„Loksins ! Einkunnarorð og heiti á fyrirlestrum Arndísar Höllu, með hennar eigin skrift. Nafnið er einnig hennar, eins og hún merkti blöð sín og bækur. Mér líður mjög vel með þetta,“ skrifar Jóhannes Finnur Halldórsson á fésbókarsíðu sína í dag. Jóhannes skartar nú fallegu húðflúri...
„Á meðan ég fer að leika mér í golfherminum hjá Golfklúbbnum Leyni þá tekur hún Ásta mín völdin í Galleríinu,“ segir listmaðurinn Bjarni Þór Bjarnason við Skagafréttir. Bjarni Þór, sem var valinn Skagamaður ársins 2018, á Þorrablóti Skagamanna í janúar er afar ánægður með þá...
Það var góð mæting í gær þegar starfsfólk Landmælinga Íslands bauð gestum í göngutúr um Akranes. Verkefnið var hluti af vetrarhátíð Írskra daga sem hófust í gær fimmtudag. Guðni Hannesson og Rannveig L. Benediktsdóttir fóru fyrir hópnum sem var vel skipaður eins og sjá má...
Kári hefur fengið góðan liðsstyrk í 2. deildinni í sumar í knattspyrnu karla. Skagamaðurinn Ragnar Leósson hefur ákveðið að leika með liðinu en hann kemur frá ÍA. Þetta kemur fram á fotbolti.net. Ragnar er 27 ára gamall og hefur komið víða við á ferlinum en hann...
Opið bréf til Bæjarstjórnar Akraness Í dag, föstudaginn 15. mars hefst loftslagsverkfall á Akranesi, innblásið af hinni 16 ára sænsku Gretu Thunberg. Akranes fer þá í hóp yfir 1.600 staða í 105 löndum þar sem nemendur og aðrir hafa mótmælt slæmum vinnubrögðum stjórnvalda um allan...
Guðlaugin við Langasand hefur slegið í gegn. Líklega hafa um 3000 gestir nýtt sér laugina frá opnun hennar. Bæjarráð samþykkti í dag að stórauka opnuartíma Guðlaugar. Stefnt er að því að bæta aðstöðu og aðgengi á svæðinu enn frekar. Akraneskaupstaður hefur unnið markvisst að því...
Í kvöld bárust risafréttir úr herbúðum Knattspyrnufélags ÍA. Stjórn félagsins framlengdi núverandi samningi við þjálfara karlaliðsins til næstu fimm ára. „Ég er mjög ánægður með það mikla traust sem mér er sýnt með því að framlengja samningin minn við ÍA. Þetta er félagið sem ég...
Það stendur mikið til á Akranesi um helgina þegar landsmót barna – og unglingakóra fer fram á Akranesi. Skólakór Grundaskóla er gestgjafi mótsins en vel á þriðja hundrað börn – og ungmenni ætla að þenja raddböndin á Akranesi dagana 15.-17. mars í Grundaskóla. Mót eins...
Ursula Árnadóttir er nýr formaður Rauða krossins á Akranesi og Hvalfjarðarsveitar. Alda Vilhjálmsdóttir, sem hefur gegnt formennsku í áraraðir, gaf ekki kost á sér á aðalfundinum sem fram fór 18. febrúar. Alda Vilhjálmsdóttir er hér til vinstri en nýr formaður er Ursula Árnadóttir. Tilgangur Rauða...
Skagakonan Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tekur við lyklavöldum í dómsmálaráðuneytinu af Sigríði Andersen. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins greindi frá þessu rétt í þessu. Þórdís Kolbrún tekur við embættinu vegna ákvörðunar Sigríðar um að stíga til hliðar úr ráðherrastóli í kjölfar dóms Mannréttindadómstóls Evrópu...