Það var frekar einfalt mál fyrir Pétur Ottesen að smala saman hópnum sem fermdist í Innri-Hólms kirkju þann 18. maí árið 1980. Eins og sjá má á myndinni voru fermingardrengirnir fjórir alls. Engar stúlkur voru á fermingaraldri í Innr-Akraneshrepp hinum forna á þessum tíma. Pétur segir að fyrir nokkru síðan hafi fermingarbræðurnir ákveðið að endurtaka...
Akraneskaupstaður fékk nýverið 35 störfum úthlutað í sérstöku sumarátaksverkefni fyrir námsmenn 18 ára og eldri. Ríkisstjórn Íslands stendur að þessu verkefni en samtals voru 1000 störfum úthlutað til sveitarfélaga. Markmiðið er að fjölga tímabundið störfum fyrir þennan markhóp þar sem þau eiga engan eða takmarkaðan rétt til atvinnuleysisbóta. Í dag auglýsti Akraneskaupstaður alls 20 störf...
„Útiguðsþjónustur hafa færst í vöxt á undanförnum áratugum, en það má kannski segja að með aukinni þekkingu og meðvitund kirkjunnar á umhverfismálum hafi vaknað enn frekari áhugi á útiguðsþjónustum.,“ segir Sr. Jónína Ólafsdóttir prestur í Garðaprestakalli. Á Uppstigningardag verður útiguðsþjónusta í Garðalundi og að sögn Jónínu er það kjörið tækifæri til þess að njóta góðrar...
Norðurálsmótið í knattspyrnu er einn af stærstu viðburðum sumarsins á Akranesi. Mótið mun fara fram dagana 19.-21. júní og verður það með sama sniði og undanfarin ár. Í ár verður boðið upp á nýja upplifun fyrir allra yngstu keppendurnar í 8. flokki. Það er „dagsmót“ sem fram fer 18. júní og er ætlað fyrir drengi...
Knattspyrnufélag ÍA og Tölvuþjónustan ehf. gerðu nýverið með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára. Tölvuþjónustan ehf. er öflugt upplýsingatæknifyrirtæki með aðsetur á Akranesi. Fyrirtækið sérhæfir sig í hýsingu á tölvubúnaði, rekstrarþjónustu og skýjalausnum. Tölvuþjónustan ehf. var stofnað árið 2014 en byggir á gömlum og traustum grunni frá fyrirtækjum á borð við SecureStore og Keep It...
Gunnar Smári Jónbjörnsson og Lilja Kjartansdóttir hafa vakið athygli fyrir „kalda pottinn“ sem Gunnar Smári setti upp í garðinum hjá þeim á Vesturgötunni. Framkvæmdin var til umfjöllunar í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í gær. Hin þaulreynda sjónvarpskona „Vala Matt“ kom í heimsókn til Gunnars og Lilju og ræddi við þau um nýja...
Lögreglan á Vesturlandi birti í dag nýjustu tölurnar varðandi Covid-19 smit á Vesturlandi. Staðan er óbreytt frá því í gær og ekkert nýtt smit var greint í landshlutanum. Alls hafa 43 smit verið greind á Vesturlandi frá því að greining á Covid-19 veirunni hófst. Aðeins 2 eru í einangrun á Vesturlandi -og eru þeir báðir...
Í byrjun apríl sl. kynnti Akraneskaupstaður viðspyrnu sveitarfélagins vegna heimsfaraldursins covid-19. Ein af aðgerðum Akraneskaupstaðar var að auka fjárveitingu til viðhalds og framkvæmda á árinu 2020. Við fjárhagsáætlunargerð ársins 2020 samþykkti bæjarstjórn Akraness heildarfjárfestingar að fjárhæð 1.506 m.kr. Þann 7. maí sl. samþykkti bæjarráð Akraness flýtiframkvæmdir sem var aukning við áðurnefnda fjárhæð um alls kr....
Eitt nýtt Covid-19 smit hefur greinst á Vesturlandi undanfarinn sólarhring, samkvæmt nýjum tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu. Er þetta fyrsta smitið í landshlutanum síðan á mánudaginn í síðustu viku, 4. maí. Covid-19 smit greindist á Vesturlandi á síðasta sólarhring samkvæmt upplýsingum sem Lögreglan á Vesturlandi birti í dag. Smitið greindist á...
Í dag tóku forráðamenn Elkem Ísland þá ákvörðun að slökkva á einum af þremur framleiðsluofnum verksmiðjunnar. Ofn 1 verður ekki í notkun í sumar og hefur stöðvunin þær afleiðingar að allir sumarstarfsmenn fyrirtækisins fá ekki vinnu í sumar samkvæmt heimildum Skagafrétta. Starfsmannafjöldinn sem fær ekki vinnu í sumar er á bilinu 20-30 samkvæmt sömu heimildum....