ghosh flutti alfarið á Akranesi árið 1997 og starfaði sem þjálfari hjá félaginu um margra ára skeið.