Tvö ný Covid-19 smit voru greind á Akranesi í gær samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Alls eru 15 í einangrun á Akranesi vegna Covid-19 og 13 til viðbótar í sóttkví. Á Vesturlandi öllu eru 19 í einangrun vegna Covid-19 og 32 eru í sóttkví. Á landinu öllu greindust 45 innanlandssmit og 24 þeirra voru...
Lokahóf yngri flokka 2020 hjá Knattspyrnufélagi ÍA var með óhefðbundnu sniði að þessu sinni. Athöfnin fór fram í hátíðarsal ÍA þar sem að iðkendur tóku á móti sínum viðurkenningum – en aðrir iðkendur voru ekki viðstaddir vegna fjöldatakmarkana. Donnabikarinn og Stínubikarinn voru einnig afhentir. Ólafur Haukur Arilíusson fékk Donnabikarinn og Dagbjört Líf Guðmundsdóttir fékk Stínubikarinn....
„Á meðan þetta er í gangi hjá okkur viljum við minna fólk á að huga að eigin sóttvörnum því þetta er oft mun nær en maður áttar sig á eða gerir sér grein fyrir. Við vonum að þið getið sýnt okkur góðan skilning og hlökkum til að halda áfram þegar við komumst af stað aftur....
Skagmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson hefur vakið athygli fyrir framgöngu sína hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Norrköping. Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára hefur Ísak fengið tækifæri með aðalliði félagsins og látið að sér kveða í markaskorun og í að búa til mörk fyrir liðsfélaga sína. Hann hefur skorað þrjú mörk á tímabilinu og lagt upp sjö....
Alls greindust 42 einstaklingar með Covid-19 veiruna á Íslandi í gær, þar af voru 11 ekki í sóttkví. Mun færri sýni voru tekin í gær en að öllu jöfnu eða rétt rúmlega 800. Alls greindust 22 smit greindust á landamærunum í gær og aldrei hafa jafnmargir greinst þar. Í dag eru 27 einstaklingar á sjúkrahúsi...
Bæjarstjórn Akraness lagði fram á síðasta fundi sínum breytingatillögu á aðalskipulagi vegna nýbyggingar sem N1 hefur í hyggju að reisa á lóð við Hausthúsatorg, norðan Akranesvegar. Breytingin tengist samkomulagi sem Akraneskaupstaður gerði við Festi hf. Í samkomulaginu felst að bæjarfélagið leysi til sín lóðir N1 við Þjóðbraut og Dalbraut – og að fyrirtækið flytji starfsemi...
Ólafur Adolfsson, lyfjafræðingur, á Akranesi hefur fest kaup á Apóteki Ólafsvíkur. Ólafur er frá Ólafsvík og segir hann í færslu á fésbókinni að hann muni taka við rekstrinum á nýársdag 2021. „Ég hlakka til að takast á við þetta verkefni og leggja mitt af mörkum inn í samfélagið í Snæfellsbæ,“ skrifar Ólafur. Apótek Ólafsvíkur hefur...
Alls greindust 52 innanlands með COVID-19 í gær. Tæplega 80% þeirra sem greindust með veiruna voru í sóttkví. Alls eru 26 einstaklingar á sjúkrahúsi vegna veikinda af völdum Covid-19 og þar af eru fjórir á gjörgæslu. Alls voru 1.856 sýni tekin í gær. Á Akranesi eru 13 í einangrun og 15 í sóttkví. Á Vesturlandi...
Brynhildur Björg Jónsdóttir, skólastjóri Vallarsels skrifar: Undanfarnir mánuðir hafa verið ótrúlegir og ein stór áskorun í íslensku skólastarfi, þegar allt starf breyttist á einni nóttu. S.l. vetur og vor var talað um fordómalausa tíma en nú er þetta ástand komið til að vera þar til kemur bólefni á markað. Í Vallarseli sem og í öðrum...
Akraneskaupstaður fékk á dögunum þriggja mánaða styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna til verkefnisins: Ríkidæmi náttúrulegra stranda og tækifæri til aukinnar lýðheilsu „The riches of natural beaches and an opportunity to increase public health“. Góð útivistarsvæði og snerting við náttúruna, er talin lykilatriði þegar kemur að heilsu og vellíðan. Hugmyndin um að viðvera við sjávarsíðuna sé heilsubætandi, er ekki...