Guli liturinn hefur verið einkennismerki ÍA í langan tíma en Íþróttabandalag Akraness var stofnað árið 1946. En hvers vegna var guli liturinn fyrir valinu?, og kemur Dortmund í Þýskalandi við sögu í valinu á litnum? Skagafréttir leituðu að sjálfsögðu í sagnabrunninn Jón Gunnlaugsson til þess að fá úr þessu skorið. Jón var leiftursnöggur að svara...
Heilbrigðisráðherra kynnti áformaðar breytingar vegna Covid-19 takmarkan á fundi ríkisstjórnar í morgun. Byggt er á meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra þar sem tilgreindir eru þrír valkostir afléttinga á sóttvarnaráðstöfunum innanlands, þ.e. full aflétting allra sóttvarnaaðgerða, aflétting að hluta eða óbreyttar aðgerðir. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðs Íslands. Almennar fjöldatakmarkanir verða 2.000 manns, grímuskyldu...
Knattspyrnufélag ÍA hélt veglegt lokahóf eftir bikarúrslitaleik meistaraflokks karla s.l. laugardag. Á hófinu voru veittar viðurkenningar í meistaraflokki karla – og kvenna og einnig í 2. flokki karla – og kvenna. Eftirtaldir leikmenn fengu verðlaun. Meistaraflokkur karla: Bestur: Ísak Snær ÞorvaldssonBesti ungi leikmaðurinn: Árni Marinó Einarsson. Meistaraflokkur kvenna Best: Dana Scheriff.Besti ungi leikmaðurinn: Anna Þóra...
Skagafrettir.is hefur frá upphafi verið opinn fréttavefur og markmiðið er að halda áfram á þeirri vegferð. Áhugi á efninu er til staðar. Mörg þúsund heimsóknir á hverjum degi á skagafrettir.is staðfestir að lesendur hafa áhuga á jákvæðum fréttum úr nærsamfélaginu. Þú kæri lesandi getur tekið þátt í að efla fréttavefinn skagafrettir.is með þínu framlagi. Slíkur...
Skoski varnarmaðurinn Alex Davey lét mikið að sér kveða með Knattspyrnufélagi ÍA á sínu fyrsta tímabili sem leikmaður ÍA. Davey var einn af lykilmönnum ÍA í sumar og átti hann stóran þátt í því að liðið hélt sæti sínu í deild þeirra bestu og komst í úrslitaleik bikarkeppnin KSÍ. Davey, sem er 26 ára gamall,...
Leikmenn og stjórnendur Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi héldu uppskeruhátíð um s.l. helgi þar sem að veittar voru ýmsar viðurkenningar. Viðburðurinn er sögulegur þar sem að um var að ræða uppskeruhátíð s.l. tveggja tímabila 2020 og 2021. Það voru því fjölmargar viðurkenningar veittar á lokahófinu. Úrslit 2021 Leikmaður ársins: Marinó Hilmar ÁsgeirssonEfnilegasti leikmaður Kára: Breki Þór...
Sambandsþing Ungmennafélags Íslands fór fram á Húsavík um helgina. Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness, var kjörin í varastjórn UMFÍ á þinginu. Þetta er í fyrsta sinn sem fulltrúar frá íþróttabandalagi setjast í stjórn UMFÍ því íþróttabandalögin fengu aðild að UMFÍ árið 2019. Málfríður Sigurhansdóttir frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur var einnig kjörin í stjórn UMFÍ. Jóhann Steinar...
ÍA og Víkingur áttust við í dag í úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ í karlaflokki í knattspyrnu. Þetta er í fyrsta sinn sem liðin eigast við í úrslitum bikarkeppninnar. Víkingar höfðu betur 3-0 og fögnuðu bikarmeistaratitlinum í þriðja sinn. Staðan var 2-0 í hálfleik en Skagamenn náðu fínum köflum í leiknum og fengu góð færi til þess...
„Við erum ekki aukaleikarar í lélegri bíómynd (eins og fjölmiðlar og sumir mótherjar vilja halda), við erum ÍA,“ skrifar Eggert Hjelm Herbertsson formaður Knattspyrnufélags ÍA á fésbókarsíðu sína í morgun. Karlalið ÍA leikur til úrslita gegn Víkingum úr Reykjavík á Laugardalsvelli í dag kl. 15 og segir formaðurinn að framundan sé spennandi dagur hjá Skagamönnum....
Það er enn hægt að kaupa miða á bikarúrslitaleik ÍA og Víkings úr Reykjavík í Mjólkurbikarkeppni karla – en leikurinn hefst kl. 15 í dag á Laugardalsvelli. Athygli er vakinn á því að miðar eru aðeins seldir á Tix.is. – það er því ekki miðasala á Laugardalsvelli fyrir leik. Engar takmarkanir eru á fjölda áhorfenda...