• Myndband þar sem að lagið Samferða eftir Magnús Eiríksson er sungið af mörgum af þekktustu listamönnum þjóðarinnar hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum á undanförnum dögum. Markmiðið með birtingu myndbandsins er að þakka starfsfólki heilbrigðisstofnana út um allt land fyrir ómetanlegt framlag þeirra á tímum Corona-19 veirufaraldursins. Eins og sjá má í myndbandið eru flytjendur lagsins...

  • Tónlist Skagamannsin Davíðs Þórs Jónssonar leiðir gesti Metropolitan-safnsins í New York á milli margra af helstu ljósmyndum sögunnar á sýningu sem var opnuð í mars. Þetta kemur fram á vef RÚV Rætt var við Davíð Þór Jónsson um aðkomu hans að sýningunni Photography’s Last Century í Hátalaranum á Rás 1. Sýningin heitir Photography’s Last Century og þar...

  • Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar í samvinnu við veitingahús bæjarins hafa komið á samstarfi vegna heimsendingu á heitum mat og öðrum veitingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Veitingahús bæjarfélagsins bjóða upp á heimsendingu á mat fyrir alla íbúa sem þess óska. Akraneskaupstaður hefur milligöngu til þeirra sem ekki geta séð sjálfir um matseld í...

  • Kallabakarí hefur líkt og mörg önnur fyrirtæki hugsað í lausnum þegar kemur að því að þjónusta viðskiptavini sína á meðan samkomubann er í gildi á Íslandi. Í tilkynningu frá Kallabakarí kemur fram að boðið verði upp á heimkeyrslu á Akranesi. Við í Kallabakarí höfum ákveðið að bjóða uppá heimkeyrslu innan Akranes á meðan samkomubannið er...

  • Alls eru 648 staðfest smit af Covid-19 veirunni hér á landi og fjölgaði smituðum einstaklingum um 60 frá því í gær. Þetta kemur fram í nýjum upplýsingum á vef Landlæknis, covid.is. Hér á Akranesi hefur enn sem komið er ekki fundist Covid-19 veira í þeim sýnum sem tekin hafa verið. Alls eru 134 í sóttkví...

  • Óskar Hrafn Ólafsson, fyrrverandi skipstjóri á Akraborginni, er fastur á Spáni. Covid-19 faraldurinn er í hámarki á Spáni um þessar mundir. Óskar Hrafn óttast hann um líf sitt þar sem hann glímir við öndunarörðugleika en Covid-19 veiran leggst einkum á öndunarfærin. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali við Óskar á visir.is. Óskar Hrafn fór út...

  • Þóra Björg Sigurðardóttir var nýverið kjörin í preststarf við Garða – og Saurbæjarprestakall. Þóra Björg mun hafa umsjón með barna – og æskulýðsstarfinu ásamt fleiri verkefnum. Stöð 2 fjallaði um nýja prestinn á Akranesi í þættinum Ísland í dag. Þar tók Sindri Sindrason nýja prestinn tali eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan....

  • Akraneskaupstaður vinnur að aðgerðum um þessar mundir er varða veitingu afslátta, frestun eða niðurfellingu gjalda fyrir ýmsa þjónustu sveitarfélagsins vegna áhrifa Covid-19 á samfélagið. Gjaldskrár eins og leikskólagjöld, frístund, fasteignagjöld og þess háttar eru til skoðunar. Fyrsta umræða um þetta tiltekna málefni verður í bæjarráði Akraness þann 25. mars næstkomandi. Verður í kjölfar niðurstöðu bæjarráðs...

  • Skagamaðurinn Pétur Magnússon, forstjóri hjúkrunarheimilisins Hrafnistu, hefur á undanförnum dögum kynnt sér heilbrigðiskerfið af eigin raun. Í pistil sem Pétur skrifaði á fésbókarsíðu sína segir hann frá því sem á daga hans hefur drifið að undanförnu – en Pétur gaf Skagafréttum góðfúslegt leyfi til að birta pistilinn. Að kynna sér heilbrigðiskerfið að eigin raun 🙂Síðustu...

  • „Í ljósi þeirra stöðu sem er í dag þá höfum við ákveðið að breyta verklagi hjá okkur hér í Blikksmiðju Guðmundar. Okkar verkefni eru oft mikilvæg viðhaldsverkefni og viðhald loftræstikerfa. Við viljum því gæta eins mikils öryggis og hægt er,“ segir Emil Kristmann Sævarsson framkvæmdastjóri Blikksmiðju Guðmundar við Skagafréttir. „Við tökum okkar starfi alvarlega á...

Loading...