„Þessi mynd er tekin í Gautaborg í Svíþjóð um s.l. helgi þar sem ég tók þátt í Highline Meeting. Línan er um 22 metrar á lengd og í 25 metra hæð. Ég var svo sem ekki að hugsa um neitt annað en að detta ekki niður úr þessari hæð. Það er lína í klifurbeltið sem tengist...
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni tók gott stökk á heimslistanum í golfi eftir góðan árangur hennar á LET Access mótaröðinni í Sviss um liðna helgi. Valdís Þóra er í sæti nr. 602 á heimslistanum og fór upp um 50 sæti. Valdís Þóra var að leika á næst sterkustu mótaröð Evrópu en hún er með...
Það eru fjölmörg störf í boði og laus til umsóknar hjá Akraneskaupstað – en á akranes.is er að finna ítarlega lýsingu á þeim störfum sem standa til boða fyrir þá sem hafa áhuga. Það vantar nokkra kennara í Tónlistaskóla Akraness: Verkefnastjóra sýningar á Byggðasafni Akraness: Það vantar sálfræðing á skóla – og frístundasviði: Það vantar...
Ágúst Júlíusson setti nýtt Akranesmet á sterku alþjóðlegu sundmóti sem fram fór í Bergen í Noregi. Alls tóku sex sundmenn frá Sundfélagi Akraness á þessu móti, en alls voru 624 keppendur frá 11 þjóðum. Margir af bestu sundmönnum heims voru á meðal keppenda og má þarn nefna heimsmethafana Sarah Sjostrom og Katinka Hosszu, ásamt okkar...
Það er ýmislegt sem þarf að varast á framandi slóðum. Því fékk kylfingurinn Björn Bergmann Þórhallsson að kynnast þegar hann settist ber að ofan í stól sem var á svölunum á golfhóteli í Alicante. Stóllinn var sjóðheitur eins og sjá má á þessari mynd. Það var 28 gráðu lofthiti á þessum degi og stóllinn, sem...
Það var mikil spenna í gær þegar Útsvarslið Akraness hafði betur gegn Hafnfirðingum í undanúrslitum Útsvars á RÚV. Í aðdraganda viðureigninnar var varamaðurinn Valgaður Lyngdal Jónsson ræstur út til þess að taka sæti Vilborgar Þórunnar Guðbjartsdóttur (Villa) sem var á Ísafirði og flugi sem hún ætlaði að taka til Reykjavíkur var fellt niður. Valgarður, Gerður...
„Við höfum alltaf verið sannfærð um að við séum að fara að tapa í hinum viðureignunum í þessari keppni. Ég held að það verði engin breyting á því enda hefur það gefist vel hingað til“ segir Örn Arnarson og glottir. „Öddi“ er einn af þremur liðsmönnum hins geysisterka Útsvarsliðs Skagamanna sem keppir í undanúrslitum gegn...
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi byrjaði gríðarlega vel á LET Access mótaröðinni í dag. Mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu á eftir LET Evrópumótaröðinni þar sem Valdís Þóra er með keppnisrétt. Mótið fer fram í Sviss og lék Valdís á 70 höggum eða -2. Valdís er í 8.-12. sæti og er aðeins...
Það er ávallt mikið um að vera í félagslífinu í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Nýverið var kosið í stjórn NFFA og niðurstöðurnar voru kynntar í gær á aðalfundi NFFA. Guðjón Snær Magnússon hlaut flest atkvæði í kosningunni um formannssætið og meðstjórnina skipa þau Aðalbjörg Egilsdóttir, Atli Vikar Ingimundarson, Sandra Ósk Alfreðsdóttur og Tómas Andri Jörgensen....
Nemendur úr Brekkubæjarskóla fóru á kostum í stærðfræðikeppni sem fram fór í Fjölbrautaskóla Vesturlands á dögunum. Brekkubæjarkrakkarnir höfnuðu í tíu efstu sætunum í sínum árgangi og 13 af þeim 30 nemendum sem enduðu í efstu sætunum í þessari keppni. Frábær árangur hjá nemendunum. Verðlaunaafhendingin fór fram í páskafríinu og fáir sem komust á hana og...