Það hefur ríkt róleg og góð jólastemning síðdegis í Kallabakarí undanfarna daga. Þar hafa fjölskyldur mætt til þess að skreyta piparkökuhús og er óhætt að segja að viðtökurnar hafi verið stórkostlegar. Færri komust að en vildu á fyrstu tvo viðburðina og af þeim sökum verður eitt slíkt skreytingarsíðdegi í boði miðvikudaginn 4. desember. Piparkökuhúsin er...
Skagamenn verða í aðalhlutverki á æfingasvæði enska stórliðsins Manchester City sunnudaginn 1. desember. Þar eigast við U-14 ára liða Manchester City og Blackburn Rovers. Í dómarateymi leiksins verða tveir Skagamenn í stóru hlutverki. Dómari leiksins verður hinn 22 ára gamli Elvar Smári Arnarsson og Helgi Sigurðsson, sem er 24 ára, verður aðstoðardómari í þessum leik....
Á dögunum féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna kæru sem barst vegna ráðningar forstöðumanns íþróttamannvirkja á Akranesi. Í dómsorðum kemur fram að Akraneskaupstaður þarf að greiða stefnanda 700.000 kr. í miskabætur með dráttavöxtum. Einnig þarf Akraneskaupstaður að greiða málskostnaðinn eða 1.500.000 kr. Alls sóttu 17 aðilar um starfið á sínum tíma og í ráðningarferlinu voru...
Evrópuævintýri ÍA/Kára/Skallagríms í Unglingadeild UEFA er nú á enda. Íslandsmeistaraliðið í 2. flokki karla tapaði 4-1 á útivelli í síðari leiknum gegn Derby County. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir ÍA/Kára/Skallagríms því heimaliðið skoraði strax á 11. mínútu og bætti við öðru marki 9 mínútum síðar. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks bættu heimamenn við þriðja markinu....
Skrifstofu Spalar á Akranesi hefur verið lokað. Síðasti starfsmaður félagsins sem átti og rak Hvalfjarðargöng, Anna Kristjánsdóttir, fylgdist með því þegar smiðir frá Trésmiðjunni Akri, Baldvin Þór Þórunnarson og Baldvin Þór Guðmundsson, tóku niður skiltið utan á húsinu s.l. mánudag. Gylfi Þórðarson, einn af frumkvöðlum Spalar og fyrrum framkvæmdastjóri félagins, mætti og var viðstaddur sögulega...
Svona leit Vesturgata 32 út í birtingu á þessum degi fyrir 43 árum, laugardaginn 27. nóvember árið 1976,“ skrifar Haraldur Sturlaugsson á fésbókarsíðu sína í dag. Haraldur býr í húsinu ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Pálmadóttur. Haraldur rifjar upp hvað átti sér stað á þessum degi en þessi atburður fór ekki framhjá íbúum Akraness á þessum...
Skagamaðurinn Gunnar Leifur Stefánsson og viðskiptafélagar hans ætla að blása enn meira lífi í ferðamennskuna á Akranesi þegar sól tekur að hækka á lofti á næsta ári. Þetta kemur á vef Skessuhorns. Farþegaskipið Akranes, sem tekur um 100 farþega, verður gert út frá Akranesi þar sem að sjóstangveiði og hvalaskoðun verða í aðalhlutverki. Skipið hét...
Skagamaðurinn Gísli Runólfsson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni AK 70, sigldi skipi sínu til hafnar í Neskaupstað í morgun með fullfermi af kolmunna. Um er að ræða fyrstu löndun vetrarins af þessari uppsjávartegund en aflinn var 1.800 tonn. Á vef Síldarvinnslunnar segir Gísli að skipverjar á Bjarna Ólafssyni hafi byrjað vertíðina um svipað leyti fyrir ári...
Skagamennirnir Arnór Sigurðsson og Ísak Bergmann Jóhannesson eru efstir á lista yfir efnilegustu íslensku leikmennina í tölvuleiknum Football Manager 2020. Þetta kemur fram á vefsíðunni Íslendingavaktin og fotbolti.net greinir frá. Tölvuleikurinn hefur notið gríðarlegra vinsælda í mörg ár. Leikurinn gengur út á það sá sem spilar setur sig í spor knattspyrnustjóra í hörðum heimi atvinnumennskunnar...
Þetta verður sannkölluð hátíðarstund í upphafi aðventu í Vinaminni laugardaginn 30. nóvember kl. 14:00. Dimitri Þór Ashkenazy klarínettuleikari, Þóra Einarsdóttir sópransöngkona og Tómas Guðni Eggertsson píanóleikari flytja fjölbreytta dagskrá. Þeim til fulltingis verður Kór Akraneskirkju undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar. Á tónleikunum m.a. má hlýða á tónlist eftir Franz Schubert, J. S. Bach, Leonard Bernstein og Wolfgang Amadeus Mozart. Dimitry er...