Eitt nýtt Covid-19 smit hefur greinst á Vesturlandi undanfarinn sólarhring, samkvæmt nýjum tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu. Er þetta fyrsta smitið í landshlutanum síðan á mánudaginn í síðustu viku, 4. maí. Covid-19 smit greindist á Vesturlandi á síðasta sólarhring samkvæmt upplýsingum...
Í dag tóku forráðamenn Elkem Ísland þá ákvörðun að slökkva á einum af þremur framleiðsluofnum verksmiðjunnar. Ofn 1 verður ekki í notkun í sumar og hefur stöðvunin þær afleiðingar að allir sumarstarfsmenn fyrirtækisins fá ekki vinnu í sumar samkvæmt heimildum Skagafrétta. Starfsmannafjöldinn sem fær ekki...
Heiðar Mar Björnsson og Hlédís Sveinsdóttir halda áfram að beina kastljósinu að áhugaverðu fólki og viðburðum á Vesturlandi í þáttunum Að Vestan á sjónvarpsstöðinni N4. Hreinsun á orgelinu í Akraneskirkju var til umfjöllunar í síðasta þætti Að Vestan. Björgvin Tómasson, orgelsmiður, og kona hans Margrét...
„Í dag stigum við stórt skref í átt að opnun landamæranna. Eigi síðar en 15. júní eiga ferðamenn að geta valið um að fara í COVID-skimun í Leifsstöð við komuna til landsins, eða framvísa jafngildu vottorði, í stað þess að fara í tveggja vikna sóttkví...
Fimleikafélag Akraness skrifaði á dögunum undir samning við danska þjálfarann Henrik Pilgaard. Hann mun hefja störf í ágúst og verður í 100% starfi frá og með haustinu. Pilgaard er 29 ára gamall og hefur mikla reynslu frá störfum sínum hér á landi. Hann hefur komið...
„Eftir að hafa notið þeirra forréttinda að starfa með einstaklega frábæru fólki fyrir Hrafnistu og aldraða í 12 ár, í einhverju skemmtilegasta starfi sem til er, hef ég ákveðið að breyta til og fara í spennandi verkefni með Reykjalundi,“ segir Skagamaðurinn Pétur Magnússon á fésbókarsíðu...
Knattspyrnulið Kára á Akranesi, sem leikur í 2. deild karla á Íslandsmótinu, er í þjálfaraleit. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu félagsins. Jón Aðalsteinn Kristjánsson lét af störfum í síðasta mánuði, en hann tók við þjálfun liðsins í byrjun nóvember s.l. Ástæðan fyrir uppsögn Jóns Aðalsteins...
Það er líf og fjör á Bjarteyjarsandi í Hvalfjarðarsveit þrátt fyrir að ferðamenn séu ekki á svæðinu um þessar mundir. Sauðburður stendur nú sem hæst og hafa litrík lömb fæðst í vor. Þar er á meðal er lambið Sólarhringur sem er með skemmtilega litasamsetningu. Sólarhringur...
Aðsend grein: Í þjóðfélagi þar sem röð og regla ríkir og félagslegt skipulag er viðurkennt dytti ekki nokkrum ráðherra í hug að sýna heilli starfsstétt viðmót eins og grásleppusjómönnum með fyrirvaralausri stöðvun veiða þann 3. maí s.l. Til þessa ráðs grípur ráðherra á krísutímum í...
Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum að veita samtals að hámarki 25,0 mkr. til átaksverkefnis til fjölgunar sumarstarfa fyrir námsmenn en fjárheimildin miðast við ráðningu í alls 50 störf í tvo mánuði. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs. Samþykktin er einnig gerð með fyrirvara um...