Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi var settur á laggirnar sem framhaldsskóli þann 12. september árið 1977. Stofnun Fjölbrautaskólans á Akranesi markaði tímamót í skólamálum á Vesturlandi. Hinn nýi skóli tók við húsnæði og hlutverki Gagnfræðaskólans og Iðnskólans á Akranesi. Fyrsta vetur Fjölbrautaskólans á Akranesi voru þar um 180 nemendur í framhaldsnámi og jafnframt því annaðist skólinn...
Eins og flestir vita gengur mikið óveður yfir landið þessa stundina. Hægt er að fylgjast með veðrinu við Akraneshöfn með upplýsingum frá veðurstöð sem Faxaflóahafnir eru með á þeim slóðum. Myndin lýsir alls ekki ástandinu í Akraneshöfn þessa stundina. Samkvæmt veðurstöð Faxaflóahafna hefur meðalvindur við Akraneshöfn verið um 15-17 metrar á sekúndu. Í hviðum hefur...
„Það er með öllu óásættanlegt að ekkert opinbert eftirlit er með þeim fjölmörgu lögvernduðu iðngreinum sem iðnaðarlögin ná til og engin úrræði til að stöðva ófaglærða aðila sem ganga inn á svið lögverndaðra iðngreina þrátt fyrir kærur til lögreglu og kvartanir til Neytendastofu,“ segir m.a í ályktun sem formenn 12 meistarafélaga á sviði bygginga- og...
Rekstrarniðurstaða Golfklúbbsins Leynis á árinu 2019 var eins og best var á kosið. Þetta kemur fram í ársreikningi Leynis sem lagður verður fram á aðalfundi golfklúbbsins í kvöld. Hér má lesa skýrslu stjórnar Leynis 2019. Eitt besta sumar allra tíma á Íslandi, gott ástand Garðavallar og ný aðstaða í Frístundamiðstöðinni sköpuðu kjöraðstæður fyrir góða rekstrarniðurstöðu....
Í dag á milli 16-17 var búið að loka flestum fyrirtækjum og stofnunum á Akranesi og nánast á landinu öllu. Kór eldri borgar á Akranesi, FEBAN, lætur slíkt veður sem vind um eyru þjóta – en kórinn var á æfingu á milli 16-17 í dag í Verkalýðssalnum við Kirkjubraut 40 samkvæmt öruggum heimildum Skagafrétta. Töluverður...
Í dag verður brjálað veður í flestum landshlutum á Íslandi. Óveðrið mun skella á eftir hádegi í dag, þriðjudaginn 10. desember. Gert er ráð fyrir að veðrið gangi niður eftir hádegi miðvikudaginn 11. desember. Vegagerðin mun loka vegum víðsvegar um landið og þar á meðal Kjalarnesvegi og veginum undir Hafnarfjall. Á Akranesi verða ýmsum opinberum...
Vegagerðin hefur lokað veginum um Kjalarnes vegna óveðursins sem nú gengur yfir landið. Vindhviður hafa farið upp í 40 metra á sekúndu á Kjalarnesinu og á vindstyrkurinn eftir að aukast. Hér fyrir neðan má sjá allar tilkynningar frá Vegagerðinni á Twittersíðu stofnunarinnar. Hér eru ítarlegar upplýsingar frá Vegagerðinni. Tweets by Vegagerdin https://twitter.com/Vegagerdin?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1204418791972753408&ref_url=https%3A%2F%2Fpublish.twitter.com%2F%3Fquery%3Dhttps%253A%252F%252Ftwitter.com%252FVegagerdin%252Fstatus%252F1204418791972753408%26widget%3DTweet
Akraneskaupstaður sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna óvissustigsins sem búið er að lýsa yfir á landinu vegna óveðursins sem gengur yfir landið í dag og á morgun. Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að búið er að lýsa yfir óvissustigi á landinu vegna óveðurs. Óvissustig er sett á þegar grunur vaknar um að eitthvað...
Skagamaðurinn Guðjón Þórðarson hefur fundað með færeyska knattspyrnusambandinu vegna ráðningar í landsliðþjálfarastöðu karlaliðs Færeyja í knattspyrnu. Þetta kemur fram á vefnum fotbolti.net. Forseti færeyska knattspyrnusambandsins, Christian F. Andreasen, segir í viðtali við FM1 í heimalandi sínu að stefnt sé að því að ganga frá ráðningu á nýjum landsliðsþjálfara snemma í janúar á næsta ári. Andreasen...
Hjónin Arnheiður Hjörleifsdóttir og Guðmundur Sigurjónsson hafa á undanförnum árum byggt upp öfluga ferðaþjónustu á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði. Samhliða ferðaþjónustunni er rekið sauðfjárbú á Bjarteyjarsandi og nýverið fékk Bjarteyjarsandur gullverðlaun Asksins, sem er Íslandsmót í matarhandverki. Verðlaunin hlutu þau fyrir pikklaðar radísur. Arnheiður er frá Akranesi en Guðmundur er frá Bjarteyjarsandi en hann stundaði nám...