Heiðar Mar Björnsson og Hlédís Sveinsdóttir halda áfram að beina kastljósinu að áhugaverðu fólki og viðburðum á Vesturlandi í þáttunum Að Vestan á sjónvarpsstöðinni N4. Hreinsun á orgelinu í Akraneskirkju var til umfjöllunar í síðasta þætti Að Vestan. Björgvin Tómasson, orgelsmiður, og kona hans Margrét Erlingsdóttir, hafa á undanförnum vikum hreinsað kirkjuorgelið í Akraneskirkju. Verkið...
„Í dag stigum við stórt skref í átt að opnun landamæranna. Eigi síðar en 15. júní eiga ferðamenn að geta valið um að fara í COVID-skimun í Leifsstöð við komuna til landsins, eða framvísa jafngildu vottorði, í stað þess að fara í tveggja vikna sóttkví eins og nú er skylt,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir...
Fimleikafélag Akraness skrifaði á dögunum undir samning við danska þjálfarann Henrik Pilgaard. Hann mun hefja störf í ágúst og verður í 100% starfi frá og með haustinu. Pilgaard er 29 ára gamall og hefur mikla reynslu frá störfum sínum hér á landi. Hann hefur komið að þjálfun landsliða Íslands í hópfimleikum. Á síðsutu árum hefur...
„Eftir að hafa notið þeirra forréttinda að starfa með einstaklega frábæru fólki fyrir Hrafnistu og aldraða í 12 ár, í einhverju skemmtilegasta starfi sem til er, hef ég ákveðið að breyta til og fara í spennandi verkefni með Reykjalundi,“ segir Skagamaðurinn Pétur Magnússon á fésbókarsíðu sinni. Tilkynnt var í dag að Pétur verði nýr forstjóri...
Knattspyrnulið Kára á Akranesi, sem leikur í 2. deild karla á Íslandsmótinu, er í þjálfaraleit. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu félagsins. Jón Aðalsteinn Kristjánsson lét af störfum í síðasta mánuði, en hann tók við þjálfun liðsins í byrjun nóvember s.l. Ástæðan fyrir uppsögn Jóns Aðalsteins eru breyttar vinnuaðstæður hjá honum vegna Covid19 ástandsins. Forráðamenn Kára...
Það er líf og fjör á Bjarteyjarsandi í Hvalfjarðarsveit þrátt fyrir að ferðamenn séu ekki á svæðinu um þessar mundir. Sauðburður stendur nú sem hæst og hafa litrík lömb fæðst í vor. Þar er á meðal er lambið Sólarhringur sem er með skemmtilega litasamsetningu. Sólarhringur er með hvítan lit í aðallit og hálfsvartan haus. Á...
Aðsend grein: Í þjóðfélagi þar sem röð og regla ríkir og félagslegt skipulag er viðurkennt dytti ekki nokkrum ráðherra í hug að sýna heilli starfsstétt viðmót eins og grásleppusjómönnum með fyrirvaralausri stöðvun veiða þann 3. maí s.l. Til þessa ráðs grípur ráðherra á krísutímum í efnahags- og atvinnulífi þegar verið er að róa lífróður á...
Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum að veita samtals að hámarki 25,0 mkr. til átaksverkefnis til fjölgunar sumarstarfa fyrir námsmenn en fjárheimildin miðast við ráðningu í alls 50 störf í tvo mánuði. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs. Samþykktin er einnig gerð með fyrirvara um samþykki Alþingis á fjáraukalögum. Akraneskaupstaður þarf að sækja um ráðningarheimild...
Ærslabelgurinn við Akraneshöll er nú stútfullur af lofti og klár í gleðina með yngri kynslóðinni á Akranesi. Þetta vinsæla leiktæki er opinn frá 8.00 – 23.00 á tímabilinu maí – september. Í tilkynningu frá Akraneskaupstað eru foreldrar hvattir til þess að fara yfir helstu reglur varðandi umgengi á þessu svæði – og er markmiðið að...
Matvælastofnun varar við tínslu á kræklingi úr Hvalfirði. DSP þörungaeitur greindist yfir viðmiðunarmörkum í honum. Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar. Fulltrúi Matvælastofnunar safnaði kræklingi 4. maí s.l. við Fossá í Hvalfirði. Tilgangurinn var að kanna hvort almenningi sé óhætt að tína krækling í Hvalfirði. Niðurstöður mælinga leiddu í ljós að DSP þörungaeitur var 260...