Fjölmenni mætti í dag þegar Frystihúsið við Akratorg var opnað með formlegum hætti. Löng biðröð var við Akratorgið þegar dyrnar á Frystihúsinu voru opnaðar upp á gátt kl. 13.00. Frystihúsið stendur undir nafni en um er að ræða lifandi ísbúð, kaffihús og sælkerastaður fyrir alla...
Skagamaðurinn Jakob Svavar Sigurðsson úr Hestamannafélaginu Dreyra náði frábærum árangri á fjórða móti tímabilsins í meistaradeild Líflands í hestaíþróttum. Mótið fór fram í gærkvöld í Ingólfshvoli í Ölfusi. Keppnisgreinin, gæðingafimi, er mjög krefjandi keppnisgrein í hestaíþróttum. Jakob Svavar keppti á hestinum Hálfmána frá Steinsholti og...
Getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA rúllar nú inn í tuttugustu og fyrstu viku tímabilsins. Spennan fer vaxandi með hverri vikunni sem líður. Sigurður M. Sigurðsson og Magnús Brandsson eigast við að nýju í þessari umferð en þeir skildu jafnir um síðustu helgi með 8 rétta. Sigurður...
Golfklúbbur Mosfellsbæjar og Golfklúbburinn Leynir á Akranesi hafa komist að samkomulagi um viðamikið samstarf á milli golfklúbbanna. Formenn klúbbanna, Kári Tryggvason (GM) og O. Pétur Ottesen (GL) skrifuðu undir samning þess efnis í dag í Mosfellsbæ. Frá þessu er greint á golf.is og heimasíðum klúbbanna....
Knattspyrnudómarafélag Akraness er elsta starfandi knattspyrnudómarafélag landsins en félagið hélt upp á hálfrar aldar afmæli á síðasta ári. Afmælishátíð félagsins og ýmsum viðburðum sem félagið hafði skipulagt á árinu 2020 hefur ítrekað verið frestað vegna Covid-19 ástandsins en úr því verður bætt við fyrsta tækifæri...
Landsbankamót ÍA í badminton fer fram um næstu helgi í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Mótið er hluti af Domino’s Tríó unglingamótaröð Badmintonsambands Íslands og gefur stig á styrkleikalista sambandsins. Alls eru 159 keppendur skráðir til leiks og koma þeir frá 8 félögum, BH, ÍA, Hamar, KR,...
Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir, skrifar fyrir hönd stýrihóps um Heilsueflandi samfélags á Akranesi. Embætti landlæknis birtir á hverju ári lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum á Íslandi og er þetta liður í því að veita betri yfirsýn yfir lýðheilsu í hverju umdæmi fyrir sig. Hvert umdæmi er svo borið...
Apríl Arkitekter, Kanon Arkitektar og Landmótun sf. ásamt Sei Stúdíó eru þau þrjú teymi sem taka þátt í hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Langasandssvæðisins á Akranesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Alls voru fjórtán fagteymi sem sóttust eftir að taka þátt. Markmiðið með...
Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter fer fram um næstu helgi á Akranesi og verður þetta í fimmta sinn sem þessi kvikmyndahátíð fer fram. Sýningar fara fram í Gamla frystihúsinu við Bárugötu – og er takmarkað framboð á miðum á hátíðina vegna samkomutakmarkana. Akraneskaupstaður styrkir þetta verkefni. Á föstudaginn...
ÍA og Grótta gerðu jafntefli í gær í Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu – en leikurinn fór fram í Akraneshöll. Grótta, sem leikur í næst efstu deild. komst í 2-0 í fyrri hálfleik en Skagamenn náðu að jafna metin í síðari hálfleik með mörkum frá Aroni...