Ekkert nýtt Covid-19 smit var greint á Vesturlandi í gær, 6. apríl. Alls eru 37 smit greind og þar af 10 á Akranesi. Þeim einstaklingum sem eru í sóttkví á Vesturlandi fækkar líka jafnt og þétt. Alls eru 241 í sóttkví á Vesturlandi öllu og þar af 55 á Akranesi. Tveir einstaklingar bættust við í...
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands halda áfram að gefa af sér til samfélagsins. Í dag var greint frá því að samtökin ætli að kaupa 8 ný sjúkrarúm að verðmæti 5,2 milljónir kr. Samtökin hafa því gefið samtals 25 sjúkrarúm til HVE en búið er að afhenda 17 sjúkrarúm á undanförnum misserum. Þessi átta rúm koma til viðbótar...
Ný met eru sett í hverri viku á árinu 2020 þegar kemur að aðsókn á fréttavefinn skagafrettir.is. Þessi áhugi hvetur okkur áfram að gera enn betur og meira. Aðstæður á markaði vegna Covid-19 veirunnar hafa gríðarleg áhrif á tekjur fjölmiðla. Jákvæði fréttavefurinn skagafrettir.is er ekki undanskilinn þegar kemur að slíku ástandi. Þrátt fyrir ástandið er...
Skaginn 3X hefur ráðið Viktoríu Alfreðsdóttur í starf svæðissölustjóra fyrir Rússland og Asíu. Viktoría er fædd í Ukraínu en hefur verið búsett á Íslandi um 15 ár. Tungumálakunnátta Viktoríu er framúrskarandi en hún talar ukraínsku, íslensku, ensku og rússnesku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skaginn 3X. Viktoría er menntaður viðskiptafræðingur frá HR og er...
Hrafnar þrífast í fjölbreyttu umhverfi eins og sjá má á þessum myndum sem teknar voru á Akranesi um s.l. helgi. Flestir hrafnar kjósa að gera sér hreiður í skóglendi, fjöllum eða við strendur. Það er hinsvegar afar sjaldgjæft að hrafnar geri sér hreiður í þéttbýli – eins og þessi sem kann greinilega vel við sig...
Í dag voru aðgerðir Akraneskaupstaðar kynntar til sögunnar vegna Covid-19 faraldursins. Þær eru alls 14 talsins og heildarumsvif þeirra nema 3.380 m.kr. Tilkynning Akraneskaupstaðar er hér í heild sinni. Akraneskaupstaður hefur verið með í skoðun síðastliðnar vikur aðgerðir til viðspyrnu til þess að svara kalli atvinnulífs og íbúa með því að vernda heimili, fyrirtæki og...
Bjarni Þór Bjarnason er hress og kátur í sjálfskipaðri sóttkví. Listamaðurinn snjalli fær frábærar hugmyndir nú sem fyrr og hér eru nokkur sýnishorn af því sem Bjarni Þór er að gera þessa stundina á Skólabrautinni. Rokk og popp-andinn svífur yfir vötnum hjá Bjarna Þór eins og sjá má á myndunum og í myndbandinu hér fyrir...
Það styttist í að fimleikahúsið sem er í byggingu við Vesturgötuna á Akranesi verði tilbúið. Stefnt er að því að hægt verði að hefja starfsemi í húsinu í byrjun júní eða eftir 56 daga. Eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan er verkefnið langt komið og byrjað er að setja ytri klæðningu á...
Alls hafa 37 einstaklingar greinst með Covid-19 smit á Vesturlandi samkvæmt upplýsingum sem birtar voru á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Vesturlandi nú rétt í þessu. Smit hafa nú greinst á öllum heilsugæslustöðum á Vesturlandi nema í Búðardal. Á Akranesi eru alls 10 smit greind og geindust 2 ný smit um helgina. Þeim sem eru í sóttkví...
Sr. Jónína Ólafsdóttir og sr. Þóra Björg Sigurðurdóttir, sem voru valdar til þjónustu við Garða og Saurbæjarprestakall í byrjun mars, áttu sinn fyrsta vinnudag í dag, 1. apríl. Þá eru prestarnir orðnir þrír en sr. Þráinn Haraldsson er sóknarprestur. Þetta kemur fram á vef Akraneskirkju. Prestarnir þrír hafa því einungis hist á fjarfundum en næstu...