• Eins og áður hefur komið fram hefur leigufélagið Heimavelli selt allar íbúðir félagsins við Holtsflöt 4 og Eyrarflöt 2. Sá aðili sem keypti íbúðirnar hefur ekki í hyggju að leigja þær áfram og því hefur öllum leigusamningum verið sagt upp. Alls eru 26 fjölskyldur í skelfilegri stöðu um þessar mundir vegna sölu Heimavalla og uppsagna...

  • Klifuríþróttin á Akranesi hefur á undanförnum misserum vaxið gríðarlega undir dyggri stjórn Þórðar Sævarssonar frumkvöðuls. Smiðjuloftið er bækistöð kraftmikils hóps Skagamanna á öllum aldri sem stundar þessa áhugaverðu íþrótt. Árangur klifrara úr röðum ÍA hefur vakið athygli. Fyrsta mót Íslandsmeistaramótaraðarinnar í grjótglímu fór fram í Klifurhúsinu um s.l. helgi. ÍA mætti með fjölmennt lið í...

  • Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, fjölmiðlakona frá Akranesi, hefur á undanförnum árum tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum hjá Stöð 2 og SÝN. Eva Laufey mun bregða sér í nýtt hlutverk á útvarpsstöðinni Bylgjunni þar sem hún mun stýra þættinum Bakaríið ásamt Svavari Erni Svavarssyni. Eva Laufey tekur við af Einari Bárðasyni. Þátturinn Bakaríið er á dagskrá...

  • Ungir kylfingar úr Golfklúbbnum Leyni stefna á að fara í æfingaferð erlendis í vor. Barna – unglinga og afreksnefnd Leynis hefur að því tilefnið sett af stað púttmótaröð sem fram fer á sunnudögum á tímabilinu 2. febrúar – 22. mars. Púttmótaröðin fer fram í nýrri æfingaaðstöðu Leynis í Garðavöllum á sunnudögum frá kl. 13-15. Fimm...

  • Bárumótið er árlegt innanfélagsmót í sundi hjá Sundfélagi Akraness. Bárumótið 2020 fór fram þriðjudaginn 4. febrúar í Bjarnalaug. Bárumótið er ætlað yngsta sundfólkinu úr röðum ÍA sem vilja öðlast meiri keppnisreynslu. Keppendur eru á aldrinum 8-12 ára, allir keppendur fá viðurkenningu fyrir þátttökuna og í mótslok er öllum keppendum boðið í pizzuveislu. Stigahæstu keppendurnir í...

  • Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir hefur hefur starfað sem settur forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands frá árinu í þrjú ár eða frá árinu 2017. Hún tók við starfinu eftir að Guðjón S. Brjánsson tók sæti á Alþingi sem þingmaður Samfylkingarinnar. Nýverið var staða forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands auglýst til umsóknar. Samkvæmt frétt á vef RÚV var Jóhanna Fjóla sú eina...

  • „Eitt þúsund og eitt hundrað manns í mat í Háskólanum i dag. Sem skiptist í Hámurétt, Veganrétt og salatbar! Sjæsen! Þá er sko gott að eiga eina Stefaníu Sunnu með sér,“ skrifaði Skagamaðurinn Þórður Gylfason á fésbókarsíðu sína nýverið. Þórður, eða Doddi Gylfa, eins og hann er oftast kallaður stýrir einu stærsta mötuneyti landsins, Hámu,...

  • Leigufélagið Heimavellir seldu 18 íbúðir við Holtsflöt 4 á Akranesi í byrjun janúar og hefur sá verið gagnrýnd af mörgum og þar á meðal bæjarráði Akraness. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri fór yfir málið á síðasta fundi bæjarráðs og er óhætt að segja að þessi aðgerð hafi ekki fallið í góðan jarðveg á Akranesi. Bæjarráð Akraness...

  • Vökulir foreldrar á Akranesi hafa vakið athygli lögreglunnar á því að unglingar stundi hættulega iðju á bryggjunum við Akraneshöfn. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu hópsins Vökulir foreldrar þar sem eftirfarandi texti var skrifaður í lok janúar. „Kæru foreldrar! Við höfum fengið fregnir af því að einhverjir unglingar eru að gera sér það að leik að...

  • Skagamaðurinn Ívar Orri Kristjánsson hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð knattspyrnudómara á Íslandi. Stærsti knattspyrnufréttamiðill landsins, fotbolti.net, valdi Ívar Orra sem dómara ársins 2019 og fékk hann viðurkenningu þess efnis afhenta fyrir úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í gær. Hér má sjá fréttina hjá fotbolti.net. Ívar Orri starfar sem deildarstjóri frístundamiðstöðvarinnar Þorpsins á Akranesi. Hann...

Loading...