• Akraneskaupstaður hefur á undanförnum árum veitt viðurkenningar í þágu umhverfisvitundar, hvernig fólk skynjar umhverfi sitt og hefur áhrif á snyrtingu og fegrun þess. Ingunn Sveinsdóttir og Jónas H. Ottósson fengu viðurkenningu fyrir tré ársins sem stendur við Vesturgötu 63. Verðlaunin voru afhent við setningu Vökudaga í Tónbergi þann 27. október s.l. Í umsögn Akraneskaupstaðar segir:...

  • Elstu nemendur leikskólans Garðasels hófu skólagöngu sína í nýrri og glæsilegri byggingu í síðustu viku eða þann 28. október. Þegar skólinn verður fullkláraður verða alls sex deildir en búið er að klára tvær deildir. Töluverðar tafir hafa verið á framkvæmdinni við skólann og hafa elstu nemendur verið í bráðabirgðahúsnæði í skóladagvist Brekkubæjarskóla – þar sem...

  • Akraneskaupstaður hefur á undanförnum árum veitt viðurkenningar í þágu umhverfisvitundar, hvernig fólk skynjar umhverfi sitt og hefur áhrif á snyrtingu og fegrun þess. Einar Ottó Jónsson fékk viðurkenningu fyrir fallega aðkomu fyrir forgarð sinn að Esjubraut 18. Verðlaunin voru afhent við setningu Vökudaga í Tónbergi þann 27. október s.l. Jón Arnar garðyrkjustjóri, Ásta Huld, Guðmundur...

  • Brynhildur Björnsdóttir og Guðmundur Sigurbjörnsson fengu viðurkenningu frá Akraneskaupstað fyrir lóð sína að Bakkatúni 4 við setningu Vökudaga í Tónbergi þann 27. október s.l. Akraneskaupstaður hefur á undanförnum árum veitt viðurkenningar í þágu umhverfisvitundar, hvernig fólk skynjar umhverfi sitt og hefur áhrif á snyrtingu og fegrun þess. Í tilkynningu frá Akraneskaupstað kemur fram að Brynhildur...

  • „Allir hlutaðeigandi gera sér grein fyrir að núverandi staða er óviðunandi,“ segir í fundargerð bæjarráðs um stöðuna sem er uppi vegna húsnæðismála Búkollu og móttöku einnota umbúða. Velferðar – og mannréttindinaráð Akraness hefur lagt áherslu á að lausn finnist í húsnæðimálum Búkollu og móttöku einnota umbúða sem fyrst. Í bókun ráðsins kemur fram að tryggja...

  • Íslandsbanki var með hagstæðasta tilboðið í langtímafjármögnun Akraneskaupstaðar en þrír bankar gerðu tilboð í verkefnið. Á síðasta fundi bæjarráðs var samþykkt að fela Sævari Frey Þráinssyni, bæjarstjóra Akraness, að vinna málið áfram Í fundargerði bæjarráðs kemur fram að Arion banki og Landsbanki hafi lagt fram tilboð og þakkar ráðið öllum hlutaðeigandi fyrir framlögð tilboð.

  • Anders Gabriel Adersteg var hetja Skagamanna í kvöld þegar hann tryggði ÍA 88-85 sigur á útivelli gegn Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik. Adersteg skoraði sigurkörfuna þegar leiktíminn rann út. Þetta var þriðji sigur ÍA í fyrstu sex umferðum Íslandsmótsins í næst efstu deild. Næsti leikur ÍA er gegn Hrunamönnum þann 4. nóvember á...

  • Guðbjörg Árnadóttir, Hallbera Jóhannesdóttir og Halldóra Jónsdóttir fengu í gær afhent menningarverðlaun Akraness fyrir árið 2022. Þær hafa á undanförnum árum staðið að verkefninu „Kellingar“ og fært bæjarbúum fróðleik og skemmtun í göngum um Akranes. Guðbjörg, Hallbera og Halldóra fengu verðlaunin afhent í gær þegar menningar – og listahátíðin Vökudagar var sett með formlegum hætti....

  • Akranes var mikið í fréttum í dag vegna stórbruna á umráðasvæði Nova Terra þar sem að eldur kviknaði í mörgum tugum bílhræa. Eldurinn kviknaði þegar unnið var við að rífa niður bílhræ og var allt slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út í þetta risastóra verkefni. Aðstoð barst einnig frá slökkviliði Borgarbyggðar. Jens Heiðar Ragnarsson, slökkviliðsstjóri...

  • Vökudagar verða settir með formlegum hætti fimmtudaginn 27. október í Tónlistarskólanum á Akranesi þar sem að menningarverðlaun og umhverfisviðurkenningar verða afhentar. Þetta er í 20. sinn sem Vökudagar fara fram á Akranesi og er dagskrá menningarhátíðarinnar fjölbreytt og glæsileg. Nánar á skagalif.is Fimmtudagur 27. okt. 16:00 – 21:00Opnun samsýningar 32ja listamanna á Akranesi. „Falið afl“...

Loading...