Skaginn 3X hlaut í gær íslensku sjávarútvegsverðlaunin fyrir framlag sitt til verðmætasköpunar í fiskvinnslu. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem teljast til alþjóðlegra stórfyrirtækja. Þetta er í sjötta sinn sem slík verðlaunaafhending fer fram en íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru fyrst veitt árið 1999. Virðing fyrir þessum verðlaunum...
Það var líf og fjör í gærdag í blíðviðrinu á Akranesi þegar tæplega 800 manns fóru út til þess að taka þátt í hinu árlega skólahlaupi. Vegna framkvæmda við Langasand var hlaupahringnum breytt og var hlaupið í kringum æfingasvæði ÍA. Þátttakendur fóru ýmsar vegalengdir á...
Það er alltaf nóg um að vera hjá Verkalýðsfélag Akraness í því að verja réttindi félagsmanna. Í frétt vef VFLA kemur fram að í síðustu viku hafi félagið komið að sjö málum hjá félagsmönnum VFLA sem hafi skilað einni milljón kr. Það er óhætt að...
Ein stærsta tískufatakeðja Norður-Evrópu, Lindex, mun opna verslun á Akranesi í byrjun nóvember. Frá þessu er greint á fréttavefnum skessuhorn.is. Albert Þór Magnússon umboðsaðili Lindex á Íslandi segir í viðtali við skessuhorn.is að verslunin opni 4. nóvember við Dalbraut 1 í rými á milli Krónunnar og...
Síðdegis á miðvikudag, 13. september, fer fram lýðheilsuganga á Akranesi sem er liður í afmælisdagskrá Ferðafélags Íslands. Gengið verður á Guðfinnuþúfu á Akrafjalli. Lagt verður af stað frá bílaplaninu við Akrafjall kl. 18:00 og eru fararstjórar Anna Bjarnadóttir og Ólafur Adolfsson. Eins og áður segir eru...
Skagamaðurinn Bergdís Fanney Einarsdóttir skoraði mark fyrir U19 ára landslið Íslands í dag í stórsigri liðsins í undankeppni Evrópumótsins. Mótherjar Íslands í dag var lið Svartfjallalands. Markalaust var í hálfleik en í þeim síðari skoraði Ísland 7 mörk og lokatölur leiksins 7-0. Bergdís Fanney kom...
Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu, klassískri bekkpressu og bekkpressu með útbúnaði fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu um s.l. helgi hér á Akranesi. Skagamenn létu mikið að sér kveða og þar fór Einar Örn Guðnason fremstur í flokki. Einar varð annar í klassískri bekkpressu, og Íslandsmeistari í...
Feðgarnir Daníel Andrason og Andri Júlíusson ættu að íhuga það vel að kaupa miða í Viking lotto og Eurojackpot í þessari viku miðað við heppnina sem fylgir þeim þessa dagana. Feðgarnir voru allavega mjög samtaka í þessu myndbandi sem þeir birtu á Youtube þar sem...
Kvennalið ÍA í knattspyrnu lauk keppnistímabilinu í næst efstu deild með stórsigri gegn Sindra frá Hornafirði á laugardaginn. Leikurinn endaði 6-0 og var þetta áttundi sigurleikur ÍA á tímabilinu. Liðið endaði í 5. sæti deildarinnar með 27 stig en liðin sem fóru upp í Pepsi-deildina...
Golfklúbburinn Leynir og Akraneskaupstaður skrifuðu í gær undir samninga um uppbyggingu á Frístundamiðstöð við Garðavöll. Frístundamiðstöðin verður rúmlega 1000m2 að stærð og skiptist í 700m2 jarðhæð og 300m kjallara. Frístundamiðstöðin mun hýsa félagsstarf Leynis og aðra frístundastarfssemi á vegum Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Um þessar...