Danny MacAskill er þekktur kappi úr hjólreiðaíþróttinni. MacAskill fer ótroðnar slóðir í listsköpun sinni eins og sjá má í þessu magnaða myndbandi. Hann fer þar á kostum á húsþökum á Kanaríeyjum.
Samkvæmt upplýsingum frá aðgerðastjórn Almannavarna er staðan á Vesturlandi með eftirfarandi hætti varðandi Covid-19 smit. Alls eru 28 smit greind á Vesturlandi öllu og þar af 7 á Akranesi. Allir sem eru greindir með smit á Vesturlandi eru í einangrun. Búðardalur og Ólafsvík eru eina byggðirnar þar sem smit hefur ekki komið upp. Alls eru...
Alls eru 1135 greind smit á landsvísu af Covid-19 veirunni og þar af 23 á Vesturlandi. Þetta kemur fram á vefnum covid19.is. Tilfellum á Vesturlandi hefur fjölgað á undanförnum dögum. Samkvæmt heimildum Skagafrétta hafa nokkur tilfelli verið greind á Akranesi.
Það verða talsverðar breytingar á ásýnd Garðavallar á Akranesi á næstu vikum og mánuðum eftir framkvæmdir sem nú þegar eru hafnar. Á Garðavelli eru 77 sandglompur, 47 við flatir og 30 á brautum. Á undanförnum árum hefur tveimur glompum verið lokað. Það er samhljóma álit vallarnefndar og stjórnar Golfklúbbsins Leynis að ganga lengra í að...
Handþvottur er ávallt mikilvægur og sérstaklega um þessar mundir vegna Covid-19 veirunnar. Í þættinum Heimavist sem sýndur er á RÚV alla virka daga frá 9-11 fóru þáttastjórnendur yfir það með skemmtilegum hætti hvernig á að þvo hendurnar með réttum hætti. Sigyn Blöndal og Sævar Helgi Bragason fóru yfir þetta atriði eins og sjá má í...
Guðjón S. Brjánsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, sendi nýverið fyrirspurn til ráðherra varðandi þverun Grunnafjarðar og færslu þjóðvegar 1 vestur fyrir Akrafjall. Fyrirspurnina má finna hér: VSO Ráðgjöf vann greinargerð fyrir Vegagerðina fyrir rúmum áratug þar sem einn kosturinn var að færa legu vegarins vestur fyrir Akrafjall og yfir Grunnafjörð. Greinargerð um helstu umhverfisáhrif af...
Gamla Kaupfélagið heldur áfram að aðlaga reksturinn að breyttum tímum vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Félagarnir sem reka staðinn hafa tekið þá ákvörðun að einbeita sér alfarið að „Take away þjónustu og heimsendingum“ – allavega fram yfir páskahátíðina. Veitingasalnum hefur því verið lokað tímabundið. Hér fyrir neðan má sjá tilkynningu frá Gamla Kaupfélaginu og hér fyrir...
Samkvæmt upplýsingum Lögreglunnar á Vesturlandi eru engar skipulagðar íþróttaæfingar í gangi í umdæminu. Borist hafa tilkynningar um að fjöldi barna og ungmenna sé að hittast til þess að spila t.d. fótbolta á sparkvöllum í umdæminu. Lögreglan hvetur foreldra til þess að útskýra fyrir börnum sínum mikilvægi þess að virða nálægðartakmarkanir og fylgja þeim fyrirmælum sem...
Það stefnir allt í það að eitt af þeim verkefnum sem Þróunarfélag Grundartanga hefur unnið að fái 50 milljónir kr. í fjáraukafrumvarpi hjá fjárlaganefnd Alþingis. Um er að ræða verkefnið rafeldsneyti sem notað verður í bifreiðum og í skipum. Fréttavefurinn Skessuhorn greinir frá. Sjá nánar hér á skessuhorn.is Í viðtali á Skessuhorni segir Haraldur Benediktsson,...
Það eru allar líkur á því að bæjaryfirvöld á Akranesi taki þá ákvörðun að flýta tilteknum fjárfestingum og viðhaldsverkefnum vegna COVID-19. Bæjarráð fjallaði um slíka tillögu á fundi sínum í dag – og verður fjárfestinga- og framkvæmdaáætlunar Akraneskaupstaðar 2020-2023 endurskoðuð ef af þessu verður. Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs gerði grein fyrir mismunandi...