Sameiginlegt lið ÍA/Kára og Skallagríms leikur í dag síðari leikinn gegn Levadia Tallinn í Unglingadeild UEFA. Leikurinn fer fram í Eistlandi og hefst hann kl. 14:30 að íslenskum tíma. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á fésbókar og Twittersíðu ÍATV – sjá hér fyrir neðan ÍA / Kári / Skallagrímur vann fyrri leikinn örugglega 4-0 á...
Nemendur í Grundaskóla stóðu sig svipað og undanfarin ár í samræmdu prófunum í 4. og 7. bekk. Það sem stendur upp úr er að árangur nemenda í Grundaskóla er betri í stærðfræði en á landsvísu. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Grundaskóla. Í íslensku eru nemendur í Grundaskóla undir meðaltali á landsvísu – sem...
Í drögum að samgönguáætlun sem er til umfjöllunar á Alþingi Íslands kemur fram að gert er ráð fyrir 400 milljónum kr. í verkefni sem tengjast Faxabraut á Akranesi. Þetta kom fram í ávarpi Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra í gær í upphafi bæjarstjórnarfundar. Eins og áður hefur komið fram hefur Akraneskaupstaður farið fram á að ríkið...
Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir hefur óskað eftir áframhaldandi tímabundnu leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi, eða til 1. september 2020. Þetta kom fram á fundi bæjarstjórnar Akraness í dag. Tillaga þess efnis að verða við ósk Gerðar var samþykkt með 7 atkvæðum en 2 bæjarfulltrúar sátu hjá. Gerður óskað eftir tímabundnu leyfi þann 30. ágúst s.l. og...
Bæjarstjórn Akraness fjallaði um málefni FVA á fundi sínum í dag. Eins og fram hefur komið hafa kennarar í Fjölbrautaskóla Vesturlands lýst yfir vantrausti á skólameistara FVA, Ágústu Elínu Ingþórsdóttur. Félag framhaldsskólakennara (FF) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) hafa hvatt yfirvöld menntamála til að leysa nú þegar það erfiða ástand sem skapast hefur við...
Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir hafa á undanförnum árum byggt upp hrossræktarbúið Skipaskaga við sveitabæinn Litlu-Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit. Skipaskagi er í fremstu röð á sviði hrossaræktar og er búið tilnefnt til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, sem ræktunarbú ársins 2019. Alls komu 30 slík hrossaræktarbú til greina í þessu vali og eftir standa 14 bú. Tilnefnd...
Nú stendur yfir bein útsending frá fundir bæjarstjórnar Akraness. Fundurinn hófst kl. 17.00, þriðjudaginn 22. október. Hægt er að horfa á útsendinguna hér fyrir neðan.
Þrír leikmenn úr röðum ÍA eru í æfingahóp U21 árs landsliðs Íslands sem mun æfa hér á landi fyrir næstu verkefni liðsins. Arnar Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen eru þjálfarar liðsins. Næstu verkefni U21 árs liðsins eru í nóvember, gegn Ítalíu og Englandi. Bjarki Steinn Bjarkason kemur inn í hópinn að nýju en Stefán Teitur...
Logi Mar Hjaltested markvörður úr 4. flokki ÍA í knattspyrnu var í byrjunarliði U15 ára landsliðs Íslands gegn Bandaríkjunum í gær. Leikurinn fór fram í Póllandi þar sem að UEFA stendur fyrir æfingamóti. Skagamaðurinn Haukur Andri Haraldsson var í leikmannahópnum en kom ekki við sögu í þessum leik – sem endaði með 2-1 sigri bandaríska...
Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Íslands í dag þegar liðið lék gegn Króatíu í undankeppni U17 ára liða í knattspyrnu karla. Leikurinn fór fram í Skotlandi þar sem að keppnin fer fram. Þetta var fyrsti leikur Íslands í riðlinum og endaði leikurinn með 3-2 sigri Króatíu. Orri Steinn Óskarsson og Danijel Dejan Djuric...