Eins og áður hefur komið fram fór Gettu betur lið Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi örugglega í gegnum 1. umferð spurningakeppni framhaldsskólanna. FVA lagði Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum 24-10. Dregið var í 16-liða úrslitin strax að lokinni 1. umferð í kvöld. FVA fær „grannaslag“ í 2. umferð gegn liði Borgarholtsskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Viðureignin fer fram...
Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson fær sitt fyrsta A-landsliðsverkefni með karlalandsliði Íslands í knattspyrnu á næstunni. Stefán Teitur, sem er fæddur árið 1998, hefur verið kallaður inn í 23-manna landsliðshóp Íslands sem mætir El Salvador og Kanada í janúar. Stefán Teitur kemur inn í hópinn í stað hins þaulreynda Emils Hallfreðssonar sem getur ekki tekið þátt...
Fjölmenni mætti í kvöld í Grundaskóla þar sem að gestir mættu til þess að perla af krafti. Viðburðurinn var skipulagður af Krafti, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur en félagið var stofnað þann 1. október árið 1999. Félagið hefur það að leiðarljósi að beita sameinuðum kröftum sínum til...
Í kvöld fór fram viðureign Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum í spurningakeppninni Framhaldsskólanna, Gettu betur. Guðmundur Þór Hannesson, Amalía Sif Jessen og Karl Ívar Alfreðsson. Keppnislið FVA er alveg eins skipað og í fyrra þegar liðið féll úr keppni í 1. umferð. Liðið var því reynslunni ríkara og flaug áfram í 2....
Vestlendingar ársins 2019 eru björgunarsveitarfólk á Vesturlandi. Skessuhorn – fréttaveita Vesturlands, stóð fyrir valinu líkt og á undanförnum tveimur áratugum. Héraðsfréttablaðið auglýsti eftir tilnefningum frá almenningi sem ritstjórn vann úr. Niðurstaðan var afgerandi. Vestlendingar ársins 2019, björgunarsveitarfólk á Vesturlandi. Nánar á fréttavefnum skessuhorn.is
Í kvöld fer fram viðureign Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum í spurningakeppninni Framhaldsskólanna, Gettu betur. Keppnin fer fram í húsakynnum RÚV og er keppninni útvarpað á vefsvæðinu Núll. Nánar hér. Keppnislið FVA er reynslunni ríkari frá því fyrir ári siðan þegar liðið féll úr keppni í 1. umferð. Lið FVA er þannig...
Bulldog er tegund af hundarækt sem er upprunnin á Bretlandseyjum. Það er því ekkert undarlegt að heimilishundurinn hjá Skagamanninum Dean Martin er af tegundinni English Bulldog. Henry heitir hundurinn en Bulldogtegundinn var á sínum tíma þekkt fyrir grimmd og hugrekki. Henry hefur líklega misst af því námskeiði sem forfeður hans eru þekktastir fyrir. Eins og...
Hjá skipum Síldarvinnslunnar og dótturfélagsins Runólfs Hallfreðssonar ehf. gekk veiði á uppsjávartegundum vel á síðasta ári þrátt fyrir að engin loðna væri veidd. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Síldarvinnslunnar. Áhöfnin á Bjarna Ólafssyni, AK 70, veiddi vel á árinu og verðmæti aflans var um einn milljarður kr. eða 970 milljónir kr. Heildarafli Bjarna Ólafssonar var...
Það ríkir að venju mikil eftirvænting fyrir Þorrablóti Skagamanna. Blótið fer fram laugardaginn 25. janúar og verður það á sama stað og venjulega eða í Íþróttahúsinu við Vesturötu. Miðasalan fyrir Þorrablótið hefst föstudaginn 10. janúar kl. 9.00 í útibúi Íslandsbanka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum Þorrablótsins, Club 71. Opnað verður fyrir borðapantanir á...
„Það er stundum „bras“ að flytja píanó. Þetta gekk nú allt að lokum en verkefnið var krefjandi,“ segir Skagamaðurinn Guðmundur Rafn Ásgeirsson sem grípur af og til í það að flytja píanó fyrir SG flutninga í Reykjavík. Guðmundur Rafn var ásamt þremur öðrum að glíma við það að koma um 300 kg. píanói niður þröngt...