Karlalið ÍA mun leika í næst efstu deild á Íslandsmótinu í knattspyrnu á næstu leiktíð. Jón Þór Hauksson stýrir liðinu sem þjálfari en hann hefur fengið nýjan aðstoðarmann í hlutverk aðstoðarþjálfara. Guðlaugur Baldursson, sem var aðstoðarþjálfari liðins í fyrra verður ekki áfram við störf. Haraldur Árni Hróðmarsson tekur við hlutverki hans – ásamt því að vera teymisstjóri...
Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að setja „Gamla Landsbankahúsið“ við Akratorg í söluferli. Þetta kemur fram í fundargerð ráðsins. Húsið hefur verið nýtt undir ýmsa starfssemi á undanförnum árum en Miðbæjarsamtökin Akratorg hafa lagt mikla áherslu á að húsið fái það hlutverki að vera stjórnsýsluhús bæjarins. Í fésbókarfærslu Miðbæjarsamtakanna kemur eftirfarandi fram. „Hvernig ætli standi á því...
Húsið við Vesturgötu 62 á Akranesi hefur verið mikið í umræðunni á Akranesi á undanförum mánuðum.Bæjaryfirvöld höfðu hug á því að rífa húsið, sem var áður íþróttahús Akurnesinga, en í seinni tíð hefur nytjamarkaðurinn Búkolla verið með starfsstöð þar. Ástand hússins er ekki gott og starfssemi Búkollu var hætt þar sem að húsnæðið uppfyllti ekki...
Bæjarráð Akraness hefur lýst yfir áhuga á að endurgera Árnahús við Sólmundarhöfð.Í bókun ráðsins kemur fram að verkefnið gæti orðið að samfélagsverkefni þar sem að ýmsir aðilar myndu leggja hönd á plóginn.Í fundargerð frá síðasta fundi ítrekar bæjarráð vilja sinn til endurgerðar Árnahúss í samvinnu við Minjastofnun Íslands og að framkvæmdinni verði háttað þannig að...
Sundfólk úr röðum Sundfélags Akraness náði góðum árangri á Alþjóðlega mótinu Reykjavík International sem fram fór um liðna helgi.Alls tóku um 330 keppendur þátt frá 16 löndum – þar á meðal keppendur sem hafa tekið þátt á Ólympíuleikum – heimsmeistara- og Evrópumeistaramótum.Keppendur frá ÍA voru alls 12. Þar náðust m.a. lágmörk fyrir Evrópumeistaramót unglinga, 5...
Skagaskaupið hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli – þegar það er frumsýnt á Þorrablóti Skagamanna. Að þessu sinni var Skagaskaupið í höndum 1982 árgangsins.
Akraneskaupstaður hefur á undanförnum mánuðum undirbúið að setja upp grenndarstöðvar á þremur stöðum á Akranesi. Á hverri grenndargámastöð verða gámar fyrir málma, gler, pappi/pappír og plast. Einnig verður möguleiki á að bæta við ílátum fyrir fleiri flokka svo sem textíl, flöskur/dósir, kertavax, rafhlöður og fleira. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs sem fram fór þann 16....
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna í dag, mánudaginn 30. janúar, vegna veðurs. Boðað hefur verið til samráðfundar Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra en viðbúið þykir að Samhæfingarstöð Almannavarna verði virkjuð gangi veðurspár eftir.Vegurinn um Kjalarnes gæti lokast með stuttum fyrirvara eins og fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Kjalarnes: Í dag, mánudaginn 30. janúar verður Kjalarnes á óvissustigi...
Nemendur og starfsfólk Grundaskóla hafa á undanförnum tveimur árum verið á ýmsum stöðum í bæjarfélaginu í skólastarfinu. Húsnæðismál skólans hafa verið mikið til umfjöllunar – en framundan er risavaxið verkefni við allsherjarendurbætur á elstu skólaálmu Grundaskóla (C-álmu). Tilboð í það verkefni verða opnuð á allra næstu dögum. Lausar kennslustofur við Grundaskóla hafa verið settar upp til þess...
Nýverið hófust flutningar frístundar Grundaskóla yfir í húsnæðið sem áður hýsi leikskólann Garðasel. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Grundaskóla. Þar kemur fram að unnið verði að ýmsum endurbótum á húsnæðinu á næstu dögum. Breytingarnar sem verða á frístundastarfinu verða byltingarkenndar segir í frétt á vef skólans – en Grundasel er nafnið á frístundarhúsinu. Starfsemi leikskólans...