• Arnór Sigurðsson verður ekki með íslenska A-landsliðinu í knattspyrnu í næstu tveimur leikjum liðsins hér á Íslandi. Skagamaðurinn hefur glímt við meiðsli að undanförnu og ekki leikið með CSKA Moskvu í Rússlandi frá því í ágúst. Arnór hefur æft með íslenska landsliðinu að undanförnu í þeirri von að meiðslin væru úr sögunni. Svo reyndist ekki...

  • Brynjar Már Ellertsson, badmintonmaður úr ÍA, er í landsliði Íslands sem keppir á Heimsmeistaramóti ungmenna 19 ár og yngri. HM fer fram í borginni Kazan í Rússlandi, 30. september – 13. október Brynjar hefur verið í fremstu röð á landsvísu í sínum aldursflokki um margra ára skeið. Hann kemur úr mikilli badmintonfjölskyldu. Foreldrar hans eru...

  • Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akraness í samstarfi við Ferðafélag Íslands endurtaka leikinn frá síðasta ári og bjóða upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Fyrsta gangan er í dag, miðvikudaginn 4. september. Frábærir sjálfboðaliðar leiða göngurnar og verður frítt í sund að loknum göngum fyrir göngugarpa. Göngurnar hefjast alltaf kl. 18:00 og er tilgangur þeirra að...

  • Dregið var í dag í Evrópumóti yngri liða í knattspyrnu karla hjá UEFA í dag. Íslandsmeistaralið ÍA/Kára/Skallagríms frá árinu 2018 leikur gegn Levadia Tallinn frá Eistlandi. Leikirnir fara fram 2. og 23. október 2019. Nánar um keppnina hér: Þetta er í sjöunda sinn sem keppt er í Meistaradeild Evrópu og Evrópukeppni yngri liða. Keppnin er...

  • Jón Þór Hauksson er á sigurbraut sem þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu. Liðið sigraði Slóvakíu 1-0 á Laugardalsvelli í kvöld. Þetta var annar sigurleikur Íslands í undankeppni EM og er liðið í efsta sæti riðilsins. Jón Þór sagði í viðtali við RÚV að dagurinn hafi verið erfiður – en Sif Atladóttir, lykilmaður í liði Íslands,...

  • Sameiginlegt lið ÍA/Kára og Skallagríms er Íslandsmeistari í keppni í 2. flokki karla í knattspyrnu. ÍA/Kári/Skallagrímur gerði 2-2 jafntefli í kvöld gegn sameiginlegu liði Fylkis/Eilliða. Sigurður Hrannar Þorsteinsson skoraði bæði mörk liðsins. Sigurður Jónsson og Elínbergur Sveinsson eru þjálfarar ÍA/Kára/Skallagríms. Á sama tíma tapaði sameiginlegt lið Breiðabliks/Augnabliks en liðið er átta stigum á eftir þar...

  • Verkefnið Göngum í skólann verður sett í með formlegum hætti á miðvikudaginn. Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla. Hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Með þessu er ætlunin að hvetja til...

  • Þjóðarátakið „Á allra vörum“ 2019 hófst með formlegum hætti með athöfn í Hallgrímskirkju í gær. Markmið „Á allra vörum“ herferðarinnar 2019 er að vekja þjóðina og tala tæpitungulaust um þessi mál og koma með tillögur að lausn við vandamálinu. Á síðasta ári létust 39 einstaklingar vegna ofneyslu lyfja. Í ár verður stutt sérstaklega við verkefnið...

  • Hópur ungrar stráka á Akranesi á aldrinum 10-12 ára mættu á fund bæjarstjóra nýverið til þess að ræða um uppbyggingu brettagarðs, (e.skate park) hér á Akranesi. Þessi hópur ásamt fleirum stundar svokallaða brettaíþrótt og þykir þeim skortur á aðstöðu til æfinga fyrir íþróttina. Lögðu þeir áherslu á umræddur garður yrði staðsettur miðsvæðis þannig að hann...

  • Skagamaðurinn Snorri Magnússon þroskaþjálfi hefur kennt ungbarnasund í 28 ár. Snorri var í fremstu röð í sundíþróttinni á árum áður og keppti lengi fyrir ÍA – og ferill hans hófst í Bjarnalaug við Laugarbraut. Bjarnalaug kemur við sögu í myndinni eins og sjá má í myndbrotinu hér neðst í fréttinni. Frumkvöðlastarf Snorra hefur vakið mikla...

Loading...