Í september árið 2017 mætti fjölmenni á Akranes til þess að taka upp auglýsingu eða umfjöllun um Porsche bifreiðar. Íslenski Porsche klúbburinn mætti á svæðið með helstu skrautfjaðrir Porsche safnsins á Íslandi. Akranesvitinn var notaður sem bakgrunnur í þessari umfjöllun sem var á vegum þýska Porsche tímaritsins 911-magazine.porsche.com Elsti Porsche gripurinn í þessu sjö bíla safni...
Minningarveggur um David Bowie vekur ávallt athygli ferðamanna á Akranesi en veggurinn á húsgafli við Kirkjubraut 8 – sem er í miðbæ Akraness og hýsti eitt sinn lögreglustöð og veitingahús. Björn Lúðvíksson og Halldór Randver Lárusson eiga heiðurinn af veggnum sem fjölmargir hafa myndað sig við og hróður hans hefur borist víða um lönd og...
Hilmar Bragi Janusson er í ítarlegu viðtali á sjónvarpsstöðinni N4. Skagamaðurinn sem er fæddur árið 1961 er í dag forstjóri Genís á Siglufirði. Hilmar er sonur Janusar Braga Sigurbjörnssonar og Katrínar Georgsdóttur og hann fjögur systkini eins og fram kemur í þessu viðtali sem Hilda Jana Gísladóttir tók við hann á Hótel Sigló. Þrjú af...
Skagamaðurinn Jónas H. Ottósson hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð áhugaljósmyndara. Myndir sem Jónas tekur á landsleikjum í körfubolta birtast reglulega fréttasíðu Körfuknattleikssambands Evrópu. Jónas, sem starfar sem lögreglumaður, var á sigurleik Íslands gegn Portúgal í undankeppni EM. Goðsagnirnar Hlynur Bæringsson og Jón Arnar Stefánsson léku þar síðasta landsleik. Hér má sjá...
Skagamaðurinn Davíð Þór Jónsson hlaut í gær Edduverðlaunin fyrir tónlistina í kvikmyndinni Kona fer í stríð. Þakkarræða Davíðs Þórs vakti mikla athygli í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV í gær. Ræðuna má sjá með því að smella hér. Davíð sagði m.a. að stundum væri óþarfi að setja einhverja tónlistarleysu ofan á góða kvikmynd. Hann fór síðan...
Á sunnudaginn verður stór stund hjá Fimleikafélagi Akraness þegar meistaraflokkur FIMA keppir á WOW bikarmótinu á Selfossi. Það verður í fyrsta sinn sem FIMA er með lið í keppni í A-deild meistaraflokki í hópfimleikum. Keppnishópurinn er fjölmennur og á öllum aldri. Elsti keppandinn hjá ÍA er 22 ára og sá yngsti 15 ára. Liðsmenn ÍA hafa...
Kaka ársins hefur á undanförnum árum verið í aðalhlutverki í aðdraganda konudagsins sem er sunnudaginn 24. febrúar. Í ár verður engin undantekning á því. Kaka ársins 2019 verður að sjálfsögðu til sölu í Kallabakarí á Akranesi fyrir þá sem vilja gleðja sína nánustu á konudaginn. Sigurður Már Guðjónsson, bakarameistari og eigandi Bernhöftsbakarís er höfundur köku...
„Ég er búinn að bíða eftir þessu myndbandi eins og krakki sem bíður eftir jólunum,“ skrifar Hilmar Sigvaldason vitavörður okkar Skagamanna á fésbókina um myndbandið sem er að finna í þessari frétt. Í október á síðasta ári kom 40 manna hópur listamanna hingað á Akranes til þess að hljóðrita tónlist. Hópurinn, sem kallar sig apartmentsessionsnyc.com kom...
„Þetta samstarf okkar byrjaði í rauninni þegar Viktor Jónsson kom til okkar í ÍA. Ég vissi að Viktor og Reynir Haraldsson höfðu gert tónlist saman sem mér líkaði vel við. Ég er mikill aðdáandi af því sem þeir eru að gera,“ segir Hallur Flosason tónlistarmaður og leikmaður mfl. ÍA í knattspyrnu við skagafrettir.is. Nýverið gaf...
Þrír leikmenn úr röðum ÍA verða á úrtaksæfingum fyrir yngri landslið Knattspyrnusambands Íslands fyrstu helgina í mars. Brynjar Pálsson verður í U-18 ára úrtakshópnum en í U-16 ára úrtakshópnum eru þeir Árni Salvar Heimisson og Ingi Þór Sigurðsson. Þorvaldur Örlygsson er þjálfari U18 karla. U-18 ára hópurinn Benedikt V. Warén | Breiðablik Karl Friðleifur Gunnarsson...