Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarráð Akraness að gerð verði skoðanakönnun meðal íbúa Akraness um hvort fella skuli strompinn eða ekki. Frá þessu er greint í fundargerð bæjarstjórnar frá því í gær, 12. desember. Niðurrif á byggingum Sementsverksmiðjunnar hefst á næstunni og er ekki gert ráð fyrir því að Sementsstrompurinn verði rifinn í fyrri...
Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2018 og þriggja ára áætlun 2019 til 2021 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness í dag. Einnig var fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun samþykkt. Áætlað er að setja um 3,1 milljarða í fjárfestingar og framkvæmdir á næstu fimm árum án þess að taka lán. Þetta kemur fram á akranes.is. Meðal framkvæmda á árinu 2018...
Nýverið sömdu fimm leikmenn við Knattspyrnufélag ÍA og er þeim ætlað stórt hlutverk í uppbyggingu meistaraflokks kvenna. Leikmennirnir sem sömdu heita María Mist Guðmundsdóttir, Eva María Jónsdóttir , Bergdís Fanney Einarsdóttir, Hrafnhildur Arín Sigfúsdóttir og Sandra Ósk Alfreðsdóttir. Fjórar þeirra gerðu samning til tveggja ára en Hrafnhildur Arín samdi til eins árs. Frá vinstri: María...
Frumkvæði og dugnaður einkennir vinkonurnar Katrínu Leu Daðadóttur, Heklu Maríu Arnardóttur og Sigríði Sól Þórarinsdóttur. Þær standa fyrir tónleikum sem fram fara 20. desember og er markmiðið að safna fyrir Mæðrastyrksnefnd. Skagafréttir.is heyrði í Katrínu vegna tónleikanna og fyrsta spurningin var hvernig þessi hugmyndi hafi orðið til. „Við höfum allar mikinn áhuga á tónlist og erum að...
Börn í bæjunum Chiradzulu og Mwanza í Malaví fá góðan stuðning frá nemendum Grundaskóla á Akranesi. Nýverið fór fram Malaví markaður í Grundaskóla og söfnuðust rúmlega 650.000 kr. Malaví markaðurinn er fastur liður í starfi Grundaskóla þar sem að nemendur og starfsfólk sameinast í verkefninu, breytum krónum í gull. Eins og áður segir safnaðist um...
Vitarnir á Breiðinni á Akranesi eru með mikið aðdráttarafl. Ljósmyndarar víðsvegar úr heiminum koma þar reglulega til þess að taka myndir af vitunum og vinsældirnar aukast með hverju árinu sem líður. Skagamaðurinn Björn Lúðvíksson birti þessa mynd af vitanum þann 9. desember s.l. á fésbókarsíðunni Akranes ljósmyndir. Akranesviti.
Fjölmenni mætti á styrktarleik sem fór fram í morgun í Akraneshöllinni þar sem ÍA og Valur mættust í fótbolta karla. Þrátt fyrir mikinn kulda í Akraneshöllinni mættu nokkuð hundruð manns á leikinn og skemmtu sér vel. Vinir Kidda Jens sáu um skipulagningu á þessum viðburði og var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð í hálfleik. Leikurinn...
Á dögunum gengu Guðmundur S. Jónsson og Albert Þór Magnússon frá samningi vegna styrkveitingar Lindex til Team Rynkeby. Lindex verður með samningnum Gullstyrktaraðili liðsins og gengur 400 þús. kr. styrkur, sem tengdur er vel heppnaðri opnun Lindex á Akranesi, óskertur til Styrktarfélags Krabbameinssjúkra Barna . Styrkurinn felur í sér að merki Lindex mun verða á...
Nú fer að styttast í að árið 2017 verði gert upp á skagafrettir.is. Við erum byrjuð á niðurtalningu á mest lesnu fréttum ársins en listinn teygir sig reyndar aðeins inn í lok ársins 2016 á upphafsdögum skagafrettir.is. Alls verða 30 mest lesnu fréttir tímabilsins gerðar upp næstu vikurnar og við byrjuðum á sætum nr. 25.-30....
Það eru fjölbreytt störf í boði fyrir áhugasama hjá Akraneskaupstað. Störfin eru öll auglýst á vefnum akranes.is. Ef þú ert með háskólapróf í tölvunarfræði, kerfisfræði eða góða starfsreynslu í því fagi þá er bærinn að leita eftir kerfisstjóra. Einnig vantar kennara, þroska – eða iðkuþjálfara í Brekkubæjarskóla. Þeir sem eru með færni í samskiptum, lipurð,...