Alþjóðlegi hamingjudagurinn í dag. Í tilefni dagsins var haldið málþing í Háskóla Íslands. Á málþinginu kynnti Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri áhrifaþátta heilbrigðis hjá Embætti landlæknis nýjustu niðurstöður mælinga á hamingju Íslendinga. Íbúar á Akranesi eru á meðal þeirra allra hamingjusömustu í þessari rannsókn. Grindavíkingar eru hamingjusamastir...
Miklar öryggisráðstafanir verða gerðar þegar skorsteinn Sementsverksmiðjunnar verður felldur föstudaginn 22. mars næstkomandi klukkan 12:15. Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir að strompurinn yrði felldur fimmtudaginn 21. mars en vegna veðurs hefur aðgerðinni verið frestað um einn sólarhring. Skorsteinninn verður felldur í tveimur hlutum. Efri hlutinn...
„Ég á margar skemmtilegar minningar af Akranesi. Á náttúrulega fjölskyldu þaðan í gegnum ættina hennar mömmu. Ég var mjög oft hjá Ömmu Rannveigu á Vesturgötunni sem barn og er því með sterka taugar til Akraness,“ segir hinn 28 ára gamli Sturlaugur Haraldsson sem er upphafsmaðurinn...
Það er mikill áhugi hjá Skagamönnum á Rock of Ages sem er kraftmikill Brodway söngleikur eftir Chris D’Arienzo. Aðeins örfáir miðar eru eftir á frumsýninguna sem fram fer föstudaginn 22. mars. Sýningin er ein sú stærsta og umfangsmesta sem FVA og Bíóhöllin hafa sett upp. Verkefnið...
Ferðamenn halda áfram að koma á Akranes þrátt fyrir að blikur séu í lofti í þeirri atvinnugrein. Hilmar Sigvaldason, starfsmaður í Akranesvita, tekur á móti mörg þúsund gestum víðsvegar að úr heiminum á hverju ári. Nýverið kom stór hópur af ferðamönnum á vegum Iceland Travel...
´ Miklar breytingar voru gerðar á stjórn Sundfélags Akraness á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Þaulreyndur sundkappi og fyrrum íþróttamaður Akraness, Ágúst Júlíusson, tekur við formennskunni, af Trausta Gylfasyni. Harpa Finnbogadóttir varaformaður og Ingibjörg Júlíusdóttir gengu úr stjórn en í þeirra stað voru...
„Allir áhugasamir um nýsköpun, atvinnu og gott samfélag á Vesturlandi eiga ekki að láta sig vanta á ráðstefnuna á laugardaginn. Okkar er ábyrgðin,“ segir Helena Guttormsdóttir við Skagafréttir. Helena er ein af þeim sem kemur að skipulagningu á málþinginu „Að sækja vatnið yfir lækinn“ sem haldið...
Tveir Skagamenn eru í íslenska landsliðinu í knattspyrnu karla sem mætir Andorra á föstudaginn í undankeppni Evrópumótsins. Það eru þeir Arnór Sigurðsson og Björn Bergmann Sigurðarson en þeir leika báðir í rússnesku úrvalsdeildinni. Arnór er áberandi í viðtölum hjá íslenskum fréttamiðlum sem hafa fylgt liðinu...
Hvað verður um krónurnar okkar sem við greiðum í útsvar eða skatt til Akraneskaupstaðar? Atvinnu- og ferðamál / menningar- og safnamál eru útskýrð í þessu myndbandi. Þetta fimmta myndbandið af alls fimm þar sem að fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar er útskýrð með einföldum hætti. Myndböndin veita upplýsingar...
Um s.l. helgi fór fram lokaumferðin í Meistarakeppni Ungmenna í keilu. Bæði voru veitt verðlaun fyrir umferðina og fyrir samanlagðan áragnur vetrarins. Nær allir keppendur ÍA náðu á pall en allir keppendur stóðu sig frábærlega og oft á tíðum yfir eigin meðaltali. Hér fyrir neðan...