Berglind Björgvinsdóttir hefur verið ráðinn í hlutastarf hjá Íþróttabandalagi Akraness. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍA. Berglind hefur á undanförnum árum verið í öflugu teymi starfsfólks í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Berglind mun starfa á skrifstofu ÍA og við rekstur þrekaðstöðu íþróttabandalagsins. Hildur Karen Aðalsteinsdóttir er íþróttafulltrúi ÍA verður hún í því starfi áfram.
Menningarverðlaun Akraness 2019 hlýtur Útvarp Akranes sem Sundfélag Akranes starfrækir. Frá þessu var greint í dag við upphaf menningarhátíðarinnar Vökudaga. Stjórn Sundfélags Akraness fékk verðlaunagrip eftir listakonuna Kolbrúnu Kjarval. Sundfélag Akraness hélt upp á 30 ára afmæli Útvarps Akraness í fyrra sem er frábær árangur. Verkefnið hófst sem fjáröflunarleið fyrir félagið en er í dag...
Samtök rafverktaka (SART) og Rafiðnaðarsamband Íslands (RSÍ) hafa frá haustinu 2016 stutt vel við bakið á nemendum í rafiðnaði í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Í dag komu fulltrúar frá þessum aðilum í heimsókn í FVA og afhentu þeim nemendum sem hófu nám í grunndeild FVA í haust spjaldtölvur sem munu nýtast vel í námi og...
Yngsta sundfólkið úr röðum ÍA steig sín fyrstu skref á keppnisferlinum á þriðjudaginn á smámóti ÍA og Aftureldingar. Keppnin fór fram í innilauginni í Lágafellslaug í Mosfellsbæ. Keppendur voru allir 10 ára og yngri. Mótið var sett upp fyrir byrjendur sem eru að hefja keppnisferilinn. Alls tóku 45 keppendur þátt. Keppnisgreinarnar voru tvær, skriðsund og...
Rafmagnslaust er á stóru svæði á Akranesi þessa stundina vegna bilunar í spenni. Ekkert rafmagn er því á Esjuvöllum, Dalbraut, Þjóðbraut Skarðsbraut og Vallarbraut. Viðgerð stendur yfir en áætlað er að rafmagn verði komið á að nýju kl. 22.00 í kvöld 24. október. Mörg fyrirtæki og stofnanir á þessu svæði eru í vandræðum vegna rafmagnsleysis....
Creditinfo verðlaunaði í gær framúrskarandi fyrirtæki fyrir árangur sinn á rekstrarárinu 2018 en alls eru 874 fyrirtæki á listanum eða 2% allra skráðra fyrirtækja á Íslandi. Listinn í heild sinni er hér: Alls eru 36 fyrirtæki frá Vesturlandi á listanum 2019 og þar af 15 með aðsetur á Akranesi og nágrenni. Bjarmar ehf. sem er...
Það ríkti einlæg gleði þegar 12 sjúkrarúm af gerðinni Eleganza voru afhent með formlegum hætti í Heilbrigðisstofnun Vesturlands í dag. „Ég vil fyrir hönd stofnunarinnar þakka stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands fyrir þetta frábæra framtak,“ sagði Jóhanna Fjóla Jóhannsdóttir forstjóri HVE þegar Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands afhentu stofnunni ný sjúkrarúm miðvikudaginn 23. október. Um miðjan...
Það var mikið markaregn í Eistlandi í dag þegar lið ÍA/Kára/Skallagríms gjörsigraði lið Levadia Tallinn í Unglingadeild UEFA. Lokatölur 12-1 og samanlagt 16-1 í báðum leikjunum en fyrri leikurinn fór 4-0 fyrir ÍA/Kára/Skallagrím á Akranesvelli. Staðan var 6-0 í hálfleik og leikmenn 2. flokks ÍA/Kára/Skallagríms héldu áfram í síðari hálfleik og bættu við 6 mörkum....
Í byrjun skólaárs var tekin sú ákvörðun að banna alfarið notkun snjallsíma á skólatíma í Grundaskóla á Akranesi. Um tímabundið bann var að ræða en nú hefur verið tekin sú ákvörðun að bannið verði í gildi þar til annað verður ákveðið. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var á foreldra barna í Grundaskóla. „Í...
Formlegur fundur með hugsanlegum fjárfestum um uppbyggingu gagnavers á Akranesi fór fram þann 25. september s.l. Þetta kom fram í máli Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnar í gær. Fundurinn fór fram í Frístundamiðstöðinni við golfvöllinn á Akranesi. Alls voru 7 einstaklingar á fundinum frá fimm mismunandi aðilum. Sævar Freyr sagði að fundurinn hafi...