Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust fjórar umsóknir um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi . Umsóknarfresturinn rann út 1. september s.l. en frá þessu er greint á vef ráðuneytisins. Ágústa Elín Ingþórsdóttir, núverandi skólameistari FVA var skipuð í embættið árið 2015 til fimm ára. Ágústa Elín er á meðal umsækjenda. Umsækjendur eru:Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skólameistari FVASteinunn...
Nemendur og starfsfólk Grundaskóla hafa á undanförnum dögum unnið hörðum höndum að því að taka upp kartöflur. Uppskeran er góð, jafnvel tíföld á við meðalár enda hafa umhverfisþættir verið hagstæðir fyrir kartöflurækt á undanförnum mánuðum. Frá þessu er greint á fésbókarsíðu Grundaskóla. Grundaskóli tók á leigu kartöflugarða s.l. vor og þar var sett niður útsæði....
Íslensku tæknifyrirtækin Skaginn 3X, Frost og Rafeyri hafa sett upp leiðandi tæknibúnað í verksmiðjunni, sem staðsett er á Shikotan-eyju í Kúríleyja-klasanum við austurströnd Rússlands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum. Það var sjálfur forseti Rússlands, Vladimír Pútín, sem ræsti uppsjávarverksmiðjuna. Gidrostory á Eastern Economic Forum í Vladivostok er eigandi verksmiðjunnar. Athöfnin fór fram í...
Hörður Ingi Gunnarsson og Stefán Teitur Þórðarson, leikmenn ÍA, eru báðir í U-21 árs landsliðshóp Íslands sem mætir Lúxemborg og Armeníu á næstunni. Leikirnir fara fram 6. september gegn Lúxemborg og gegn Armeníu þann 9. september. Báðir leikirnir fara fram á Víkingsvelli og hefjast kl. 17:00. Hópurinn er þannig skipaður: Elías Rafn Ólafsson | Aarhus...
„Það er óhemja af síld hérna,“ segir Skagamaðurinn Gísli Runólfsson skipstjóri á Bjarna Ólafssyni AK í viðtali sem birt er á vef Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Áhöfn Bjarna Ólafssonar AK landaði 800 tonnum af makríl í gær í Neskaupstað. Að löndun lokinni sigldi skipið úr höfn til síldveiða á miðunum út við Austfirði. Gísli segir að...
Arnór Sigurðsson verður ekki með íslenska A-landsliðinu í knattspyrnu í næstu tveimur leikjum liðsins hér á Íslandi. Skagamaðurinn hefur glímt við meiðsli að undanförnu og ekki leikið með CSKA Moskvu í Rússlandi frá því í ágúst. Arnór hefur æft með íslenska landsliðinu að undanförnu í þeirri von að meiðslin væru úr sögunni. Svo reyndist ekki...
Brynjar Már Ellertsson, badmintonmaður úr ÍA, er í landsliði Íslands sem keppir á Heimsmeistaramóti ungmenna 19 ár og yngri. HM fer fram í borginni Kazan í Rússlandi, 30. september – 13. október Brynjar hefur verið í fremstu röð á landsvísu í sínum aldursflokki um margra ára skeið. Hann kemur úr mikilli badmintonfjölskyldu. Foreldrar hans eru...
Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akraness í samstarfi við Ferðafélag Íslands endurtaka leikinn frá síðasta ári og bjóða upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Fyrsta gangan er í dag, miðvikudaginn 4. september. Frábærir sjálfboðaliðar leiða göngurnar og verður frítt í sund að loknum göngum fyrir göngugarpa. Göngurnar hefjast alltaf kl. 18:00 og er tilgangur þeirra að...
Dregið var í dag í Evrópumóti yngri liða í knattspyrnu karla hjá UEFA í dag. Íslandsmeistaralið ÍA/Kára/Skallagríms frá árinu 2018 leikur gegn Levadia Tallinn frá Eistlandi. Leikirnir fara fram 2. og 23. október 2019. Nánar um keppnina hér: Þetta er í sjöunda sinn sem keppt er í Meistaradeild Evrópu og Evrópukeppni yngri liða. Keppnin er...
Jón Þór Hauksson er á sigurbraut sem þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu. Liðið sigraði Slóvakíu 1-0 á Laugardalsvelli í kvöld. Þetta var annar sigurleikur Íslands í undankeppni EM og er liðið í efsta sæti riðilsins. Jón Þór sagði í viðtali við RÚV að dagurinn hafi verið erfiður – en Sif Atladóttir, lykilmaður í liði Íslands,...