Skagamaðurinn Arnór Smárason samdi í dag við Íslandsmeistaralið Vals í knattspyrnu. Arnór kemur til Vals frá norska félaginu Lillestöm. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Valsmanna. Arnór gerir tveggja ára samning við félagið en hann er 32 ára og hefur leikið sem atvinnumaður frá árinu 2004. Skagamaðurinn fór á sínum tíma til hollenska félagsins Heerenveen þegar...
Alls voru átta Covid-19 smit greind í gær og voru sjö þeirra í sóttkví. Þetta er annar dagurinn í röð þar sem að átta Covid-19 smit greinast á landinu. Rétt rúmlega 820 sýni voru tekin. Á Vesturlandi er staðan óbreytt hvað varðar einstaklinga í einangrun vegna Covid-19. Alls eru 7 í einangrun vegna Covid-19 smits...
Í dag var níundi glugginn opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“. Það er óhætt að segja að verkefnið hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgjast með á hverjum einasta degi. Í dag, miðvikudaginn 9. desember, syngja vinkonurnar Rakel og María lagið Jólin, jólin allstðar. Lagið er eftir Jón „Bassa“ Sigurðss...
Jón Þór Hauksson er hættur sem þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Knattspyrnusamband Íslands sendi frá sér í dag. Í tilkynningunni kemur fram að um samkomulag sé að ræða. Undir stjórn Jóns Þórs tryggði Ísland sér sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins sem fram fer á Englandi 2022. KSÍ og Jón Þór...
Þorrablót Skagamanna hefur frá árinu 2011 verið fastur hluti af tilveru Akurnesinga nær og fjær. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu vegna Covid-19 hafa margir velt því fyrir sér hvort Þorrablótið fari fram – og ef svo er þá hvar, hvenær og hvernig? Árgangur 1979 er með verkefnið í sínum höndum og þar á bæ er...
Alls geindust 8 einstaklingar með Covid-19 veiruna í gær á Íslandi . Tveir þeirra voru ekki í sóttkví. Virkum smitum fer fækkandi á landinu og fækkað þeim um tíu frá því í gær. Einn sjúklingur lést í gær á Landspítala vegna Covid-19. Alls hafa 28 einstaklingar sem greinst hafa með Covid-19 látist á þessu ári...
Í dag var áttundi glugginn opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“. Það er óhætt að segja að verkefnið hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgjast með á hverjum einasta degi. Akranes og Steinn Steinarr koma við sögu í dag þar sem að einn af Fjallabræðrunum, Sveinbjörn Hafsteinsson syngur lag eftir...
Hrossræktarbúið Skipaskagi er eitt af þrettán slíkum búum sem tilnefnd eru sem hrossaræktarbú ársins 2020. Það er fagráð í hrossarækt sem stendur að þessari tilnefndingu. Hjónin Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir hafa á undanförnum árum byggt upp myndarlegt ræktunarbú á bænum Litlu-Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit. Börn þeirra Jóns og Sigurveigar eru afar ánægð með tilnefninguna og...
Norska liðið Lillestrøm leikur i efstu deild á næsta tímabili. Með liðinu leika þrír leikmenn frá Akranesi, Arnór Smárason, Tryggvi Hrafn Haraldsson og Björn Bergmann Sigurðarson. Tryggvi Hrafn tryggði Lillestrøm stig í gær þegar hann jafnaði leikinn gegn Ham/Kam í 1-1 jafntefli. Leikmenn Lillestrøm fögnuðu áfanganum saman í dag þegar ljóst var að liðið væri...
Allar líkur eru á því að fjarkennslusnið verði í janúar og febrúar hjá nemendum í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þetta kemur fram í skilaboðum sem nemendur fengu frá skólameistaranum í síðustu viku. Í skilaboðunum frá Steinunni Ingu Óttarsdóttur þakkar hún nemendum fyrir að sýna þolgæði og æðruleysi í mótlæti á haustönn 2020. „Nú lítur út fyrir að...