Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að dælubíll fyrir Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar verði keyptur. Öryggistækið mun kosta 92 milljónir kr. sem er 22 milljónum kr. yfir kostnaðaráætlun bæjarins. Ólafur Gíslason & Co var eina fyrirtækið sem lagði inn tilboð í rammaútboði ríkiskaupa sveitarfélaga vegna kaupa á dælubílum fyrir starfsemi slökkviliða. Akraneskaupstaður tók þátt í þessu útboði....
Það var mikið um að vera í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í dag þegar Tæknimessa FVA fór fram. Markmið Tæknimessu er að kynna það nám sem er í boði í Fjölbrautaskóla Vesturlands á sviði iðn- og verkgreina og þau tækifæri sem bjóðast til atvinnu hjá iðn- og tæknifyrirtækjum í landshlutanum að loknu námi. Þetta kemur...
Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 hafa uppsjávarskip landað tæplega 39 þúsund tonnum í Akraneshöfn. Þar að auki hafa rúmlega 2 þúsund tonn af hrognum farið í gegnum vinnslu á Akranesi. Fyrsta löndunin á þessu ári var 11. janúar þegar Venus NS 15 kom með um 2 þúsund tonn af loðnu á Akranes. Til samanburðar...
Akraneskaupstaður mun ekki fara í sérstakt ráðningarátak hvað varðar sumarafleysingar hjá Akraneskaupstað. Þetta kemur fram í fundargerð frá bæjarráði. Á þeim fundi var greinargerð frá mannauðsstjóra vegna mögulegra sumarafleysinga hjá Akraneskaupstað til umfjöllunar. Í fundargerðinni kemur eftirfarandi fram: „Undanfarin tvö ár hefur ríkið verið með sérstakar stuðningsaðgerðir vegna COVID-19 áhrifa á vinnumarkaðinn (atvinnuátak) og greitt...
Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að kaupa hús sem stendur við Aggapall við Langasand. Fram kemur í fundargerð ráðsins að stefnt er að áframhaldandi nýtingu mannvirkisins í þágu starfsemi Akraneskaupstaðar og íþróttahreyfingarinnar en húsið er víkjandi á skipulagi vegna hugmynda um frekari uppbyggingu á Langasandsreitnum. Haraldur Sturlaugsson er eigandi hússins sem hefur verið nýtt undir margskonar...
Bæjarrráð Akraness hefur samþykkt að greiða 500.000 kr. fyrir þátttöku í þáttunum „Að Vestan“ sem sýndir eru á sjónvarpsstöðinni N4. Þetta kemur fram í fundargerð frá síðasta fundi bæjarráðs. Þættirnir „Að Vestan“ hafa notið mikilla vinsælda – en þættirnir eru hugarfóstur Heiðars Mars Björnssonar og Hlédís Sveinsdóttir hefur verið í stjórnendahlutverki þáttanna á undanförnum misserum....
Tveir ungir leikmenn úr röðum ÍA eru þessa stundina við æfingar hjá danska knattspyrnuliðinu FCK í Kaupmannahöfn. Það eru þeir Haukur Andri Haraldsson og Daniel Ingi Jóhannesson. Haukur Andri er fæddur árið 2005 og Daniel Ingi er fæddur árið 2007 – og eru þeir báðir samningsbundnir ÍA. Það ætti að fara vel um þá Hauk...
Keppendur úr röðum ÍA náðum frábærum árangri á Íslandsmóti unglinga í badminton sem fram fór um s.l. helgi. Mótið fór fram í aðstöðu TBR í Reykjavík. Leikmenn úr röðum ÍA lönduðu alls 7 Íslandsmeistaratitlum og einum gullverðlaunum í U11 B. Máni Berg Ellertsson varð þrefaldur Íslandsmeistari U15.Guðrún Margrét Halldórsdóttir varð tvöfaldur Íslandsmeistari Í tvíliða- og...
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2022 fór fram á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 23. mars. Skagakonan Bjarnheiður Hallsdóttir, sem hefur gegnt formennsku í samtökunum var endurkjörin sem formaður til næstu tveggja ára. Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) eru hagsmunasamtök allra fyrirtækja sem starfa í ferðaþjónustu. Samtökin voru stofnuð 11. nóvember 1998 og eru byggð á grunni Sambands veitinga-...
Kór Akraneskirkju verður með „opið hús“ á næstu æfingu kórsins, þriðjudaginn 29. mars. Æfingin fer fram í Vinaminni. Í tilkynningu frá kórnum kemur fram að allir áhugasamir séu velkomnir og sérstaklega þeir sem hafa áhuga á að ganga til liðs við kórinn. Kaffi, konfekt, fræðsla um kórstarfið og skemmtileg tónlist í boði. Æfingin hefst eins...