Björgunarsveitir Landsbjargar fá allt í allt rúmlega 30 nýjar færanlegar rafstöðvar á þessu ári. Tilgangurinn er að efla rekstraröryggi í fjarskiptum þegar óveður geysa eða hamfarir verða og tryggja eins og kostur er að hægt verði að hringja eftir aðstoð í neyð og kalla út...
Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við sóttvarnalækni hefur útbúið bólusetningardagatal vegna COVID-19, miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um afhendingu bóluefna og áætlanir þar að lútandi. Dagatalinu, sem er hér fyrir neðan, er ætlað að gefa fólki vísbendingu um hvenær líklegt er að bólusetning hefjist í einstökum forgangshópum. Dagatalið...
Eigendur Eðalfisks ehf. í Borgarnesi hafa samþykkt kauptilboð Brimilshólma ehf. í allt hlutafé félagsins. Tilboðið er þó háð tilteknum fyrirvörum af hálfu beggja aðila. Þetta kemur fram í tilkynningu. Fjölmennur hópur fjárfesta á Akranesi stendur á bak við Brimilshóla en félagið keypti einnig Norðanfisk á Akranesi...
Tæplega 20 ungir iðkendur úr röðum ÍA tóku þátt í skemmtilegu sundmóti sem ÍA, Ármann og UMFA stóðu að. „Smámótið“ fór fram í Laugardalslaug sunnudaginn 14. febrúar s.l. og var mikil gleði ríkjandi hjá keppendunum eftir langt keppnishlé. Í tilkynningu frá Sundélagi Akraness kemur fram...
Getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA rúllar nú inn í átjándu viku tímabilsins. Á undanförnum vikum hafa margir snillingar rúllað upp sínum viðureignum – Óskar Rafn Þorsteinsson komst áfram í 15. umferð en varð að játa sig sigraðann í 16. umferð gegn Smára Guðjónssyni. Gísli Gíslason og...
Nýr kafli verður skrifaður í langa íþróttasögu ÍA þegar keppt verður í fyrsta sinn í nýja fimleikahúsinu við Vesturgötu. Laugardaginn 20. febrúar fer fram GK-mótið í hópfimleikum og er mótið á vegum Fimleikasambands Íslands og Fimleikafélags ÍA. Sjálfboðaliðarnir sem halda úti ÍATV, verða með beina...
Fasteignamarkaðurinn er líflegur á Akranesi og bæjarfélagið hefur stækkað jafnt og þétt. Nýjar íbúðir njóta vinsælda hjá kaupendum þar má nefna sem dæmi að 13 nýjar íbúðir við Asparskóga 13 eru nú þegar seldar – aðeins 13 mánuðum eftir að framkvæmdir hófust hjá byggingafyrirtækinu Sjammi...
Sænska knattspyrnuliðið Norrköping hefur á undanförnum misserum verið með sterka tengingu á Akranes. Og í þessari viku fékk félagið til sín þjálfara og leikmann sem eru einnig með slíka tengingu á Skagann. Hjá félaginu eru tveir leikmenn úr röðum ÍA, frændurnir Oliver Stefánsson og Ísak...
Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum um umsókn frá Tónlistarskóla Akraness um breytingar á sviði í Tónbergi. Um er að ræða framkvæmd sem var búið að samþykkja í fjárhagsáætlun ársins 2020 en ekki náðist að ljúka við verkefnið fyrir áramótin. Breytingin mun kosta tæplega...
Fyrirhugaðar eru endurbætur á áhorfendastúkunni við knattspyrnuvöllinn við Jaðarsbakka. Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum að veita 20,2 milljónum kr. í endurbætur á stúkunni en verkefnið felst að mestu í að setja ný sæti í stúkuna. Um er að ræða framkvæmd sem búið var að...