• „Ég er búinn að bíða eftir þessu myndbandi eins og krakki sem bíður eftir jólunum,“ skrifar Hilmar Sigvaldason vitavörður okkar Skagamanna á fésbókina um myndbandið sem er að finna í þessari frétt. Í október á síðasta ári kom 40 manna hópur listamanna hingað á Akranes til þess að hljóðrita tónlist. Hópurinn, sem kallar sig apartmentsessionsnyc.com kom...

  • „Þetta samstarf okkar byrjaði í rauninni þegar Viktor Jónsson kom til okkar í ÍA. Ég vissi að Viktor og Reynir Haraldsson höfðu gert tónlist saman sem mér líkaði vel við. Ég er mikill aðdáandi af því sem þeir eru að gera,“ segir Hallur Flosason tónlistarmaður og leikmaður mfl. ÍA í knattspyrnu við skagafrettir.is. Nýverið gaf...

  • Þrír leikmenn úr röðum ÍA verða á úrtaksæfingum fyrir yngri landslið Knattspyrnusambands Íslands fyrstu helgina í mars. Brynjar Pálsson verður í U-18 ára úrtakshópnum en í U-16 ára úrtakshópnum eru þeir Árni Salvar Heimisson og Ingi Þór Sigurðsson. Þorvaldur Örlygsson er þjálfari U18 karla. U-18 ára hópurinn Benedikt V. Warén | Breiðablik Karl Friðleifur Gunnarsson...

  • Framkvæmdir á Dalbrautarreitnum hefjast á allra næstu dögum – en fyrsta skóflustungan var tekin í dag. Á þessu svæði verður félagsaðstaða Félags eldri borgara á Akranes, FEBAN. Fjölmargar íbúðir verða byggðar á þessu svæði samhliða félagsaðstöðu FEBAN. Dagurinn er því stór í sögu FEBAN því lengi hefur verið beðið eftir því að félagið fái aðstöðu...

  • Starfshópur um framtíðaruppbyggingu á Jaðarsbökkum kynnti á dögunum tillögur um framtíðaruppbyggingu á Jaðarsbökkum. Tillögurnar voru kynntar á lokuðum fundi bæjarráðs, skóla- og frístundaráðs, skipulags- og umhverfisráðs og velferðar- og mannréttindaráðs sem fram fór í Tónbergi. Tillögurnar verða kynntar almenningi mjög fljótlega samkvæmt heimildum Skagafrétta. Fyrirséð er að framvinda fyrirhugaðrar uppbyggingar á Jaðarsbökkum mun ráðast af...

  • Á undanförnum dögum hefur skólastarfið í FVA verið brotið upp með ýmsum ætti á Opnum dögum. Nemendur hafa komið víða við og gert margt áhugavert. Í nýrri æfingaaðstöðu Golfklúbbsins Leynis var haldið púttmót nemenda FVA. Þar sigraði Bára Valdís Ármannsdóttir og getur hún státað sig af titlinum púttmeistari FVA í eitt ár hið minnsta. Anna Þóra...

  • Valdís Þóra Jónsdóttir, íþróttamaður Akraness 2018, hefur leik aðfaranótt fimmtudagsins 21. febrúar á LET Evrópumótaröðinni í golfi. Um er að ræða sterkustu atvinnumótaröð í Evrópu í kvennaflokki. Leikið er í Ástralíu á Bonville en þaðan á Valdís Þóra góðar minningar. Hún náði sínum besta árangri á LET Evrópumótaröðinni á þessu móti fyrir ári síðan, þar...

  • Eins og áður hefur komið fram hér á skagafrettir.is fór aðalfundur KFÍA fram mánudaginn 18. febrúar s.l. Jákvæður rekstur og góð staða KFÍA var rauði þráðurinn á aðalfundinum. Á fundinum voru einnig veittar viðurkenningar til sjálfboðaliða en Jón Gunnlaugsson bar veg og vanda að tilnefningunum að þessu sinni. Að venju hafa margir sjálfboðaliðar lagt hönd...

  • Hákon Arnar Haraldsson og Jón Gísli Eyland Gíslason hafa verið í U-17 ára landsliðshóp Íslands í knattspyrnu í undanförnum leikjum liðsins. Skagamennirnir hafa verið valdir á ný í úrtakashóp U-17 ára liðsins sem mun æfa saman 1. og 2. mars n.k. Hákon er fæddur árið 2003 á Akranesi og hefur leikið upp allra yngri flokka ÍA....

  • Arnór Sigurðsson skoraði tvö mörk í 3-1 sigri CSKA Moskva í æfingaleik gegn spænska liðinu FC Cartagena í kvöld. Leikurinn fór fram á Spáni þar sem að CSKA liðið er við æfingar. Ekki er leikið í rússnesku deildinni um þessar mundir vegna vetrarkulda. CSKA er þar í þriðja sæti með 30 stig eftir 17 umferðr, fjórum...

Loading...