Kvennalið ÍA og Augnabliks áttust við s.l. laugardag í 16-liða úrslitum í Mjólkurbikarkeppni Knattspyrnusambands Íslands. Leikurinn var æsispennandi og úrslitin réðust í síðustu sókn leiksins. Erla Karitas Jóhannesdóttir kom ÍA yfir með marki á 27. mínútu, en Björk Bjarnadóttir jafnaði metin fyrir Augnablik á 74. mínútu. Það stefndi allt í sigur Augnabliks þegar dæmd var...
Karlalið ÍA tyllti sér í annað sætið í Pepsi-Max deildinni í knattspyrnu í gær með 4-0 sigri á nýliðum Gróttu á Seltjarnarnesi. Þetta var í fyrsta sinn sem liðin eigast við í efstu deild karla. Skagamenn gerðu út um leikinn á fyrstu 34. mínútunum með fjórum frábærum mörkum. Viktor Jónsson skoraði strax á 4. mínútu,...
„Ég sló með 4-járni og við héldum að boltinn hefði farið framhjá holunni. Þegar við gengum inn á flötina sáum við ekki boltann og það var ánægjulegt að sjá boltann ofaní holunni. Þar með lauk 54 ára bið eftir þessu draumahöggi,“ segir Jón Smári Svavarsson sem gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi...
Hannes Marinó Ellertsson og Valdís Þóra Jónsdóttir eru Akranesmeistarar í golfi 2020. Meistaramóti Leynis lauk í gær en metfjöldi tók þátt eða rétt rúmlega 140 kylfingar og þar af 38 konur sem er metþátttaka. Hér fyrir neðan eru helstu úrslit og myndir af verðlaunahöfum frá lokahófinu sem fram fór á Garðavöllum í gær. Nánari úrslit...
Meistaramót Leynis 2020 eða Akranesmeistaramótið stendur nú sem hæst en úrslit ráðast á laugardag þegar lokaumferðin fer fram. Metfjöldi keppenda tekur þátt en rúmlega 140 keppendur eru skráðir til leiks. Keppt er í fjölmörgum flokkum og er hægt að fylgjast með gangi mála með því að smella hér. Hér eru myndir frá 1. keppnisdegi en...
Hreyfistöðvar í Garðalundi voru opnaðar með formlegum hætti þann 7. júlí s.l. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri fékk þann heiður að opna verkefnið. Um er að ræða ellefu upplýsingaskilti með leiðbeiningum um æfingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Hreyfistöðvarnar er hluti af verkefninu heilsueflandi samfélagi á Akranesi sem er samstarfsverkefni Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness....
Leikmenn Kára fengu góðan stuðning í gær í Akraneshöllinni þegar topplið 2. deildar, Kórdrengir, mætti liði Kára á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Um 300 áhorfendur mættu á leikinn á afmælisdegi þjálfarans Gunnars Einarssonar. Þetta var fjóri leikur beggja liða í 2. deildinni. Fyrir leikinn hafði lið Kórdrengja unnið allar þrjár viðureignir sínar. Kári var með eitt...
Keppendur úr Sundfélagi Akraness sýndu góð tilþrif og náðu góðum árangri á Aldursflokkameistaramóti Íslands 2020. Alls tóku 18 keppendur frá ÍA þátt og í liðakeppninni endaði ÍA i 6. sæti. Alls tóku 20 sundlið þátt í mótinu og voru keppendur 285. AMÍ fór að þessu sinni fram í Hafnarfirði dagana 3.-5. júlí. AMÍ er liða...
ÍA landaði sínum fyrsta sigri á Íslandsmótinu í knattspyrnu kvenna í kvöld á Akranesvelli. ÍA lagði Völsung frá Húsavík 4:0. Fyrir leikinn hafði ÍA gert þrjú jafntefli og var þetta fyrsti leikurinn þar sem að liðið fær ekki á sig mark. Með sigrinum er ÍA með 6 stig eftir 4 umferðir en liðið er í...
Meistaramót Golfklúbbsins Leynis stendur nú sem hæst en yngstu kylfingar klúbbsins luku leik í dag. Aðrir flokkar hefja keppni á miðvikudag og er metþátttaka í meistaramótinu þetta árið. Hér eru myndir frá keppni í yngstu aldursflokkunum sem teknar voru af Skagafréttum í blíðviðrinu á Garðavelli í dag.