• Karlalið ÍA í knattspyrnu lék í dag æfingaleik gegn Fjölni úr Grafarvogi. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni og endaði hann með sigri ÍA, 2-1. Gestirnir komust yfir áður en Hallur Flosason og Bjarki Steinn Bjarkason skoruðu fyrir ÍA. Mörkin er hægt að sjá hér fyrir neðan í samantekt frá ÍATV.

  • „Við ætlum að hafa umgjörðina ljúfa og lágstemmda og við höfum ekki verið með tónleika eins og þessa áður. Við Birgir Þórisson, píanóleikari, héldum einu sinni jólatónleika í Akranesvita, sem vöktu mikla lukku og troðið var út úr dyrum. Ég vona svo sannarlega að Skagamenn nær og fjær sjái sér fært að koma á tónleikana...

  • Það stendur mikið til hjá Fimleikafélagi ÍA sunnudaginn 15. desember. Tröllið sem stal jólunum verður aðalþemað í jólasýningu félagsins þar sem að iðkendur frá 5 ára aldri taka þátt. Jólasýningin er aðalfjáröflun félagsins. Iðkendur, þjálfarar og velunnarar félagsins hafa unnið hörðum höndum að undanförnu við undirbúning jólasýningarinnar. Mikil tilhlökkun ríkir hjá iðkendum félagsins að sýna...

  • Andri Páll Einarsson, Elís Aron Bjarkason, Jana Sif Sigurjónsdóttir, Helena Rut Káradóttir og Brynjar Örn Hilmarsson létu fara vel um sig í Kallabakarí í morgun þegar Skagafréttir voru þar á ferðinni. Þau voru kampakát og ekkert jólastress var í gangi hjá þessum hressu framhaldsskóla nemendunum sem stunda nám á starfsbraut Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Andri...

  • „Ég hef ekki verið að gera mikið í söngnum í rúman áratug. Ég tók þátt í Söngkeppni Framhaldsskólanna árið 2006. Frá þeim tíma hef ég bara sungið fyrir mína nánustu í fjölskyldunni,“ segir Skagakonan Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir. Skagakonan gaf nýverið út jólalag sem ber nafnið Glæddu jólagleði í þínu hjarta. Lagið er eftir Hugh Martin...

  • Aðsend grein frá bæjarfulltrúum Samfylkingar, Framsóknar og frjálsra á Akranesi sem mynda meirihluta í Bæjarstjórn Akraness. Bókun Samfylkingar og Framsóknar og frjálsra við síðari umræðu fjárhagsáætlunar Bæjarstjórnarfundur 10. desember 2019 Í fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2020 sem hér er lögð fram er gert ráð fyrir að rekstrarafkoma A-hluta bæjarsjóðs verði jákvæð um 309 milljónir króna...

  • Alls sóttu ellefu um starf slökkviliðsstjóra Akraness og Hvalfjarðarsveitar sem auglýst var til umsóknar nýverið. Einn umsækjenda dró umsóknina til baka. Á meðal umsækjenda er ein kona og athygli vekur að fréttamaðurinn Jóhann K. Jóhannsson á Stöð 2 er á meðal umsækjenda. Í hópnum eru að sjálfsögðu þaulreyndir sérfræðingar á þessu sviði. Eftirfarandi aðilar sóttu...

  • Sjö manna hópur frá Björgunarfélagi Akraness er þessa stundina að aðstoða við leit að unglingspilti sem féll í Núpá í Sölvadal í Eyjafirði. Pilturinn féll í Núpá þegar hann fékk krapaflóð á sig þegar hann var að aðstoða bónda við að hreinsa krapa frá inntaki á heimarafstöð. Norskir fjölmiðlar hafa fylgst með málinu á undanförnum...

  • Heilbrigður lífsstíll vefst fyrir mörgum. Það getur verið erfitt að vita hvað á að gera og hvað ekki. Sumir rífa sig upp og fara á kúr en svo fer allt í sama farið aftur fljótlega. Í þessari áhugaverðu fræðslumynd segir Erla Gerður Sveinsdóttir, yfirlæknir Heilsuborgar, frá því að í raun sé þetta ekki svo flókið...

  • Skipulags – og umhverfisráð hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðið í Kalmansvík. Skipulagið verður auglýst með formlegum hætti á næstunni. Áhugaverðar breytingar á svæðinu eru lagðar til í tillögunni. Og má þar nefna svæði þar sem gert er ráð fyrir nokkrum byggingarreitum fyrir smáhýsi. Einnig er gert ráð fyrir um 300 fermetra þjónustubyggingu....

Loading...