• Karlalið ÍA gerði sér lítið fyrir og sigraði topplið Hamars í gær í 1. deild Íslandsmótsins, 97-91. Leikurinn fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Með sigrinum færðist lið ÍA nær næstu liðum í töflunni en ÍA er samt sem áður í næst neðsta sæti deildarinnar. Sigur ÍA kom án efa flestum á óvart þar sem að Hvergerðingar...

  • Oliver Stefánsson mun leika með Íslandsmeistaraliði Breiðabliks á næstu leiktíð – en Skagmaðurinn hefur gert samning við félagið út árið 2025. Oliver er fæddur þann 3. ágúst árið 2002 og verður því 21 árs á þessu ári. Hann lék með ÍA á síðustu leiktíð þar sem hann var í láni frá sænska liðinu Norrköping. Oliver gerði starfslokasamning...

  • Í nýjustu upplýsingum um mannfjölda á Íslandi sem birtur er á vef Hagstofu Íslands kemur fram að íbúar á Akranesi voru alls 8.035 í þann 1. febrúar 2023. Frá því í desember 2021 hefur íbúum á Akranesi fjölgað úr 7.838 í 8.035 eða um 197 einstaklinga. Til samanburðar þá voru rétt rúmlega 900 íbúar á Akranesi fyrir...

  • Akraneskaupstaður er um þessar mundir í stefnumótunarvinnu fyrir sveitarfélagið. Markmiðið er að móta yfirstefnu fyrir næstu 5-10 árin og setja fram metnaðarfulla sýn um árangur og aukna þjónustu til framtíðar samhliða fjárhagslegum markmiðum sveitarfélagsins og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Vinnan felur í sér að draga fram lykil áskoranir og tækifæri, móta...

  • Í dag fer fram fundur hjá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi þar sem að samskipti verða rauði þráðurinn í umræðunni.Á fundinum mun allt starfsfólk skólans ásamt fulltrúum nemenda fjalla um samskipti – og þann 9. mars verður haldinn svokallaður lýðræðisfundur þar sem vinna fundarins í dag verður kynnt enn frekar. Þetta kemur fram í tilkynningu á...

  • Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA, KFÍA, fer fram mánudaginn 20. febrúar 2023. Félagið hefur birt ársreikning félagsins fyrir árið 2022. Þar kemur fram að umtalsvert tap var á hefðbundinni starfsemi í rekstri félagsins – eða sem nemur 62 milljónum kr. Tekjur af samningum vegna sölu leikmanna gerðu það að verkum að reksturinn skilaði 11 milljóna kr. hagnaði. Tekjur af...

  • Fjölmennur hópur sundfólks úr röðum Sundfélags Akraness tók þátt á Gullmóti KR sem fram fór um liðna helgi. Alls tóku 32 frá ÍA þátt en mótið hefur verið í dvala undanfarin tvö ár vegna heimsfaraldurs og var mikil tilhlökkun hjá keppendum að fá tækifæri til þess að taka þátt á ný.Þetta kemur fram í tilkynningu...

  • ÍA og Sindri frá Höfn í Hornafirði áttust við í kvöld á Íslandsmótinu í körfuknattleik – næst efstu deild í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði liðin á lokaspretti Íslandsmótsins þar sem að sæti í úrslitakeppninni er í boði.  Í stuttu máli þá náðu Skagamenn sér aldrei á strik í þessum leik –...

  • Fjölmiðlafyrirtækið N4 ehf. sem staðsett er á Akureyri hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum eftir að tilraunir til að tryggja framtíð fyrirtækisins báru ekki árangur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá N4 sem er í heild sinni hér fyrir neðan. Hlédís Sveinsdóttir og Heiðar Mar Björnsson hafa á undanförnum árum verið með öfluga umfjöllun um Vesturland í þáttunum Að...

  • Í Brekkubæjarskóla hafa nemendur í elsta árgangi skólans, 10. bekk, unnið að ýmsum þemaverkefnum í vetur. Nýverið var níundi áratugur síðustu aldar verkefnið í þemavinnunni. Í frétt á heimasíðu Brekkubæjarskóla kemur fram að í þemanámi er tiltekið viðfangsefni skoðað út frá mörgum námsgreinum sem eru samþættar í fjölbreytt verkefni. Í nýjasta þema tíunda bekkjar var níundi áratugur...

Loading...