Anna Valgerður Árnadóttir og Oliwia Huba eru eldklárar og hugmyndaríkir nemendur úr 6 BS í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Þær gerðu sér lítið fyrir og stóðu uppi sem sigurvegarar í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2019. Anna Valgerður og Oliwia skiluðu af sér tæki sem kallast Hafragrautaruppáhellari. Hugvit þeirra...
Það var mikið um að vera á Akratorgi í gær í veðurblíðunni á Akranesi. Þar var boðið upp á dans þar sem að nemendur í 6. bekk Brekkubæjarskóla brugðu á leik ásamt vinabekk frá Carr’s Glens Primary School í Belfast á Norður-Írlandi. Þetta verkefni er...
Stórtíðindi frá einum stærsta vinnustað Akurnesinga. Nýr forstjóri tekur við af Ragnari Guðmundssyni. Ragnar Guðmundsson hefur óskað eftir að láta af störfum sem forstjóri Norðuráls. Ragnar hóf störf hjá Norðuráli árið 1997 sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og tók við sem forstjóri árið 2007. Ragnar mun verða...
Tæplega 30 keppendur frá Sundfélagi Akraness tóku þátt á sundmóti ÍRB sem fram fór um s.l. helgi í Reykjanesbæ. Sundfólkið úr ÍA landaði alls 25 verðlaunapeningum á þessu móti og margir bættu árangur sinn. Enrique Snær Llorens Sigurðsson setti nýtt Akranesmet í flokki 15-17 ára...
Skagamenn halda áfram að klífa upp metorðastigann í klifuríþróttinni á Íslandi. Um s.l. helgi átti ÍA mjög góðu gengi að fagna á Íslandsmeistaramótaröðinni – en um var að ræða annað mót tímabilsins. Tveir keppendur frá ÍA náðu að komast á verðlaunapall. Í C-flokki stúlkna hafnaði...
Skagamenn voru fjölmennir á Kópavogsvelli í kvöld þegar ÍA sótti Breiðablik heim í Pepsi-Maxdeild karla í knattspyrnu í kvöld. Einar Logi Einarsson skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma og tryggði ÍA stigin þrjú í toppslagnum. Gleðin var einlæg í leikslok eins og sjá má í...
Einar Logi Einarsson var hetja Skagamanna í kvöld þegar hann skoraði sigurmark ÍA gegn Breiðabliki í toppslag Pepsi-Maxdeildar karla. Liðin voru jöfn að stigum í efsta sæti deildarinn fyrir leikinn. Með sigrinum er ÍA eitt í efsta sæti deildarinnar með 13 stig að loknum 5...
Ungt og efnilegt lið ÍA sigraði Fjölni á útivelli, 3-1, í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu í dag. Um var að ræða leik i 2. umferð næst efstu deildar en ÍA gerði jafntefli gegn FH í 1. umferð. Staðan var jöfn, 0-0, í hálfleik en Erla...
Fríða Halldórsdóttir, leikmaður kvennaliðs ÍA í knattspyrnu, var besti leikmaður 16-liða úrslita Mjólkurbikarkeppni KSÍ. Fríða og félagar hennar í ÍA lögðu FH 1-0 í æsispennandi leik. Frá þessu er greint á fésbókarsíðu Mjólkurbikarkeppninnar. Í dag var dregið í 16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna. Liðin úr Pepsi-Maxdeild...
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari karlaliðs ÍA segir að það verði skemmtilegt verkefni að mæta Breiðabliki á útivelli í toppslag Pepsi-Maxdeildar karla á sunnudagskvöld á Kópavogsvelli. Í samtali við skagafrettir.is segir þjálfarinn að hópurinn sé samstilltur og allir hafi trú á sigri gegn Breiðabliki. Leikurinn fer...