Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, fagnar þrítugsafmæli sínu í dag, 4. desember 2019. Valdís Þóra er þessa stundina stödd í Afríku þar sem hún hefur leik á morgun, fimmtudag, á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar. Þetta kemur fram á vef Golfsambands Íslands. Lokamót tímabilsins...
Það verður mikið um að vera á sviðinu í Tónbergi næsta fimmtudag þar sem að fjórir öflugir kórar sameina krafta sína á jólatónleikum. Karlakórinn Svanir, Kvennakórinn Ymur, Kór Saurbæjarprestakalls og Grundatangakórinn verða þar með sameiginlega dagskrá. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 og er hægt að nálgast...
Það er alltaf mikið um að vera á Smiðjuloftinu á Akranesi hjá þeim Þórði Sævarssyni og Valgerði Jónsdóttur. Í desember verður boðið upp á ýmsa valkosti til að upplifa jólastemninguna með öðrum hætti en venjulega. Þar má nefna jóla- og fjölskyldutíma, og einnig er hægt...
Á síðasta fundi skipulags – og umhverfisráðs Akraness var samþykkt að ganga að tilboðum vegna kaupa á útbúnaði í nýtt fimleikahús sem er í byggingu við Vesturgötu. Karl Jóhann Haagensen verkefnastjóri fór yfir þessi atriði á fundinum með nefndinni. Skipulags- og umhverfisráð samþykkti að ganga...
Viktor Óttar Guðmundsson, fimm ára gamall Skagamaður, fékk þann heiður að tendra jólaljósin á Akratorgi s.l. laugardag að viðstöddu fjölmenni. Þetta var einnig afmælisdagur Viktors Óttars. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Skólakór skipaður yngri nemendum Grundaskóla flutti nokkra jólasöngva en kórstjórinn er Valgerður Jónsdóttir....
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur miklar áhyggjur af stöðu mála hjá Járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga. Í pistli sem Vilhjálmur skrifar á heimasíðu VLFA segir formaðurinn m.a. að viðsjárverðir tímar eru framundan hjá fyrirtækinu vegna gríðarlegrar hækkunar Landsvirkjunnar á raforkuverði til Elkem. Pistil Vilhjálms má...
Guðlaug við Langasand hefur á undanförnum mánuðum slegið í gegn hjá íbúum á Akranesi og ferðafólki. Yfir 30.000 einstaklingar hafa komið i Guðlaugina frá því hún opnaði með formlegum hætti. Hlédís Sveinsdóttir og Heiðar Mar Björnsson eru með áhugavert innslag um Guðlaugina, Langasand og sjósund...
Íslenska ríkið var sýknað af kröfu Ágústu Elínar Ingþórsdóttur, skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn í morgun. Dómurinn er hér í heild sinni. RÚV greindi fyrst frá þessu í hádegisfréttum í dag. Ágústa Elín stefndi íslenska ríkinu vegna embættisfærslna Lilju Alfreðsdóttur,...
Sundkonan Brynhildur Traustadóttir heldur áfram að bæta afrek sín í sundlauginni. Skagakonan keppti á Norðurlandameistaramótinu sem fram fór í Færeyjum um s.l. helgi. Þar bætti Brynhildur árangur sinn í 800 metra skriðsundi og var hún nálægt því að komast á verðlaunapall – en hún endaði...
„Eftir strangar æfingar er ómetanlegt að slappa af í nöfnu minni, henni Guðlaugu,“ segir afreksíþróttakonan Guðlaug Edda Hannesdóttir. Þríþrautarkonan Guðlaug Edda hefur á undanförnum dögum og vikum stundað æfingar á Akranesi. Hún er nýflutt til Íslands frá Óðinsvéum í Danmörku, þar sem hún og unnusti...