Leikmenn og stjórnendur Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi héldu uppskeruhátíð um s.l. helgi þar sem að veittar voru ýmsar viðurkenningar. Viðburðurinn er sögulegur þar sem að um var að ræða uppskeruhátíð s.l. tveggja tímabila 2020 og 2021. Það voru því fjölmargar viðurkenningar veittar á lokahófinu. Úrslit...
Sambandsþing Ungmennafélags Íslands fór fram á Húsavík um helgina. Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness, var kjörin í varastjórn UMFÍ á þinginu. Þetta er í fyrsta sinn sem fulltrúar frá íþróttabandalagi setjast í stjórn UMFÍ því íþróttabandalögin fengu aðild að UMFÍ árið 2019. Málfríður Sigurhansdóttir frá...
ÍA og Víkingur áttust við í dag í úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ í karlaflokki í knattspyrnu. Þetta er í fyrsta sinn sem liðin eigast við í úrslitum bikarkeppninnar. Víkingar höfðu betur 3-0 og fögnuðu bikarmeistaratitlinum í þriðja sinn. Staðan var 2-0 í hálfleik en Skagamenn náðu...
„Við erum ekki aukaleikarar í lélegri bíómynd (eins og fjölmiðlar og sumir mótherjar vilja halda), við erum ÍA,“ skrifar Eggert Hjelm Herbertsson formaður Knattspyrnufélags ÍA á fésbókarsíðu sína í morgun. Karlalið ÍA leikur til úrslita gegn Víkingum úr Reykjavík á Laugardalsvelli í dag kl. 15...
Það er enn hægt að kaupa miða á bikarúrslitaleik ÍA og Víkings úr Reykjavík í Mjólkurbikarkeppni karla – en leikurinn hefst kl. 15 í dag á Laugardalsvelli. Athygli er vakinn á því að miðar eru aðeins seldir á Tix.is. – það er því ekki miðasala...
Það stefnir í góða aðsókn á bikarúrslitaleik ÍA og Víkings úr Reykjavík í Mjólkurbikarkeppni KSÍ. Síðdegis í gær var búið að selja tæplega 4.600 miða á leikinn sem fer fram laugardaginn 16. október kl. 15.00 á Laugardalsvelli. Athygli er vakinn á því að miðar eru...
Feðgarnir Jón Gunnlaugsson og Stefán Jónsson hafa á undanförnum dögum birt áhugaverða sögumola um úrslitaleiki ÍA í bikarkeppni karla í knattspyrnu á fésbókarsíðunni Á Sigurslóð. ÍA og Víkingar úr Reykjavík eigast við í úrslitum laugardaginn 16. október á Laugardalsvelli og er þetta í 20. sinn...
Skagamaðurinn Haukur Andri Haraldsson hefur samið við Knattspyrnufélag ÍA – en hann er fæddur árið 2005. Haukur Andri gerir samning út keppnistímabilið 2024. Haukur Andri var nýverið valinn í U-17 ára landslið Íslands. Hann er leikmaður í 3. flokki ÍA en hann fékk eitt tækifæri...
Jón Þór Hauksson hefur skrifað undir samning við Knattspyrnufélagið Vestra og mun hann halda áfram þjálfun liðsins. Jón Þór tók við liðinu um miðjan júlí á þessu ári og náði frábærum árangri með liðið í næst efstu deild og Mjólkurbikarkeppni KSÍ. Frá þessu er greint...
Í byrjun október var gripið til aðgerða í Brekkubæjarskóla á Akranesi sem miða að því að nemendur og starfsfólk nýti ekki íverustaði þar sem talið er að loftgæði séu ófullnægjandi. Verkís gerði úttekt á húsnæði Brekkubæjarskóla vegna heilsufarseinkenna hjá nokkrum nemendum og starfsmönnum skólans. Í...