Í gær kom það fram í fréttum RÚV að Covid-19 smit hafi greinst hjá sex einstaklingum sem tengdust allir fyrirtæki sem er á Akranesi. Það reyndist ekki vera rétt. Samkvæmt heimildum Skagafrétta eru einstaklingarnir sex allir búsettir á Akranesi en þeir tengjast allir fyrirtæki sem...
Íbúar við Jaðarsbraut 33 á Akranesi eru með frábært útsýni úr íbúðum sínum – og það verður enn betra eftir áhugaverðar breytingar sem eru framundan. Húsið, sem var byggt árið 1959, stendur við einn fallegasta útsýnisstað Akraness. Nýverið var umsókn um stækkun og breytingar á...
Alls greindust 18 ný Covid-19 smit í gær hér á landi. Þetta kemur fram á upplýsingavefnum covid.is. Alls voru 852 sýni rannsökuð og hlutfall jákvæðra sýna er 2,1 prósent. Nýgengi innanlandssmita heldur áfram að lækka og er nú 106,1. Á Vesturlandi eru alls 18 einstaklingar...
Alls hafa sex einstaklingar sem hafa allir tengsl við fyrirtæki á Akranesi verið greindir með Covid-19 smit á undanförnum dögum, fjórir í gær, og tveir fyrir nokkrum dögum. Þetta kemur fram í frétt á RÚV. Þetta segir Þórir Bergmundsson, sóttvarnalæknir á Vesturlandi í viðtali við...
„Það eru alltaf áskoranir fyrir fyrirtæki í þessu fagi. Við höfum leyft okkur að vera bjartsýn þrátt fyrir undarlega tíma vegna Covid-19,“ segir Halldór Stefánsson framkvæmdastjóri eins elsta fyrirtækis Akraness við Skagafréttir. Halldór og Stefán Gísli Örlygsson, bróðursonur hans, stýra daglegum rekstri hjá Trésmiðjunni Akri...
Alls greindust 26 ný Covid-19 smit í gær á Íslandi. Af þeim voru 19 í sóttkví. Þetta kemur fram á vefnum covid.is. Nýgengi smita er nú 112,6, á hverja 100.000 íbúa en í gær var það 129. Á Vesturlandi eru 16 í einangrun vegna Covid-19...
Ég hef sett mér markmið að endurtaka þetta á næsta ári og vonandi hef ég heilsu í það verkefni,“ segir Anna Berglind Einarsdóttir sem nýverið náði takmarki sem hún setti sér í byrjun ársins 2020. Anna Berglind gekk 100 ferðir á Guðfinnuþúfu á Akrafjalli og...
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram tillögu á fundi bæjarstjórnar í gær þess efnis að fresta ákvörðun um val á leið við uppbyggingu á Fjöliðjunni, vernduðum vinnu- og hæfingarstað. Fresturinn gefur tækifæri til ítarlegrar skoðunar á uppbyggingaráformum með hliðsjón af breyttu skipulagi á aðliggjandi lóðum og fari...
Alls greindust 11 ný Covid-19 smit á landinu í gær og þar af voru sex aðilar í sóttkví. Frá því um miðjan september hafa ekki greins eins fá Covid-19 smit á einum degi Einn lést á Landspítalanum í gær vegna Covid-19 og alls hafa 24...
Í dag á fréttavefurinn skagafrettir.is afmæli. Vefurinn fór í loftið 10. nóvember árið 2016. Vefurinn er því fjögurra ára. Þessi tími hefur verið fljótur að líða og verkefnið hefur stækkað jafnt og þétt. Frá upphafi hafa jákvæðar fréttir verið uppistaðan í fréttaflórunni á skagafrettir.is. Þær...