Muninn kvikmyndagerð á Akranesi og FVA á Akranesi voru á meðal þeirra sem fá úthlutað úr samfélagsstyrkjasjóði Krónunnar þetta árið. Muninn hefur komið að framkvæmdinni á Jólagleði í Garðalundi og Heilsuvika FVA fékk einnig úthlutun úr sjóðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Krónunni. Krónan hefur nú úthlutað um sjö milljónum króna til 25 verkefna...
Haukur Guðlaugsson, fyrrum söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, varð níræður á árinu, nánar til tekið 5. apríl s.l. Af þessu tilefni verður efnt til vandaðra tónleika Hauki til heiðurs og verða þeir í Hallgrímskirkju sunnudaginn 31. október kl. 17.00. Frá þessu er greint á vef Þjóðkirkjunnar. Haukur var skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi 1960–1974. Þá var hann einnig organisti...
Menningarverðlaun Akraness voru afhent í gær þegar Vökudagar voru formlega settir. Þremenningarnir Flosi Einarsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Einar Viðarsson hlutu menningarverðlaun Akraness fyrir framlag sitt til listgreina innan skólasamfélagsins. Þeir hafa frumsamið og leikstýrt fjölda söngleikja við fádæma undirtektir. Fyrst var Frelsi sýnt, en höfundar þess voru Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson. Einar...
Það eru 15 einstaklingar á Akranesi með Covid-19 smit og 18 eru í sóttkví samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Á Vesturlandi eru alls 49 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og þar af 25 í Búðardal. Tæplega 100 eru í sóttkví í landshlutanum. Ekkert smit er til staðar í tveimur þéttbýliskjörnum á Vesturlandi.
Tæplega 100 einstaklingar greindust með Covid-19 smit á síðasta sólarhring samkvæmt upplýsingum á vefnum covid.is. Á landinu öllu eru 840 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og þar af eru 47 á Vesturlandi. Í sóttkví eru 175 einstaklinga á Vesturlandi og alls eru tæplega 1800 einstaklingar í sóttkví í landshlutanum. Ekki hafa verið gefnar út...
Einn leikmaður úr röðum ÍA er í æfingahóp U-17 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu sem kemur saman til æfinga 3.-5. nóvember. Magnús Örn Helgason er þjálfari liðsins en næstu verkefni liðsins eru vorið 2022 í undankeppni Evrópumótsins 2022. Lilja Björk Unnarsdóttir leikmaður ÍA er í þessum æfingahóp sem er skipaður 25 leikmönnum. Leikmennirnir koma frá...
Aldís Ylfa Heimisdóttir verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu hjá ÍA og þjálfari 2. flokks kvenna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Knattspyrnufélagi ÍA. Magnea Guðlaugsdóttir var nýverið ráðin sem aðalþjálfari mfl. kvenna en liðið leikur í 2. deild á næsta tímabili eða þriðju efstu deild. Aldís Ylfa er þaulreyndur þjálfari þrátt fyrir ungan aldur....
Skagamaðurinn Jóhannes Harðarson verður næsti aðstoðarþjálfari karlaliðs ÍA í knattspyrnu samkvæmt heimildum hlaðvarpsþáttarins Þungavigtin – sem er hluti af fjölmiðlarisanum SÝN. Kristján Óli Sigurðsson – einn af þáttastjórnendum Þungavigtarinnar sagði í þættinum í dag að Jóhannes verði næsti aðstoðarþjálfari mfl. ÍA og fái án efa stærra hlutverk innan félagsins. Jóhannes Karl Guðjónsson, aðalþjálfari karlaliðs ÍA...
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. til 28. nóvember 2021. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Syndum...
Dróni er ómannað loftfar sem er fjarstýrt, því er flogið með notkun fjarstýribúnaðar. Gísli Jens Guðmundsson hefur á undanförnum mánuðum tekið fjölmargar ljósmyndir af Akranesi með slíku loftfari. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr safni „Gísla Rakara“ sem hann tók í byrjun október. Akranes 2021. Mynd/Gísli G. Akranes 2021. Mynd/Gísli G. Akranes 2021. Mynd/Gísli...