Nýverið var nýtt fulltrúaráð skipað við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Hlutverk ráðsins, sem skipað er til fjögurra ára, er að vera skólanefnd til ráðuneytis um þjónustu skólans á Vesturlandi og vera tengiliður á milli skólanefndar og sveitarfélaga sem eiga aðild að skólanum. Fulltrúaráð FVA er skipað fulltrúum þeirra sex sveitarfélaga sem standa að skólanum og...
„Markmiðið með þessu verkefni er að búa til metnaðarfulla stefnu sem ÍA mun vinna eftir á komandi árum. Það er hlutverk okkar í stjórn félagsins að búa til og skapa forsendur þar sem starfsfólk, iðkendur og leikmenn þroskast og þróast við bestu mögulega aðstæður. Vinna KPMG hjálpar okkur hjálpar okkur að forgangsraða þeim verkefnum sem...
Körfuknattleikslið ÍA í karlaflokki hefur einu sinni leikið til úrslita um bikarmeistaratitilinn og það er ljóst að ÍA mun ekki leika til úrslita í byrjun næsta árs eftir 77-63 tap gegn liði Selfoss í 32-liða úrslitum keppninnar í gærkvöld. Skagamenn voru án þriggja lykilmanna í leiknum í gær og meðaldur leikmannahópsins var rétt tæplega 20...
Kristín Þórhallsdóttir, íþróttamaður Akraness undanfarin tvö ár, náði frábærum árangri á Girl Power boðsmótinu í kraftlyftingum sem fram fór í Frakklandi um s.l. helgi. Alls var 12 keppendum boðið að taka þátt og voru veitt peningaverðlaun fyrir verðlaunasæti. Sterkustu konum franska landsliðsins var boðið að taka þátt, auk 6 keppenda í fremstu röð í Evrópu....
Sædís Alexía Sigurmundsdóttir, fulltrúi Framsóknar og frjálsra í skipulags – og umhverfisráði Akraness, lagði fram hugmyndir um verkefnið „Landsbyggðarstígur“ á fundi ráðsins í lok september. Í kynningu Sædísar kom fram að Framsókn og frjálsir hafi lagt áherslu á verkefnið í kosningunum 2022. Flokkurinn óskar eftir því að skoðaðir verði möguleikar á skipulagi og uppbyggingu Landsbyggðastígs...
Íslensku menntaverðlaunin 2022 verða afhent á næstunni. Leikskólinn Akrasel hefur verið tilnefndur í flokki framúrskarandi skólastarfs eða menntunarumbóta. Alls eru fjórir skólar tilnefndir í þessum flokki þar sem verið að verðlauna þann skóla eða menntastofnun sem þykir hafa skarað fram úr í starfi sínu og stuðlað að umbótum í menntamálum. Ein verðlaun eru veitt í...
Monika Joanna Górska hóf störf í upphafi skólaársins 2022-2023 sem móðurmálskennari við Brekkubæjarskóla á Akranesi. Um 30 nemendur í Brekkubæjarskóla eru með pólsku að móðurmáli og mun Górska sinna móðurmálskennslu fyrir pólskumælandi nemendur skólans. Gerard Pokruszynski, sendiherra Póllands á Íslandi, kom nýverið í heimsókn í Brekkubæjarskóla ásamt eiginkonu sinni, Margherita Bacigalupo-Pokruszyńska. Í heimsókn sinni færðu...
Skagamaðurinn Daníel Ingi Jóhannesson er í íslenska U17 ára landsliði karla sem tekur þátt í undankeppni Evrópumótsins 2023. Mótið fer fram dagana 22. okt. – 1. nóvember í Norður-Makedóníu. Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari liðsins. Alls eru 20 leikmenn í landsliðshópnum og koma þeir frá 16 félögum. Af þessum 20 eru fimm leikmenn sem leika...
Sunna Rún Sigurðardóttir lék með U15 ára landsliði Íslands í knattspyrnu á æfingamóti sem fram fór í Póllandi nýverið. Alls lék Ísland þrjá leiki og var Sunna Rún fyrirliði í fyrsta leik liðsins í 5-2 sigri gegn Tyrklandi. Í öðrum leik liðsins gegn Pólverjum gat Sunna Rún ekki leikið vegna meiðsla sem hún varð fyrir...
Skagamaðurinn Jón Þór Finnbogason tók þátt í þremur landsleikjum með íslenska U15 ára landsliði Íslands á æfingamóti sem fram fór í Slóveníu dagana 10.-16. október. Jón Þór var í byrjunarliðinu í tveimur fyrstu leikjunum og kom inná sem varamaður í lokaleiknum. Jón Þór er lengst til vinstri í fremri röð á þessari liðssmynd. Íslenska liðinu...